Fréttablaðið - 25.03.2022, Blaðsíða 47
Allir birgjar og rekstraraðilar
sem IKEA starfar með þurfa
að fylgja ströngum siða-
reglum varðandi umhverfis-
og vinnuvernd og samfélags-
ábyrgð og fyrirtækið hvetur
viðskiptavini til að velja sjálf-
bærar vörur. IKEA á Íslandi
starfar eftir alþjóðlegum
stefnum IKEA, en nýtir líka
innlend tækifæri til að sýna
samfélagsábyrgð í verki.
„Við erum meðvituð um stærð
okkar og þau áhrif sem við getum
haft og viljum nýta þau á jákvæð-
an hátt. Síðastliðna áratugi hefur
IKEA hérlendis og erlendis mótað
sínar eigin stefnur og fengið vott-
anir á hráefni og ferlum, til að sýna
það í verki að samfélagsleg ábyrgð
skiptir okkur máli. Við viljum
vera hluti af lausninni, finna hag-
kvæmar og einfaldar leiðir fyrir
sem flesta til að lifa sjálfbærara og
heilsusamlegra lífi,“ segir Kristrún
Ósk Karlsdóttir, umhverfisfulltrúi
IKEA.
Aðfangakeðjan er grunnur
að sjálfbærni
„Til að auðvelda okkur að ná
markmiðum er grundvallar atriði
að birgjarnir og virðiskeðjan hafi
verkfæri til að vinna eftir. Fyrir
um 20 árum mótaði IKEA siða-
reglur fyrir birgja, IWAY, sem
stendur fyrir IKEA Way og lýsir
kröfum varðandi umhverfis- og
vinnuvernd sem við ætlumst til
að birgjar okkar standist, auk leið-
beininga um starfshætti sem mælt
er með þegar unnið er fyrir IKEA.“
Siðareglurnar eru taldar vera
einar af ströngustu siðareglum
birgja í heiminum og áhrif þeirra
eru heilmikil því um 600 þúsund
einstaklingar í yfir 50 löndum
starfa hjá birgjum sem eiga í
beinum viðskiptum við IKEA. Þá
starfa milljónir til viðbótar hjá
þeirra birgjum. „IConduct eru svo
siðareglur rekstraraðila sem þarf
að uppfylla og skoða árlega. Þær
snúa að vöruúrvali, fólki og sam-
félögum, umhverfismálum, heilsu
og öryggi, viðskiptasiðareglum og
upplýsingagjöf. Við skoðum okkar
birgja samkvæmt siðareglunum
en markmiðið er að eiga einungis
í viðskiptum við ábyrga aðila sem
standast kröfur IWAY og ICon-
duct,“ segir Kristrún.
Árið 2019 hlaut IKEA, fyrst
fyrirtækja á Íslandi, AEO-vottun
sem viðurkenndur rekstraraðili.
„Þetta er alþjóðleg gæðavottun
sem felur í sér að fyrirtæki er talið
vera öruggur hlekkur í aðfanga-
keðjunni.“ Vottunin staðfestir það
að fyrirtækið tileinkar sér ábyrga
tollmeðferð og uppfyllir kröfur um
alþjóðlega vöruflutninga. „Það er
því óhætt að segja að við höfum
tryggt aðfangakeðju okkar frá upp-
hafi til enda.“
Hringrásar-IKEA
Á heimsvísu er IKEA að taka
breytingum. „Það er verið að
endurhugsa hjá IKEA allt frá vöru-
hönnun til framleiðslu, hráefnis-
vals, f lutninga, sölu og hvernig við
lokum hringrásinni og drögum úr
sóun. Við erum að taka skref í átt
að hringrásar-IKEA sem hefur í för
með sér jákvæð áhrif fyrir fólk og
jörðina.“
Að sögn Kristrúnar er það mikil-
vægur hluti af þessari breytingu
að upplýsa viðskiptavini og veita
innblástur. „Við viljum hvetja fólk
til að velja sjálf bærara hráefni
eða vörur með sjálf bærari eigin-
leika. Síðastliðna mánuði hefur
verið lögð mikil áhersla á að gera
sjálf bærari vörur og upplýsingar
um þær sýnilegri, en við teljum að
það hafi ekki einungis áhrif á val
viðskiptavina hjá okkur, heldur
hafi það í för með sér að fólk fari
með hugsunina lengra, á aðra staði
og skapi jafnvel samræður um
umhverfismál. Við viljum með
þessu hafa áhrif og sýna gott for-
dæmi.“
Samstarf sem dregur úr úrgangi
„IKEA á Íslandi starfar að sjálf-
sögðu eftir stefnum IKEA á
alþjóðavísu, en hefur einnig sína
eigin stefnu hér á landi sem hefur
mótast af þróun og möguleikum í
samfélaginu. Eins og f leiri fyrir-
tæki hérlendis skrifaði IKEA undir
loftslagsyfirlýsingu Festu og
Reykjavíkurborgar fyrir nokkrum
árum og hefur síðan þá mælt losun
með kerfi Klappa og greint frá
upplýsingum í umhverfisskýrslu
til að sýna fram á samfélagsábyrgð
í verki. „Verkefnin hafa verið af
ýmsum toga, eitt af þeim stærstu
voru líklega hleðslustæðin, en fyrir
framan verslunina eru 60 hleðslu-
stæði sem viðskiptavinir og starfs-
menn geta nýtt sér. Í janúar hófum
við samstarf við frumkvöðlafyrir-
tækið Plastplan sem endurnýtir
plastúrgang IKEA og kemur til
með að hanna úr því nytsamlega
hluti, það verður gaman að sjá hvað
kemur út úr því.“
Samfélagsábyrgð í forgangi
„Þó svo að ýmislegt hafi gengið á
í heiminum síðastliðin ár og enn
ríki töluverð óvissa, þá er mikil-
vægt, og jafnvel mikilvægara en
áður, að missa ekki dampinn og
setja samfélagsábyrgð í forgang.
Það er mikilvægt að vera sífellt á
varðbergi, vera opin fyrir nýjum
aðferðum og hugmyndum og láta
verkin tala,“ segir Kristrún að
lokum. ■
Látum verkin tala
Kristrún Ósk
Karlsdóttir,
umhverfisfull-
trúi IKEA, segir
að fyrirtækið
hafi sýnt það í
verki síðastliðna
áratugi að sam-
félagsleg ábyrgð
skipti það máli.
MYNDIR/AÐSENDAR
IKEA hvetur fólk
til að velja sjálf-
bærara hráefni
eða vörur með
sjálfbærari
eiginleika.
Allir birgjar og
rekstraraðilar
sem vinna með
IKEA þurfa
að standast
strangar siða-
reglur.
IKEA vill finna
hagkvæmar
og einfaldar
leiðir fyrir sem
flesta til að lifa
sjálfbærara og
heilsusamlegra
lífi.
Hjá IKEA er lögð mikil áhersla á að
draga úr sóun á ýmsan hátt.
Síðastliðna
mánuði hefur
verið lögð mikil
áhersla á að
gera sjálfbærari
vörur og upp-
lýsingar um þær
sýnilegri.
kynningarblað 33FÖSTUDAGUR 25. mars 2022 SJÁLFBÆR REKSTUR