Fréttablaðið - 25.03.2022, Síða 50
Í Sjálfbærnivísi PwC
kemur einnig fram
að bankar standa sig vel í
að kolefnisjafna starf-
semi sína.
Með aukinni samfélagsábyrgð fyrirtækja er verið að kalla eftir því að fyrirtæki taki
ábyrgð á áhrifum sínum sem hefur þannig bein áhrif á samkeppnishæfni þeirra.
Samfélagsábyrgðin getur skilað fyrirtækjum ávinningi í áhættustjórnun, dregið úr
kostnaði og haft áhrif á fjölmarga þætti líkt og aðgengi að fjármagni, viðskiptasam-
bönd, launajafnvægi, mannauðsmál og nýsköpun.
PwC | Sími 550 5300 | www.pwc.is
Reykjavík | Akureyri | Húsavík | Hvolsvöllur | Vestmannaeyjar | Selfoss
Sjálfbærni
Mikilvægur drifkraftur í rekstri
fyrirtækja í nútímasamfélagi
Hjá PwC starfar þverfaglegt teymi sem veitir ýmsa þjónustu á sviði sjálfbærnimála.
Með aukinni samfélagsábyrgð fyrir-
tækja er kolefnisspor þeirra meðal
annars minnkað. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
thordisg@frettabladid.is
Með aukinni samfélagsábyrgð
fyrirtækja hefur verið kallað eftir
því að fyrirtæki taki ábyrgð og
skýri frá áhrifum sínum á sam-
félagið.
Upplýsingagjöf um sjálfbærni
fyrirtækja hefur ekki verið stöðluð
með þeim hætti að hægt sé að bera
saman upplýsingar á sama hátt
og hægt er að bera saman fjár-
hagslega upplýsingagjöf í formi
ársreikninga.
Á næstu árum mun þetta
breytast þannig að stöðlun verður
meiri, á sama tíma og kröfur um
upplýsingagjöf munu aukast.
Samkvæmt yfirlýsingu frá
IASB (e. International Accounting
Standards Board) á COP26, lofts-
lagsráðstefnu SÞ í Glasgow 2021,
hefur verið stofnað alþjóðlegt
staðlaráð sem mun stuðla að sam-
ræmingu og stöðlun á sjálfbærni-
upplýsingum.
ESG-teymi PwC hefur rýnt
markaðinn og gefið út skýrsluna
Sjálfbærnivísir. Í skýrslunni er
samantekt á opinberum upp-
lýsingum úr sjálfbærniskýrslum
fyrirtækja á Íslandi, með það að
markmiði að greina og setja fram
áhugaverðar niðurstöður sem
gagnast lesendum til að geta borið
saman fyrirtæki, ekki einungis
með fjárhagslegum mælikvörðum
heldur einnig með sjálfbærni að
leiðarljósi.
Með þessu framtaki vill PwC
stuðla að aukinni þekkingu um
málefnið, setja fram viðmið og
hvetja til faglegrar umræðu.
Samræmingu vantar í
sjálfbærni skýrslugerð á Íslandi
Samkvæmt Sjálfbærnivísi PwC
eru örfá fyrirtæki á Íslandi með
undirritaða staðfestingu þriðja
aðila á sjálfbærniskýrslum sínum.
Því er ekki öruggt að sambærilegar
forsendur liggi að baki forsendum
sjálfbærniskýrslna fyrirtækja sem
gerir þær samanburðarhæfar.
Í Sjálfbærnivísi PwC kemur
einnig fram að bankar standa sig
vel í að kolefnisjafna starfsemi sína
og einnig sést að Landsbankinn er
með sexfalt meira kolefnisspor en
samkeppnisaðilar, sem skýrist að
mestu af nýbyggingu höfuðstöðva
bankans.
Hjá öllum þeim fyrirtækjum
sem Sjálfbærnivísir PwC nær yfir
voru miðgildislaun karla hærri en
kvenna árið 2021. ■
Skýrsluna er að finna á heimasíðu
PwC: pwc.is/is/thjonusta/sjalfba-
erni.html
Sjálfbærnivísir
PwC gefinn út
Vinnum saman í átt að sjálfbærni. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
jme@frettabladid.is
Sjálf bærnisýningin Nordic Susta-
inability Expo verður haldin í
Svíþjóð 17.–18. maí næstkomandi
í samstarfi við Svansmerkið, CSR
Sweden, Cradlenet, A Sustainable
Tomorrow og NMC The Swedish
Association for Sustainable
Business. Fyrirtæki og stofnanir á
Norðurlöndunum geta tekið þátt
í ráðstefnunni. Það hefur aldrei
verið jafn mikilvægt að hitttast,
deila reynslu og auka samvinnu
í átt að sjálf bæru samfélagi og
bættri samkeppni. Við þurfum
að láta verkin tala og stuðla að
nýsköpun, brjóta múra, styrkja
tengslanetið og taka djarfar
ákvarðanir í samræmi við alþjóð-
leg markmið, eins og Agenda
2030 og Global Goals. Nýttu þetta
einstaka tækifæri til þess að sýna
hvað þitt fyrirtæki getur gert til að
stuðla að breytingum og hjálpaðu
öðrum í sinni sjálf bærnivegferð.
Nánari upplýsingar á nordicsusta-
inabilityexpo.se.■
Sköpum nýja framtíð saman
36 kynningarblað 25. mars 2022 FÖSTUDAGURSJÁLFBÆR REKSTUR