Fréttablaðið - 26.03.2022, Page 6

Fréttablaðið - 26.03.2022, Page 6
Meirihlutaflokkunum hefur algjörlega mis- tekist að skapa sátt um framtíðar samgöngur og skipulag í borginni. Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálf- stæðisflokksins Það er ekki nýtt að Sjálfstæðisflokkurinn sé klofinn í þessu en það gildir reyndar um margt annað. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Umræðan um Borgar- línu og þéttingu byggð- ar hefur verið föst í skotgröfum og upp- hrópunum og því vill Framsókn breyta. Einar Þorsteinsson, oddviti lista Framsóknar- flokksins LENGRA FRÍ Á TENERIFE EÐA KANARÍ ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 INFO@UU.IS KANARÍ 29. MARS - 11. APRÍL - 13 DAGAR MIRADOR MASPALOMAS 3* VERÐ FRÁ 165.900 KR Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN VERÐ FRÁ 205.500 KR. FYRIR 2 FULLORÐNA TENERIFE 28. MARS - 10. APRÍL - 14 DAGAR HOVIMA JARDIN CALETA 3* VERÐ FRÁ 128.900 KR Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN VERÐ FRÁ 181.900 KR. FYRIR 2 FULLORÐNA ALLT INNIFALIÐ MEÐ MORGUNV. n Hlynnt/ur 52% n Hvorki né 19% n Andvíg/ur 29% Hversu hlynnt/ur eða andvíg/ur ert þú Borgarlínu? 101 102, 103 104 105 107 108 109 110 111 112 113, 116, 161, 162 Viðhorf til Borgarlínu eftir póstnúmerum 39% 17% 44% 36% 26% 38% 29% 30% 40% 39% 25% 36% 48% 18% 34% 53% 19% 28% 65% 12% 23% 63% 16% 21% 60% 17% 22% 59% 18% 23% 66% 15% 19% n Hlynnt/ur n Hvorki né n Andvíg/ur Viðhorf til Borgarlínu og þéttingar byggðar eftir stuðningi við flokka nn Hlynnt/ur nn Hvorki né nn Andvíg/ur B = Borgarlína Þ = Þétting byggðar 19% 36% 45% 24% 25% 51% 32% 20% 48% 23% 20% 7% 26% 14% 19% 18% 24% 13% 57% 6% 7% 87% 13% 81% 67% 16% 17% 58% 16% 84% 13% 2% 78% 8% 17% 16% 67% 22% 60% 54% 28% 19% 46% 36% 74% 20% 6% 55% 21% 83% 9% 9% 71% 13% B B B B B B B B BÞ Þ Þ Þ Þ Þ Þ Þ Þ Meirihluti kjósenda flokk- anna sem mynda meirihluta í Reykjavík er hlynntur Borgar- línu og þéttingu byggðar. Kjósendur annarra flokka eru á öndverðri skoðun. Kjós- endur Framsóknarflokksins virðast stilla sér upp með kjósendum flokka sem standa utan núverandi meirihluta. adalheidur@frettabladid.is Rúmlega helmingur Reykvíkinga er hlynntur Borgarlínu en innan við þriðjungur andvígur henni, sam- kvæmt nýrri skoðanakönnun sem Prósent framkvæmdi fyrir Frétta- blaðið. Líkt og með frekari þéttingu byggðar í Reykjavík, sem Frétta- blaðið fjallaði um fyrir viku, sýnir könnunin meðal annars að kjósend- ur þeirra flokka sem mynda núver- andi meirihluta í Reykjavík eru lík- legri til að vera hlynntir Borgarlínu en kjósendur annarra flokka. Þá eru flokkarnir sem standa utan meiri- hluta, að Framsókn meðtalinni, lík- legri til að vera heldur andvígir bæði Borgarlínu og þéttingu byggðar. „Góður stuðningur við Borgarlínu og græna borgarþróun í f lestum flokkum kemur ekki á óvart,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. Hann segir Borgarlínu góða fyrir umferðina og nauðsynlega til að minnka umferðartafir. Markmið í loftslagsmálum náist ekki nema með bættum almenningssam- göngum. „Það er ekki nýtt að Sjálfstæðis- flokkurinn sé klofinn í þessu en það gildir reyndar um margt annað,“ bætir Dagur við. Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisf lokksins, skýtur hins vegar föstum skotum til baka og skýrir hvers vegna könnunin kemur henni ekki á óvart: „Hún talar inn í það menningarstríð sem borgar- stjóri hefur skapað í borginni þar sem fólki er skipað í fylkingar eftir því hvernig það velur að lifa sínu lífi. Meirihlutaf lokkunum hefur Kjósendur skipa sér í fylkingar í stórum málum algjörlega mistekist að skapa sátt um framtíðar samgöngur og skipu- lag í borginni sem hefur leitt til van- trausts og óánægju,“ segir Hildur. Einar Þorsteinsson, oddviti lista Framsóknarf lokksins, tekur að nokkru leyti undir með Hildi. „Umræðan um Borgarlínu og þétt- ingu byggðar hefur verið föst í skot- gröfum og upphrópunum og því vill Framsókn breyta. Framsóknar- flokkurinn styður Samgöngusátt- málann sem formaður f lokksins hafði forgöngu um. Þar er mark- miðið að einfalda alla umferð fyrir akandi, almenningssamgöngur, hjólandi og gangandi,“ segir Einar. Útfærslan sé hins vegar meiri verk- fræði en pólitík. „Hvað þéttingu byggðar snertir þá hefur þróun fasteignamarkaðar undanfarið sýnt að skynsamlegast er að byggja með þarfir allra borg- arbúa í huga. Bæði þétta byggð og brjóta nýtt land,“ segir Einar. En verða þessi mál borgarbúum ofarlega í huga í aðdraganda kosn- inga? „Þróun borgarinnar er að sjálf- sögðu eitt aðalmál kosninganna í vor. Ekki aðeins Borgarlína heldur Miklabraut sem er að fara í stokk. Mér brá að sjá Sjálfstæðisflokkinn nú leggjast gegn því í samþykktri stefnu sinni,“ segir Dagur. „Kjósendur ræða held ég ekki Borgarlínu við morgunverðarborð- ið,“ segir Einar sem telur að kosið verði um grunnþjónustuna; hvort börnin komist inn á leikskóla, hvort fatlað fólk fái úrræði, hvort eldri borgurum líði vel, hvort stígar séu ruddir og ruslið hirt. Hildur tekur undir með Einari og bætir við: „Kosningarnar munu snúast um það hvaða stjórnmála- af l er trúverðugast til að tryggja framúrskarandi þjónustu, öf luga innviði og nauðsynlegar breytingar í borginni. Það er engum vafa undir- orpið í mínum huga að þetta afl er Sjálfstæðisflokkurinn.“ Um f lokkslínurnar í könnun- inni og myndun meirihluta eftir kosningar segir Dagur mikilvægt að næsti meirihluti styðji þessi verkefni og Samgöngusáttmálann. „Framkvæmd hans er eitt af stóru málunum fram undan,“ segir Dagur. Aðspurður túlkar Einar könnun- ina ekki þannig að myndun meiri- hluta sé skrifuð í skýin. „Mér finnst þetta aftur á móti senda skýr skila- boð um að borgarbúar vilji að það sé áframhaldandi sátt um samgöngu- mál borgarinnar á grundvelli Sam- göngusáttmálans og uppbygging haldi áfram. Ég held að allir séu sammála um að efla þurfi almenn- ingssamgöngur.“ Aðspurð segir Hildur að Sjálf- stæðisflokkurinn gangi óbundinn til kosninga. „Myndun meirihluta mun snúast um mun fleira en skipu- lag og samgöngur, til að mynda fjár- mál borgarinnar, leikskólavandann, húsnæðisvandann og innviði.“ Mestur stuðningur við Borgar- línu er meðal íbúa í miðborginni og Vesturbænum í Reykjavík. Minnstur stuðningur er hins vegar meðal íbúa í Árbæ, Breiðholti og í Grafarvogi. Viðhorf til Borgarlínu eftir hverfum eru svipuð viðhorfum til frekari þéttingar byggðar sem Fréttablaðið fjallaði um í síðustu viku. Könnunin var gerð af Prósenti dagana 4. til 18. mars síðastliðinn. Úrtakið var 2.400 og svarhlutfallið 52 prósent. n 6 Fréttir 26. mars 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.