Bændablaðið - 23.06.2022, Blaðsíða 14
14 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2022
FRÉTTIR
Hundar og kettir frá Úkraínu í einangrun á Íslandi:
Ströng skilyrði og allt í boði ríkisins
Í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu
í lok febrúar flúði fjöldi fólks til
nærliggjandi landa í Evrópu.
Mörg höfðu gæludýr sín
meðferðis og flest ef ekki öll
ESB-ríki brugðust strax við
með því að veita undanþágur frá
innflutningsskilyrðum gæludýra.
Matvælastofnun fékk strax töluvert
af fyrirspurnum vegna þessa og að
beiðni matvælaráðuneytis var málið
skoðað og áhættan á innflutningi
gæludýra frá Úkraínu metin. Í
framhaldi af því var ákveðið að
heimila innflutning gæludýra í eigu
flóttafólks frá Úkraínu með ströngum
skilyrðum. Úr varð að sett var á
laggirnar sérstök einangrunarstöð
með öllu sem því fylgir og formleg
starfsemi er nú hafin.
Hrund Hólm er deildarstjóri
hjá Matvælastofnun hjá inn- og
útflutningsdeild, sem annars vegar
fer með eftirlit með innflutningi
dýra, dýraafurða, plantna og ýmissa
annarra vara og hins vegar vottar
íslenskar afurðir og dýr, sem fluttar
eru utan.
Einangrunin er á Kjalarnesi
„Einangrunarstöðin er á Kjalarnesi
og þar munu dýrin dvelja í þrjá til
fjóra mánuði en eingöngu verður um
ketti og hunda að ræða. Hefðbundin
einangrun hunda og katta sem fluttir
eru til landsins er tvær vikur. Í þeim
tilfellum hafa dýrin verið undirbúin
í sínu heimalandi, þ.e. þau hafa
verið bólusett og undirgengist
ýmsar sýnatökur og meðhöndlanir.
En í tilfelli dýranna frá Úkraínu þá
hefur slíkur undirbúningur ekki farið
fram,“ segir Hrund.
Hundaæði
Hrund segir skilyrði vegna
hundaæðis vega þyngst hvað lengd
einangrunar varðar, þ.e. þar kemur
til þriggja mánaða biðtími eftir
að bólusetning og mótefnamæling
fer fram.
„En við erum einnig á varð-
bergi gagnvart öðrum sjúkdómum.
Hérlendis er mjög lítið um
smitsjúkdóma í dýrum og er
það bæði vegna landfræðilegrar
einangrunar en líka vegna strangra
innflutningsreglna, sem hér gilda.
Þannig að auk hundaæðis þá gilda
sérstök skilyrði um nokkra aðra
sjúkdóma en mjög mikil áhersla
er á sníkjudýr og í hefðbundinni
einangrun þá greinast nánast í
hverjum mánuði sníkjudýr, sem
við viljum alls ekki að nái fótfestu
hér á landi. Þá höfum við tækifæri
til að bregðast við og meðhöndla,“
segir Hrund.
Tugþúsundir deyja
af hundaæði á hverju ári
Hundaæði er banvænn veiru-
sjúkdómur sem á uppruna sinn
að rekja til leðurblaka en smitar
margar spendýrategundir og þar á
meðal menn. Sjúkdómurinn finnst í
öllum heimsálfum nema í Ástralíu og
Suðurskautslandinu en er algengastur
í Asíu og Afríku. Hrund segir að
árlega látist um 55.000-70.000
manns af hundaæði á heimsvísu.
„Hundar eru valdir að lang-
flestum tilfella af hundaæði í fólki
og helsta smitleiðin er með biti.
Meðgöngutíminn er frá nokkrum
dögum og upp í allt að 6 mánuði og
einkenni eru frá taugakerfi og geta
verið margvísleg en leiða að lokum
til öndunarstopps og dauða. Hægt er
að meðhöndla þá sem verða fyrir biti
en of seint er að hefja meðhöndlun ef
einkenni eru komin fram. Hundaæði
er sá sjúkdómur sem mest áhersla
er lögð á, á heimsvísu, þegar kemur
að skilyrðum vegna flutnings hunda
og katta á milli landa,“ segir Hrund.
Toppaðstaða fyrir dýrin
Þegar Hrund er spurð út í aðstöðuna
á einangrunarstöðinni er hún fljót
til svars.
„Þar er allt í toppstandi enda
er aðstaðan góð og samræmi
við reglugerðir þar að lútandi.
Tilgangurinn með einangrun er að
smit berist ekki út í umhverfið og ef
eitthvert smit kemur upp, þá sé hægt
að fyrirbyggja að það dreifist. En þó
aðaláherslan sé á smitvarnir þá er
velferð dýranna ekki síður mikilvæg.
Hvert dýr hefur sitt herbergi og
útiaðstöðu og mikil áhersla lögð á
að starfsfólkið verji góðum tíma með
hverju dýri alla daga. Svona löng
einangrun er álag fyrir dýrin og því
er mikilvægt að gera það sem hægt
er til að létta þeim lífið.“
Pláss er fyrir fjóra ketti og tuttugu
og tvo hunda í einu á stöðinni.
Fyrstu dýrin komin til landsins
Fyrstu dýrin frá Úkraínu komu til
landsins í síðustu viku og fóru þau
strax í einangrun en um var að ræða
sex dýr. Hrund segir að stöðin muni
svo fyllast á örfáum vikum.
„Það er erfitt að segja til um
hvernig þetta þróast en þeim sem
leita til stofnunarinnar hefur verið
bent á að hefja undirbúningsferlið
áður en þau senda dýrin til Íslands
þar sem það getur stytt dvölina
töluvert. Það hefur verið fróðlegt
og skemmtilegt að taka þátt í þessu
verkefni enda er það lærdómsríkt
átaksverkefni og skemmtilegt að sjá
það verða að veruleika, enda hafa
margir lagt á sig mjög mikla vinnu
til þess að koma þessu á laggirnar,“
segir Hrund.
/MHH
Hrund Hólm, dýralæknir og
deildarstjóri hjá Matvælastofnun,
stýrir verkefninu.
Sex gæludýr frá Úkraínu eru nú þegar komin í einangrun á Kjalarnesi, meðal annars þessi köttur. Myndir /Aðsendar
Þessi hundur frá Úkraínu er líka kominn í einangrun en hann er hér með
starfsmanni í fullum smitvarnaklæðum. Myndir /Aðsendar
Ný sameinuð sveitarfélög eru að
taka til starfa um þessar mundir
og flest hafa haldið fyrstu fundi
sína og samþykkt ný nöfn.
Nýtt sveitarfélag sem varð
til þegar Þingeyjarsveit og
Skútustaðahreppur voru sameinuð
fær heitið Þingeyjarsveit.
Fyrir lá niðurstaða ráðgefandi
skoðanakannana sem gerðar
voru á meðal íbúa þar sem
meirihluti þátttakenda valdi heitið
Þingeyjarsveit.
Heitið Þingeyjarsveit er að
upplagi samheiti nokkurra hreppa
sem sameinuðust á tímabilinu 2002–
2008 og fær nú víðari merkingu með
aðkomu Mývetninga.
Þá fékk sameinað sveitarfélag
Húnavatnshrepps og Blönduósbæjar
nafnið Húnabyggð. Alls völdu
443 íbúar sem tóku þátt í könnun
á nafni á nýju sveitarfélagi það
nafn. Færri völdu Blöndubyggð og
Húnavatnsbyggð sem einnig var
valið um.
Sveitarfélagið Skagafjörður og
Akrahreppur hafa sameinast í eitt og
á fyrsta fundi nýja sveitarfélagsins
var samþykkt að nafn þess verði
Skagafjörður. Könnun var gerð
meðal íbúa áður en ákvörðun
var tekin og meirihlutinn valdi
nafnið Skagafjörður, næstflestir
Sveitarfélagið Skagafjörður og mun
færri nafnið Hegranesþing.
Sameinað sveitarfélag Helga-
fellssveitar og Stykkishólmsbæjar
hefur komið saman í fyrsta sinn
og voru á þeim fundi lagðar fram
hugmyndir að nafni sem bárust í
samráðsgátt, en samþykkt að vísa
nafngiftinni til frekari vinnslu
bæjarráðs. /MÞÞ
Ný nöfn á sameinuðum
sveitarfélögum