Bændablaðið - 23.06.2022, Qupperneq 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2022
Í skýrslu starfshóps matvæla-
ráðherra um blóðtöku úr fylfullum
hryssum eru efnahagsleg
sjónarmið greind sem eitt af
meginsjónarmiðum þeirra hagaðila
sem fengu að koma á framfæri sinni
afstöðu í nefndinni. Meðal aðila
voru ráð og félög sem vinna að
framgangi reiðhestsins, s.s. fagráð
í hrossarækt, Alþjóðasamband
Íslandshestafélaga (FEIF), Félag
tamningamanna og Landssamband
hestamannafélaga. Skýr afstaða
meðal þeirra var að banna ætti
blóðmerahald á forsendum ímyndar
greinarinnar, ræktunarsjónarmiða
og efnahagslegra sjónarmiða.
Í umfjöllun nefndarinnar um
efnahagsleg áhrif kemur fram að
engin bein neikvæð efnahagsleg
sjónarmið liggi fyrir. Erfitt sé að
mæla eða sýna fram á þessi áhrif
með beinum hætti og engin úttekt
liggi fyrir á efnahagslegum áhrifum
hestatengdrar starfsemi í heild.
Niðurstaða hópsins er sú að ekki
sé hægt að banna blóðmerabúskap
á grundvelli óbeinna efnahagslegra
hagsmuna, s.s. ímyndar og
hugsanlegra áhrifa.
Óhjákvæmilegt væri að mæla og
sýna fram á slík áhrif.
Fjölbreytt starfsemi
Atvinnugreinin hestamennska
er marglaga. Hún felur m.a. í sér
ræktun hrossa, útgerð stóðhesta,
tamningu og þjálfun hrossa,
hrossasölu innanlands sem utan,
hestaferðamennsku og reiðkennslu.
Þá er sá þáttur sem tengist minna
reiðhestinum, eins og kjötframleiðsla
og blóðframleiðsla, einnig þættir
sem velta töluverðum fjárhæðum
ár hvert. Einnig er þá ótalið afleidd
starfsemi, s.s. framleiðsla reiðtygja
og annars búnaðar, hestasýningar,
íþróttamót og aðrir viðburðir,
dýralæknaþjónusta, hestaflutningar
og ótal margt fleira.
Í grein í Skrínu, riti um
auðlinda-, landbúnaðar- og
umhverfisvísindi, frá árinu
2015, skrifa Ingibjörg Sigurðar-
dóttir og Runólfur Smári
Steinþórsson um rannsókn sína
á þróun hestatengdra klasa á
Norðurlandi vestra. Klasafræðin
snúast um að greina tengsl
og virkni skilgreindra þátta.
Niðurstöðurnar gefa vísbendingar
um fjölbreytta starfsemi sem
tengjast hestum í öllum þáttum virðis-
keðjunnar, allt frá frumframleiðslu
til sérhæfðrar þjónustu.
„Starfsemin hefur þróast á löngum
tíma og fjöldi og fjölbreytileiki
hestatengdra fyrirtækja á svæðinu
gefur vísbendingu um aukið samspil
sem skilar virðisauka og meiri styrk
innan greinarinnar sem síðan laðar
að sér frekari starfsemi á þessu
sviði,“ segir í greininni.
Helstu annmarkar rannsóknar-
innar fólust í takmörkuðum
upplýsingum um ákveðna þætti
hestatengdrar starfsemi og skorti á
skilgreiningum. „Víða voru mörk
milli áhugamáls og atvinnustarfsemi
ekki skýr út á við þó að greinar-
munur hafi vissulega verið gerður
á þeim sem höfðu kennitölu og
virðisaukaskattsnúmer á sinni
starfsemi og þeim sem stunduðu
hestamennsku fyrst og fremst
sem áhugamál. Engin skráning var
þó til á hestatengdum fyrirtækjum
í heild enda er hestatengd starfsemi
oft og tíðum hluti af annars konar
landbúnaðarrekstri. Því var erfitt
að skilgreina hversu stór hluti
starfseminnar var hestatengdur eða
hver væri fjöldi fyrirtækjanna og
eðli þeirra. Sem dæmi um þennan
skilgreiningarvanda má nefna
að opinberlega hefur ekki verið
skilgreint hvað hrossaræktandi er.
Velta má fyrir sér hvort undir þá
skilgreiningu falli aðeins þeir sem
hafa að hluta eða öllu leyti atvinnu af
hrossarækt eða hvort og þá hvenær
áhugamenn falla einnig undir þessa
skilgreiningu. Hrossabóndi getur
átt 30 hryssur í stóði sem fyrst og
fremst eru nýttar til kjötframleiðslu
á sama tíma og áhugamaður á 2–3
sýndar kynbótahryssur sem skila
meiri erfðaframför inn í stofninn,“
segir einnig í greininni.
Mikið verk óunnið
Ingibjörg, sem nú starfar sem
lektor við Háskólann á Hólum,
hóf vegferð sína í rannsóknum
á hestatengdri starfsemi fyrir um
tveimur áratugum. Meðal annars
hefur hún framkvæmt rannsókn á
eðli og umfangi hestamennskunnar
sem atvinnugreinar og afmarkaði
rannsóknarsvæðið sitt við Norður-
land vestra. Ingibjörg segir að þegar
skortur á gögnum blasti við hefði
hún þurft að taka nokkur skref til
baka og breyta upphaflegu uppleggi
rannsóknarinnar.
Þannig fékk hún ekki aðgengi
að neinum tölum né haldbærum
upplýsingum sem gátu veitt henni
yfirsýn yfir umfang fjölbreyttrar
hestatengdrar starfsemi á Norður-
landi vestra, þar sem 32% allra
hesta landsins eru staðsettir. Hún
fór því í kortlagningu á hvers
konar starfsemi tengd hestum væri
á svæðinu. Heimildaöflunin var
handvirk og byggði á fyrirliggjandi
en brotakenndum gögnum sem og
tengslum hennar við svæðið. Rætt
var við fjölda heimamanna og
greinin kortlögð.
Í rannsókninni veltir hún fyrir
sér hvort ástæður þess að heildræn
stefnumótun hafi ekki verið unnin
kunni að liggja í þeirri staðreynd að
heildarsamtök fyrir hestamennsku á
landinu séu ekki til staðar. Stefnur
hafa aðeins verið markaðar fyrir
afmarkaða þætti hestamennskunnar,
svo sem fyrir kynbótastarf. Aðrir
þættir hestamennsku hafi verið
flokkaðir sem landbúnaður á
meðan hestaíþróttin er viðurkennd
íþróttagrein.
Alþjóðlegt vandamál
Veikleikinn er ekki einangraður
við hestatengda starfsemi á Íslandi.
Ingibjörg segir að í reynd sé þessi
skortur á tölfræðiupplýsingum
vandamál víða um heim og vísar
til nokkurra erlendra rannsókna í
þeim efnum.
Rannsóknarniðurstöður um
samsetningu og eðli hestamennsku
séu samhljóma varðandi ákveðin
sérkenni greinarinnar. Fjölbreytileiki
er áberandi og vísar Ingibjörg í
breska rannsókn þar sem því er
haldið fram að hestamennska sé
fjölþættari en nokkur önnur grein
þar í landi.
„Í Bandaríkjunum hefur
verið bent á að hestamennska sé
efnahagslega mikilvæg, bæði á
landsvísu og fyrir tiltekin svæði,
enda feli hún í sér fjölbreytta
starfsemi á sviði landbúnaðar,
viðskipta, íþrótta og afþreyingar,“
segir í rannsókn Ingibjargar frá
2011.
Einnig er bent á takmarkaðan
áhuga á rekstrarþáttum kringum
starfsemina. Fyrirtæki í hesta-
mennsku hafi oftar orðið til vegna
áhuga stofnenda á hestinum og
hestamennsku og leggi því meiri
áherslu á þætti sem snerta hestinn
sjálfan en peninga og viðskipti.
Í íslenskri rannsókn, sem
Ingibjörg vísar í, kemur fram að
rekstraraðilar í hestaferðaþjónustu
á Íslandi leggi litla áherslu á
rekstrarlega þætti og virðast
betur að sér hvað varðar ræktun,
tamningar, þjálfun og reiðmennsku
en fjárhags- og rekstrarleg
málefni. Þetta sé þó breytilegt
milli rekstraraðila.
Efnahagslegt hlutverk íslenska hestsins hefur breyst töluvert á undan-
förnum tuttugu árum. Hesturinn er forsenda fjölbreyttrar starfsemi
bæði hérlendis og erlendis. Heildræn yfirsýn á umfangi greinarinnar
í heild er hins vegar ekki til staðar. Vægi atvinnugreinar byggir á
upplýsingum um áhrif og arðsemi hennar og því er hagsmunaaðilum
hestamennsku vandi búinn þegar vinna á að framgangi starfseminnar
á einn eða annan hátt.
Kæli- og frystiklefar í öllum
stærðum og gerðum
Margar gerðir af
vélbúnaði fyrir
kæli- og frystiklefa
Mikið úrval af hillum
Járnháls 2 - 110 Reykjavík
Sími 440 - 1800
www.kaelitaekni.is
Kælitækni er leiðandi í sölu
og uppsetningu á kerfum með
náttúrlegum kælimiðlum
FRÉTTASKÝRING
Guðrún Hulda Pálsdóttir
gudrunhulda@bondi.is
Efnahagslegt hlutverk íslenska hestsins:
Hvert er umfangið?
– Þörf er á gagngerri heildarkortlagningu á eðli og veltu í fjölbreyttri starfsemi hestamennsku á landsvísu
Ingibjörg Sigurðardóttir, lektor við
Háskólann á Hólum.
Mynd/ Árni Rúnar Hrólfsson
Úr stóðréttum. Tölur sýna að útflutningstekjur vegna sölu íslenskra reiðhrossa eru á pari við tekjur annarra útflutningsafurða
hrossa, þ.e. þegar tekin eru saman verðmæti hins umdeilda PMSG og kjöts. Árið 2021 voru tekjur vegna útflutnings
reiðhrossa um 2,25 milljarðar króna. Meðaltal á uppgefnu söluverði þeirra var um 690.000 krónur. Á meðan voru
útflutningstekjur vegna afurða hrossa, sem ekki eru nýtt sem reiðhross, um 2 milljarðar króna. Mynd / ghp