Bændablaðið - 23.06.2022, Blaðsíða 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2022
Rannsóknir í jarðrækt:
Hækkun sýrustigs ræktunarjarðvegs
– Getur leitt til hagkvæmari áburðarkaupa að nota heimafengin bergefni
Lögð hefur verið út tilraun á
Hvanneyri með það að mark-
miði að hækka sýrustig ræktunar-
jarðvegs. Með því að ná sýrustigi
sem er hentugt nytjajurtum má
bæta uppskeru og nýtingu áburðar-
efna. Aðföng úr staðbundnu
hráefni gætu orðið mikils virði
fyrir landbúnað hér á landi. Að
auki er unnið að því að fá ný
viðmið í notkun á skeljasandi og
innfluttum kalkgjöfum í jarðrækt.
Starfsmenn Jarðræktarmið-
stöðvar Landbúnaðarháskóla
Íslands í samstarfi við Ráðgjafar-
miðstöð landbúnaðarins hafa
í nokkur ár rannsakað áhrif
mismunandi bergefna á sýrustig
mýrarjarðvegs í pottatilraun og
niðurstöður gáfu til kynna að
leggja þyrfti út stóra tilraun í
ræktunarskika.
Jarðræktartilraun í Bíafra
„Það er spilda hér á Hvanneyri
sem gengur undir heitinu Bíafra
þar sem langtímatilraunir Jarð-
ræktarmiðstöðvarinnar eru stað-
settar, því má vona að tilraunin
fái að standa yfir lengri tíma og
að svörum um langtímaáhrifum
kölkunar geti verið svarað,“
segir Gunnhildur Gísladóttir,
nemi í búsvísindum hjá LbhÍ
og starfsmaður Jarðræktar-
miðstöðvarinnar.
Í tilrauninni er verið að bera
saman skeljasand, svartan sand
úr námu, fjörusand með ögn af
skeljabroti, áburðarkalk, dólómít-
kalk, blöndum af svörtum sandi
og áburðarkalki, svörtum sandi
og dólómít-kalki og skeljasandi
og áburðarkalki. Allt er prófað í
þremur skömmtum, eða því sem
samsvarar 5, 10 og 15 tonnum á
hektara, nema áburðarkalkið sem
var borið á í 300, 600 og 1.000 kg
á hektara og dólómít-kalkið sem
var borið á í 3, 5 og 10 tonnum
á hektara.
„Tilraunin er því mjög stór, eða
samtals 99 tilraunareitir, hver reitur
er 10 fermetrar. Allar meðferðir eru
lagðar út í þremur endurtekningum,“
segir Gunnhildur. Skammtastærðir
voru ákvarðaðar út frá þekktum
viðmiðunum ásamt því að reynt
var að horfa til þess að fá prófanir
á hagkvæmum blöndum með tilliti
til kostnaðar á aðföngum.
„Niðurstöður pottatilraunarinnar
bentu til þess að önnur bergefni
en hefðbundinn skeljasandur geta
hækkað sýrustig ræktunarjarðvegs,“
segir Snorri Þorsteinsson,
jarðræktarráðunautur hjá RML,
sem tekur þátt í verkefninu, sem
ber heitið „Hækkun sýrustigs
ræktunarjarðvegs með innlendum
bergefnum“.
Pottatilraunin var styrkt af
Framleiðnisjóði landbúnaðarins.
Framhaldsverkefnið sem nú
er sett upp á Hvanneyrarbúinu
hlaut styrk frá atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytinu sem
þróunarverkefni í nautgriparækt.
Einnig fékkst styrkur úr
Nýsköpunarsjóði námsmanna fyrir
vinnu Gunnhildar.
Af hverju þarf að
hækka sýrustig?
Með því að hækka sýrustig erum
við í raun að gera jarðveginn minna
súran. Sýrustigskvarðinn (pH) sem
unnið er með nær frá 0-14 á pH
skala. Þar er 7 hlutlaust og undir
því er súrt meðan yfir sjö er basískt.
„Þær nytjajurtir sem eru mest
ræktaðar hér á landi dafna milli pH
5,5-7,0. Grös hafa til dæmis meiri
möguleika til þess að dafna í neðri
jaðri þessara viðmiða heldur en til
að mynda belgjurtir. Til þess að ná
sem bestum árangri viljum við því
ekki liggja í lægstu mörkum og
erum við því oft að horfa til þess
að sýrustig sé um 6 á pH skala.
Áburðarnýting flestra næringarefna
batnar við það að hækka sýrustig.
Því getur hækkun leitt til
hagkvæmari áburðarkaupa ásamt
því að gera búrekstur umhverfis-
vænni. Sérstaklega ef hægt er að
vinna með heimafengin aðföng við
hækkun sýrustigs,“ segir Snorri.
Búbót í fleiri bergefnum
Hingað til hefur skeljasandur, sem
dælt er upp af hafsbotni eða mokað
úr skeljasandsfjörum, mest verið
notaður, en kalkið í skeljasandinum
vinnur að því að hækka sýrustig
hans.
„Það eru fleiri katjónir en kalk
sem geta hækkað sýrustig og því er
kannski ekki nauðsynlegt að nota
aðeins sand með háu kalkmagni.
Þekkt er að veðrun ýmissa berg-
efna getur verkað á móti sýru-
myndun í jarðvegi. Var það ein af
ástæðum þess að farið var af stað
í þessar rannsóknir.
Oft er verið að horfa á að bera á
5–10 tonn á hektara af skeljasandi
við endurræktun.
Fer magnið eftir jarðvegsgerð
og sýrustigsástandi en það er
kostnaðarsamt að flytja mikið
magn af efni um landið. Það
væri mikil búbót ef hægt væri að
finna viðmið fyrir fleiri bergefni
sem gætu nýst til þess að hækka
sýrustig en hefðbundnar lausnir,“
segir Snorri.
Fyrstu niðurstöður
að vænta í sumar
Fyrstu niðurstaðna tilraunarinnar í
spildu Hvanneyrarbúsins er að vænta
í sumar.
„Við tókum jarðvegssýni úr
hverjum reit og frumniðurstöður
sýndu að sýrustigið var um pH 5,2-5,5.
Við munum svo mæla sýrustigið aftur
í haust og sjá hvort það hefur orðið
breyting. Við sáðum vallafoxgrasi
og rauðsmára í alla reiti en einnig
byggi. Við stefnum svo að uppskeru
mæla alla reiti með reitasláttuvél
Jarðræktarmiðstöðvarinnar.
Bygg og rauðsmári eru góðar
vísiplantöntur í þessa tilraun vegna
þess hve illa þær þrífast í súrum
jarðvegi og byggið getur orðið
fyrir ál-eitrun þar sem blöðin gulna
og plantan vex illa. Það getur því
komið áhugaverður samanburður
strax í ár en vissulega munu áhrif
kölkunar koma fram á lengri tíma,“
segir Hrannar Smári Hilmarsson
tilraunastjóri.
Vonir standa til að áfram verði
hægt að mæla uppskerutilraunina
á næsta ári og fylgjast með
sýrustigsbreytingum jarðvegsins
ásamt því að efnagreina uppskeru
úr hverjum reit.
„Það veltur allt á því að fjármagn
fáist í rannsóknirnar,“ segir Hrannar.
/ghp
FJÓSAINNRÉTTINGAR
DSD fjósainnréttingar sem
framleiddar eru í Hollandi eru
sérsmíðaðar fyrir íslenskar
kýr og hafa þegar sannað gildi
sitt í íslenskum fjósum.
Innréttingarnar eru hannaðar
og prófaðar eftir ströngustu
gæðakröfum og miða að velferð
bæði dýra og manna. Áralöng
reynsla hefur leitt af sér
innréttingakerfi sem auðvelt er
að aðlaga nánast öllum þörfum
nútímafjósa.
Til á lager
bondi@byko.is
LANDBÚNAÐARRANNSÓKNIR
Tilraunin í Bíafra-spildunni á Hvanneyri. Hér er verið að leggja út meðferðarliðina í tilraunareiti.
Efnin sem notuð voru í tilrauninni. Eftst til vinstri er svartur sandur úr
námi, svo fjörusandur, skeljasandur, dólómít-kalk, áburðarkalk og áburður.
Fyrir neðan er sáðið; bygg og vallafoxgras og rauðsmári.
Gunnhildur Gísladóttir.
Snorri Þorsteinsson.