Bændablaðið - 23.06.2022, Qupperneq 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2022
LÍF&STARF
ÆÐARBÆNDUR!
Hreinsun er komin í fullan gang!
Getum bætt við okkur æðardúni í hreinsun og sölu.
Greiðum flutningskostnað.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Erla Friðriksdóttir í síma 899 8369 & erla@kingeider.is Dúnhreinsun - Nesvegur 13 - 340 Stykkishólmi
Samkvæmt skráningu Æðar-
ræktarfélags Íslands eru æðar-
bændur á landinu rúmlega
380 og staðsettir um allt land
að söndunum á Suðurlandi
undanskildum.
Margrét Rögnvaldsdóttir,
formaður félagsins, segist ekki hafa
heyrt annað en að útlitið í greininni
sé gott. „Ég hef hvergi heyrt annað
en að varpið líti vel út og að fuglinn
hafi skilað sér vel alls staðar og
ég hef ekki heyrt um fuglaflensu
í æðarfugli.“
Verð hækkað
„Dúnn lækkaði töluvert í verði
fyrir þremur eða fjórum árum
og það seldist lítið af honum og
bændur sátu uppi með birgðir
en salan fór aftur að glæðast á
síðasta ári og verðið hefur hækkað
aftur og þegar það var sem hæst
fór kílóið á rúmar tvö hundruð
þúsund krónur.“
Margrétt segir að markaður
fyrir dún sé víða í heiminum. „Til
dæmis Japan og Þýskaland, en svo
eru sífellt fleiri einstaklingar og
fyrirtæki farin að selja fullunnar
vörur eins og kodda, sængur
og fatnað, sem eru markaðssettar
á netinu og því um talsverða
þróun í markaðsmálum æðar-
bænda að ræða.“
Markmiðið að efla æðarrækt
Æðarræktarfélag Íslands var stofnað
árið 1969 og félagar eru þeir sem
njóta hlunninda af æðarvarpi og þeir
sem hafa áhuga fyrir æðarrækt og
stofnun nýrra varpstöðva.
Á heimasíðu Æðarræktarfélags
Íslands segir að félagið vinni að
því að efla æðarrækt, meðal annars
með því að stuðla að rannsóknum,
fræðslu og leiðbeiningum um
atvinnugreinina og leita leiða til
að draga úr tjóni í æðarvörpum af
völdum vargs. Auk þess sem félagið
fylgist með sölu á æðardúni og
styður við markaðsmál, með útgáfu
kynningarefnis. /VH
Kolla við hreiður. Myndir / Æðarræktarfélag Íslands.
Æðarræktarfélag Íslands:
Útlitið í greininni gott
Valgeir Benediktsson, ábúandi
í Árnesi í Árneshreppi, segir að
æðarfugl hafi skilað sér mjög seint
í vor miðað við í meðalári og að
vætutíð sé að spilla dúntekjunni.
„Fuglinn hefur stundum verið
byrjaður að setjast upp í Árnesey
í endaðan apríl en í ár fórum við út
í eyju í byrjun maí og þá sást lítið
af fugli í henni og kringum hana og
enginn fugl farinn að verpa. Eina
skýringin sem ég hef á þessu er að
fuglinn hafi verið einhvers staðar í
æti og tafist.
Við fórum aftur út í eyju um
20. maí og þá var varp minna en í
meðalári en svo var fuglinn farinn
að sjást talsvert á fjörum í kringum
mánaðamótin maí og júní.“
Vætutíð spillir dún
Eftir að vera búinn að fara þrisvar
yfir eyjuna segir Valgeir að hann
telji hana vera orðna fullorpna þrátt
fyrir að hann telji fugla í eyjunni
vera færri í ár en oft áður.
„Það er allt of snemmt að segja
hver endanleg tekja verður í ár því
að við erum ekki búin að tína allt
enn. Veðrið hefur verið óhagstætt og
mikið rignt þannig að ég veit ekki
hvað kemur til með að skila sér að
lokum. Nýting á dún sem hefur
blotnað er verri en í þurrkatíð. Ég á
því ekki von á neinni mettekju í ár.
Vorið í fyrra var þurrt sem gerði
varpinu og tínslunni mjög gott, enda
þurrt vor það sem skiptir mestu til að
fá góðan dún. Í langverandi rigningu
eins og í ár geta kollurnar illa hlíft
eggjunum fyrir bleytu og þó að það
rigni ekki í mitt hreiðrið síast alltaf
bleyta í dúninn og eggin og slíkt
spillir varpinu.“
Talsvert af dauðum máfi
í fjörunum
Þegar Valgeir er spurður hvort hann
hafi nokkuð orðið var við mikið af
dauðum fugli í vor og vísað er til
fuglaflensu segir hann alltaf finnast
eitthvað af dauðum fuglum á hverju
vori.
„Fjöldi dauðra æðarfugla í
eyjunni er svipaður og undanfarin ár
og ég hef ekki tengt það sérstaklega
við fuglaflensu. Mér finnst aftur á
móti vera meira af dauðum máfi
í fjörunum en hef haldið mig frá
hræjunum og ekki verið að skoða
þau neitt sérstaklega.“
Refur í fyrsta sinn
vargur í Árnesey
Að sögn Valgeirs var refur í fyrsta
sinn vargur í Árnesey í fyrravor að
hans viti. „Í fyrravor urðum við vör
við mikið af eggjum sem voru grafin
í sand víða í eyjunni eins og refir
gera. Auk þess sem það er óvanalegt
að refur syndi langar leiðir.
Í þessu tilfelli var um að ræða
stekk á greni í landi sem hafði
greinilega synt margar ferðir út í eyju
til að komast í æti fyrir yrðlingana
en fékk að lokum óblíðar viðtökur
og var felldur,“ segir Valgeir
Benediktsson æðarbóndi. /VH
Dún safnað í Árnesey í Árneshreppi. Mynd / Hrefna Þorvaldsdóttir.
Árnesey í Árneshreppi:
Fuglinn skilaði sér seint
Helstu æðarræktarstaðir á landinu.
Margrét Rögnvaldsdóttir, for-
maður Æðarræktarfélags Íslands,
hreinsar dún.
Fuglinn hefur stundum verið byrjaður að setjast upp í Árnesey í apríl.
Mynd / Þórdís Una Gunnarsdóttir