Bændablaðið - 23.06.2022, Side 34

Bændablaðið - 23.06.2022, Side 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2022 LÍF&STARF Hreinn Halldórsson, alþýðu- listamaður á Akureyri, hefur undanfarinn rúman áratug verið iðinn við að skapa persónur í öllum helstu sígildu ævintýrunum auk fleiri þekktra sem óþekktra í styttuformi. Þeim hefur hann komið fyrir úti í garði við hús sitt í Oddeyrargötu 17 á Akureyri. Mikil ásókn hefur verið meðal ferðamanna að líta inn í garðinn og tók Hreinn skrefið nú í byrjun sumars og opnaði aðgengi að garði sínum. Garðurinn verður opinn í allt sumar frá kl. 10–21 og gefst áhugasömum kostur á að ganga um þetta forvitnilega einkagallerí. Aðgangur er ókeypis og fólki er velkomið að mynda verkin að vild. „Ég ákvað að taka skrefið til fulls núna í sumar og hafa garðinn bara opinn fyrir alla sem vilja skoða,“ segir Hreinn. Fararstjórar sem voru á ferðinni með hópa sína um bæinn höfðu gjarnan samband og óskuðu eftir að koma í garðinn. „Þetta var orðið nokkuð mikið og fór vaxandi þannig að ég hef bara opnað garðinn fyrir gesti og gangandi.“ Í garðinum eru styttur af hinum ýmsu ævintýrapersónum, íslenskum jafnt sem erlendum. Helstu persónur úr sígildu ævintýrunum eins og Mjallhvíti og dvergana sjö er þar að finna sem og Þyrnirós og prinsinn, Rauðhettu og úlfinn, Gosa, pabba hans og köttinn þeirra, Hróa Hött og eyfirsku hjónakornin Helga magra og Þórunni hyrnu. Fyrstu stytturnar sem Hreinn gerði, Guðrún frá Lundi og Sigurður, sem áður var garðyrkjumaður en uppfærðist í sýslumann eftir fataskipti, eiga sinn skjólgóða reit undir hávöxnu tré í garðinum. Þá má líka finna Lagarfljótsorminn og ein furðuvera varð til þegar fella þurfti tré í garðinum vegna snjóþunga og einn búturinn var að sögn Hreins upplagður til að útbúa höfuð úr. Við öll verkin er stuttur texti á íslensku og ensku. Ótrúlega gaman og gefandi Hreinn segist hafa verið við þessa iðju undanfarin 12 til 13 ár. Hann bjó í Reykjavík í 26 ár en flutti norður árið 2006. „Ég byrjaði á að gera upp húsið og síðan garðinn. Eftir það gafst tóm til að sinna sköpunarþörfinni og ég byrjað eiginlega fljótlega á fullu við að smíða þessar ævintýrastyttur, mála þær og skreyta. Ætli megi ekki segja að þetta sé uppsöfnuð þörf, ég hafði enga aðstöðu fyrir sunnan til að sinna verkefnum af þessu tagi og þegar ég hafði bæði góða aðstöðu og tíma hófst ég handa,“ segir hann. „Þetta er ótrúlega gaman og gefandi, mikil vinna við hverja styttu, enda er ég oft upptekinn við allra handa smáatriði í skreytingunum.“ Hreinn lét af störfum nú nýverið og sér fram á aukin afköst við smíðavinnuna. „Ég mun eiga margar góðar stundir við smíðavinnuna og sé fram á að bæta enn við í garðinn,“ segir hann og veltir í gamni fyrir sér hvort hann þurfi ekki fljótlega að leggja undir sig næstu garða. „Það gefur mér mikið að sjá gleði gestanna sem fara hér um, þeir staldra við hjá styttunum, rifja gjarnan upp ævintýri og upplifa augnablik úr bernsku sinni þegar ævintýrin voru lesin,“ segir hann. Oft bíður poki á húninum Hreinn leitar fanga víða, finnur oft ýmsa dýrgripi í verslun Hertex á Akureyri sem og í Fjölsmiðjunni en einnig hefur hann gengið fjörur og ævinlega komið heim með heilmikinn feng úr þeim ferðum. Þannig geta netadræsur orðið að hári þegar búið er að lita og setja upp á fagran koll. Hann segir að talsvert sé um að fólk gauki að sér dóti sem fái ævinlega eitthvert hlutverk í smíða- eða skreytivinnu hans. „Það kemur oft fyrir að bíði mín poki með dóti þegar ég kem heim og ég veit ekkert hver hefur hengt hann á húninn. Ég finn fyrir miklum velvilja og er þakklátur fyrir hann. Þegar fólk hefur komið í garðinn og skoðað verkin mín sér það að ég get nýtt nánast allt,“ segir Hreinn. /MÞÞ Hreinn Halldórsson, alþýðulistamaður á Akureyri: Gestum boðið í ævintýragarð Á síðasta ári gaf Guðrún Bjarna- dóttir, eigandi Hespuhússins í Ölfusi, út Flóruspilið sem er stokkur með myndum og texta sem spila má með veiðimann. Hugmyndin með spilinu er að auka plöntuþekkingu þjóðarinnar. Guðrún segir að móttökur á spilinu hafi farið fram úr væntingum og að hún hafi því ákveðið að gefa spilið út aftur með þrettán nýjum tegundum. „Með Flóruspilinu er hugmyndin að fólk geti fræðst um grasnytjar og þjóðtrú jurtanna í leiðinni. Hugmyndin er að gefa út stokk á ári um flóruna í eitt til tvö ár í viðbót og halda svo jafnvel áfram með fræðsluspil í öðrum flokkum. Satt best að segja eru möguleikarnir óendanlegir.“ Blómaspilið er einföld barna- útgáfa af Flóruspilinu þar sem spilað er samstæðuspil með jurtunum. Að sögn Guðrúnar eru ung börn mjög móttækileg fyrir upplýsingum og eru fljót að læra tegundaheitin út frá myndunum. Blómaspilið er á íslensku, ensku og pólsku í sama stokki en Flóruspilið er á þessum tungumálum í aðskildum stokkum. Spilið og stokkinn skreytir falleg mynd eftir listamanninn Eggert Pétursson. /VH Guðrún Bjarnadóttir með Flóru- og blómaspilið. Mynd / Aðsend Flóruspilið með 13 nýjum tegundum: Grasnytjar og þjóðtrú Hér er Hreinn með Öskubusku og prinsinum. Myndir / MÞÞ Saga þurfti niður tré í garðinum eftir að það skemmdist vegna snjóþunga. Einn búturinn varð að andliti þessarar fínu ævintýrakonu. Tannburstar nýtast hér vel, bæði sem axlapúðar og skraut á pilsi. Piltur og stúlka eru á meðal þeirra sem prýða garðinn. Hrossabændur - Hestamenn! Vantar hross til slátrunar á næstu vikum. HÆKKAÐ VERÐ Í haust munu verða langir biðlistar forðumst þá Sláturpantanir í síma 480 4100 Sláturfélag Suðurlands Selfossi

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.