Bændablaðið - 23.06.2022, Blaðsíða 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2022
„Það eru blikur á lofti, því er
ekki að neita. Allir stórir liðir í
rekstrarkostnaði bænda hafa verið
og eru enn að hækka gríðarlega.
Tvöföldun hefur orðið á áburðar-
verði á einu ári, kjarnfóðurverð fer
stighækkandi og allt eins líklegt að
það hækki enn meira.
Ekkert lát er á olíuverðshækkunum
en olía er stór liður í rekstri bænda
og við sjáum í raun ekki fram á
annað en hækkanir áfram. Það dynja
yfir hækkanir á öllum sviðum, en
vissulega má líka segja að í öllum
aðstæðum, sama hversu slæmar þær
eru, felist líka tækifæri.
Ég sé fyrir mér að fólk skynji
betur en áður hversu mikilvægt er
að stunda öflugan landbúnað hér
á landi. Reynslan undanfarin ár
kennir okkur að meta hann betur.
Eftir efnahagshrunið 2008 hefur
landbúnaður, ef svo má segja,
fengið uppreist æru. Nýafstaðinn
heimsfaraldur og stríð í Úkraínu
með margvíslegum neikvæðum
áhrifum hefur opnað augu manna
fyrir því að stefna ætti að því að
hafa sjálfsnægtarhlutfall sem hæst
hjá hverri þjóð. Við Íslendingar
gætum sem dæmi aukið grænmetis-
og kornframleiðslu okkar, en til að
bændur geti farið í aukna kornrækt
er nauðsynlegt að komið verði upp
kornhlöðum sem tækju á móti korni,“
segir Halldóra Kristín Hauksdóttir,
sem sæti á í stjórn Bændasamtaka
Íslands. Hún er lögmaður hjá
velferðarsviði Akureyrarbæjar
og eggjabóndi hjá Grænegg í
Sveinbjarnargerði sem hún rekur
ásamt systur sinni og mági og
þá er hún varaformaður stjórnar
Byggðastofnunar.
Halldóra er fædd og uppalin á
Svalbarðsströnd, en bjó í vesturbæ
Reykjavíkur yfir vetrarmánuðina og
gekk í Melaskóla og Hagaskóla. Hún
tók stúdentspróf frá Menntaskólanum
á Akureyri og lauk lögfræðiprófi
frá Háskólanum á Akureyri árið
2008. Eftir nám starfaði hún hjá
sýslumanninum í Vestmannaeyjum,
en öðlaðist málflutningsréttindi árið
2013 og hóf þá störf á lögmannsstofu
á Akureyri sem hún síðar varð
meðeigandi að. Þá hóf hún MBA
nám haustið 2017 samhliða sínum
störfum, hún brautskráðist úr því árið
2019 og hóf í millitíðinni störf hjá
Akureyrarbæ.
Félagsmálin heilluðu
„Ég var mjög ung þegar ég ákvað
að verða lögfræðingur,“ segir hún
en dreymdi þó fyrst um að verða
rannsóknarlögga. Áhrifin telur hún
að rekja megi beint til dálætis hennar
á sjónvarpsþáttunum Derrick og
Matlock. Halldóra hefur um ævina
verið mikil félagsvera og tekið
virkan þátt í ýmiss konar félagsstarfi.
Lögfræðimenntun nýtist vel í alls
konar störfum.
„Félagsmál hafa alltaf heillað
mig, þessi áhugi er mér örugglega
í blóð borinn. Pabbi minn, Haukur
Halldórsson, var félagsmálatröll og
að alast upp á slíku heimili hefur
mikil áhrif, endalausar umræður
um samfélagsmál, fólk að skiptast
á skoðunum og allir hafa brenn-
andi áhuga á að gera samfélagið
okkar betra.“
Systur tóku við eggjabúskapnum
Halldóra hefur um árabil tekið þátt
í rekstri eggjabúsins Grænegg í
Sveinbjarnargerði á Svalbarðsströnd.
Það rekur hún nú með systur sinni
og mági, Heiðu Hauksdóttur og
Pétri Jónatan Kelley. Faðir systranna
hafði rekið eggjabúið Gerði og þar
kom að hann komst á aldur og ætlaði
að hætta.
„Þá kom þessi hrökkva eða
stökkva-tilfinning upp hjá okkur
systrum. Húsin voru komin á tíma
og miklar endurbætur fram undan
ef halda ætti rekstri áfram. Ég
bjó í Vestmannaeyjum og Heiða í
Noregi,“ segir Halldóra, svo það lá
kannski ekki beinast við að taka við
rekstrinum.
Sú varð þó raunin, systurnar
fluttu norður ásamt fjölskyldum
og hófu eggjaframleiðslu, stofnuðu
félagið Grænegg sem tók við
eggjaframleiðslu Gerðis um haustið
árið 2012.
„Við byrjuðum strax á miklum
framkvæmdum, það þurfti að
aðlaga allt að breyttu regluverki,
en við tókum við bústofni og
fengum endurnýjaðar heimildir til
framleiðslu, sölu og dreifingar á
eggjum,“ segir hún.
Í kjölfar þess að horfið var frá
búreldi og farið í vistvæna framleiðslu
var varpfugli tímabundið fækkað
úr 10 þúsund fuglum í 4 þúsund.
Vistvæna framleiðslan, eins og hún
var nefnd í þá daga, krafðist þrisvar
sinnum meiri gólfflatar.
Sýn fjölskyldunnar hefur
ávallt verið sú að gera aðbúnað
hænsnanna sem bestan á hverjum
tíma og að lágmarka alla mengun
fyrir umhverfið sem kostur er.
Varphænum fjölgað eftir stækkun
Halldóra segir að hún hafi að mestu
verið á hliðarlínunni í búskapnum
allt til ársins 2018 þegar hún og
maður hennar skildu og hún keypti
hann út úr rekstrinum. Þá hafi hún
komið sterkar inn. Pétur, mágur
hennar, sér um daglegan rekstur en
hann er smiður og liðtækur í öllum
verkum sem til falla. Halldóra er
meira í því sem er út á við, sinnir
viðskiptasamböndum, samskiptum,
starfsmannamálum og fleiru slíku.
Helgarvinnunni skipta þau á
milli sín og börnin eru dugleg að
hjálpa til, auk þess sem núverandi
sambýlismaður hennar, Eggert
Sæmundsson, hefur einnig komið
að rekstri búsins.
Eggjabúið var stækkað árið
2018, m.a. var byggt nýtt varphús
og varphænum fjölgað úr 7.500 í
rúmlega 11 þúsund. Hver varphæna
verpir um það bil 18 til 20 kg á ári.
Allar hænur hafa frjálsan aðgang að
fóðri og vatni allan sólarhringinn.
„Þegar framkvæmdum við
stækkun lauk hófumst við handa
við að endurbæta hús sem tekið
hafði verið úr notkun, en við sáum
hagræði í því að ala okkar fugla upp
sjálf, þ.e. að fá þá eins dags gamla
til okkar frá stofnbúunum og hafa
inni á gólfi hjá okkur frá fyrsta degi.
Við byrjuðum á því fyrirkomulagi í
mars árið 2020 og það hefur gengið
ótrúlega vel,“ segir Halldóra.
Neytandinn er besta eftirlitið
Halldóra segir stærð búsins henta
vel fyrir tvær fjölskyldur.
„Þetta er lítið fjölskyldubú og við
viljum halda í þá ímynd,“ segir hún.
Grænegg hafa það fyrirkomulag að
bjóða fólk velkomið að skoða.
„Við höfum lengi sagt,
sérstaklega eftir „Brúneggjamálið“,
að neytandinn sé besta eftirlitið. Í
lokinu á eggjabökkunum okkar er
hálfgerður boðsmiði í heimsókn
og margir hafa nýtt sér þennan
möguleika og haft gaman af. Við
erum með aðstöðu þar sem fólk
getur horft á hænurnar í gegnum
gler og séð hvernig fer um þær,“
segir Halldóra og bætir við að gott
sé auðvitað að láta vita af sér áður
svo einhver sé heima við.
Halldóra segir að hjá Grænegg sé
hugsað í lausnum þegar kemur að
því að kolefnisjafna búskapinn. Búið
er að skipuleggja reit á jörðinni þar
sem til stendur að planta trjám, en
það sé einn liður af mörgum.
Næsta verkefni sem þau ætli sér
að takast á við, sem vonandi verði
sem fyrst að veruleika, er að nýta
skítinn sem til fellur með öðrum
hætti en að bera hann á túnin.
Hún segir að þær systur hafi
verið saman í MBA námi og skrifað
sameiginlega lokaritgerð sem bar
heitið: Er úrgangur auðlind?
„Þar settum við fram viðskipta-
hugmynd um að hefja framleiðslu
á lífrænum áburði fyrir innlendan
markað. Niðurstaðan úr okkar
rannsókn var að gríðarleg sóknarfæri
eru á þeim vettvangi, svo það er
spurning hvernig mál þróast, hvað
úr verður.“
Stolt af þeim félagsanda
sem ríkir meðal bænda
Halldóra hefur starfað í stjórn
Bændasamtaka Íslands frá árinu
2020, en hún var fulltrúi eggjabænda
á Búnaðarþingi það ár og var skorað
á hana að gefa kost á sér. Á því
þingi stóð til að fara í breytingar á
félagskerfi bænda og í því hafi falist
mikil áskorun sem hún var tilbúin
að taka þátt í.
„Mín upplifun var sú að
Bændasamtökin væru að veikjast og
mér fannst ákveðin tímamót þarna
til að gera eitthvað, því ég trúi því
að sameiginleg samtök bænda hafi
sterkari rödd og meira vægi, sem
skilar sér í auknum framförum og
hagsæld fyrir íslenskan landbúnað,“
segir hún. Þá hafði hún áhyggjur
af hvert stefndi með fjárhag Hótel
Sögu og Bændahallarinnar, en
kórónuveirufaraldurinn lagðist yfir
LÍF&STARF
Halldóra Kristín Hauksdóttir, stjórnarmaður í Bændasamtökum Íslands og eggjabóndi hjá Grænegg:
Áskoranir skapa tækifæri
– „Sameiginleg samtök bænda hafa sterkari rödd og meira vægi, sem skilar sér í auknum framförum og hagsæld fyrir íslenskan landbúnað“
Halldóra Kristín Hauksdóttir situr í stjórn Bændasamtaka Íslands, hún er lögfræðingur hjá velferðarsviði
Akureyrarbæjar og rekur í félagi við systur sína og mág eggjabúið Grænegg í Sveinbjarnargerði á Svalbarðsströnd.
Margrét Þóra Þórsdóttir
mth@bondi.is
Varphænur vappa um húsakynni sín í Sveinbjarnargerði.