Bændablaðið - 23.06.2022, Page 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2022
Skógtæknisýningin Elmia Wood,
er haldin fjórða hvert ár í sveita-
héraðinu Vaggeryd í Svíþjóð.
Hlynur Gauti Sigurðsson, sér-
fræðingur hjá Bændasamtökum,
var á staðnum og gerir hér hátíð-
inni skil.
Á rólegheitadegi tekur um hálfa
klukkustund að keyra þangað frá
borginni Jönköping. Í þeirri borg
er gata sem heitir Elmia-vegur en
betra er að rugla þeirri götu ekki
saman við sýninguna, þó svo að
hún eigi gatnamót við Húskvarna-
veg (Íslendingar þekkja Husqvarna
vörumerkið vegna keðjusaga og
saumavéla).
Sýningartími Elmia Wood er
venjulega í byrjun júní og stendur
yfir í þrjá daga frá fimmtudegi fram
á laugardag. Í ár var hún 2.–4. júní.
Þessa vikuna hafði hópur
íslenskra, danskra og sænskra nema
í viðarvinnslu í verkefninu TreProX
verið í Smálöndum Svíþjóðar.
Hópurinn mætti á föstudeginum og
tvístraðist í allar áttir yfir 200 hektara
sýningarsvæði og blönduðust við
hina 30.000 gestina þann daginn.
Skipta mátti svæðinu gróflega
upp í þrjú svæði. Sýningarsvæðið
við innganginn er ævinlega erilsamt
enda sýningarbásar þar smáir og
margir. Stór hringur er um skóginn
þar sem stóru græjurnar er að sjá.
Á síðasta sértæka svæðinu voru
skógarhöggsvélar að grisja skóga.
Það er kúnstugt að gera risastórri
alþjóðlegri sýningu sem Elmia Wood
skil. Allt er svo stórt og svo mikið
er um að vera. Hér nefni ég það
sem mér þótti áhugaverðast, af því
sem ég náði að kynna mér, og hef
jafnframt til hliðsjónar það sem
gagnast gæti lítilli skógarþjóð sem
Ísland er.
Tæknilegar lausnir einkennandi
Það sem einkenndi sýninguna í ár
voru tæknilegar lausnir til að ná
náttúruvænni orkuhagkvæmni, svo
sem batterí framtíðarinnar.
Daniel Källström hjá Cramer
sagði frá ofur rafhleðslum sem
verkfærin þeirra eru drifin á. Í stuttu
máli gengur þeirra tækni út á að
hlaða rafhlöður með volt-stundum
en ekki amper-stundum. Þannig
má ná fram meiri krafti og úthaldi
í minni hýsingu, en það er það sem
markaðurinn biður um.
Nokkur vörumerki lítilla skógar-
höggsvéla eru á markaðnum í dag
en Malva hefur komið nýrri vél á
markað sem gæti hugsanlega verið
sniðin fyrir íslenska skóga. Um er
að ræða litla skógarhöggsvél sem er
alfarið knúin rafmagni. Hún er mjög
umhverfisvæn og hljóðlát. Meira
að segja glussavökvinn í henni er
náttúruvænn.
Í nokkur ár hefur Portablewinch
verið með lítil útdráttarspil á
markaði. Þau henta t.d. einyrkjum
í skógarhöggi vel við að draga
út efni í girðingarstaura í einum
drætti. Hingað til hafa spilin verið
bensínknúin en nú eru rafmótorarnir
að koma sterkir inn.
Stubbatætarar verða sífellt vinsælli
um heim allan. Eistneska fyrirtækið
Dipperfox kynnti afkastamiklar
gerðir af stubbatæturum fyrir gröfur.
Meðaltæting á venjulegum (stórum
á íslenskan mælikvarða) stubbi eru
20 sekúndur.
Tom Fox hjá Logosol er mikill
Íslandsvinur. Af mörgum ágætum
merkjum stórviðarsaga er Logosol
eitt það útbreiddasta um veröld alla
með umboðsaðila í 62 löndum og í
öllum ríkjum Bandaríkjanna.
BioVarme selur viðarkyndara af
ýmsum gerðum. Svona kyndarar
henta bæði stórum fyrirtækjum sem
smærri heimilum. Þeir hafa selt
þúsundir kyndara til bænda í Svíþjóð
enda skilvirkar græjur sem nýta orku
viðarins mjög vel.
Þegar kom að nýjustu tækni í
heimi landmælinga og skógmælinga
var fátt nýtt að frétta hvað varðar
hugbúnaðarlausnir. Helstu nýjungar í
heimi dróna eru endingarbetri batterí
og nákvæmari mælingar en það er
framvinda sem eiginlega var fyrirséð.
Þetta voru örlítil vonbrigði fyrir
greinarhöfund en vonandi verður
eitthvað nýtt næst.
Arboristar áberandi
Aldrei hafa trjáklifrarar (arboristar)
verið eins áberandi og nú en
Husqvarna var með mjög tilkomu-
mikinn bás þar sem fólk ferðaðist upp
og niður tré og virtist ekkert hafa fyrir
því. Þarna var á ferðinni þjálfað fólk
í trjáklifri en svona iðja er alls ekkert
grín. Það má ekkert út af bregða.
Södra var með stóran og
huggulegan bás þar sem fólk
staldraði við, fékk sér kaffi og
naut augnabliksins. Södra er í eigu
skógarbænda í Suður-Svíþjóð og
hefur haft veg og vanda af því að
aðstoða skógarbændur með allt sem
viðkemur skógrækt, svo sem að grisja
fyrir þá og koma timbrinu í verð svo
allir uni glaðir við sitt.
Þó nokkrir plöntuframleiðendur
voru að kynna sitt starf og sínar
lausnir. Þeir gera sér algerlega grein
fyrir mikilvægi þess að hafa nægt
framboð plantna og sagði hinn
finnski Timo Salminen hjá FinForelia
að plöntueftirspurn væri að aukast
allt í kringum Finnland. Á öllum
fjórum gróðrarstöðvum þeirra voru
þeir að auka framleiðsluna, líka hjá
jólasveininum í Lapplandi.
LÍF&STARF
Fræðsludagskrá
landvarða
Landverðir bjóða upp á fjölbreytta dagskrá í
þjóðgarðinum í sumar. Fræðslugöngur,
viðburðir og barnastundir. Dagskrána má
finna á vefsíðu þjóðgarðsins eða með því að
skanna QR kóðann hér að neðan.
Velkomin öll í Vatnajökulsþjóðgarð
Skógræktarsýningin Elmia Wood:
Alltaf stuð í skóginum
Í fjarska má sjá bílastæðin, þar næst innganginn og loks bróðurpart smábásasvæðisins. Myndir / Hlynur Gauti Sigurðsson
Rafmagnsknúin skógarhöggsvél frá Malva.
Arboristar hjá Husqvarna klifra upp í
tré eins og íkornar.