Bændablaðið - 23.06.2022, Blaðsíða 48

Bændablaðið - 23.06.2022, Blaðsíða 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2022 Ljubljana í Króatíu er falleg borg með mörgum almenningsgörðum og stórum götutrjám. Frægastir eru Tívolí almenningsgarðurinn og grasagarðurinn. Gróðurinn í borginni, ekki síst trén, eru stæðileg og iðjagræn. Volčji Potok trjásafnið í Slóveníu nær yfir 85 hektara og er um 20 kílómetra norðaustur af Ljubljana og því þarf að gefa sér góðan tíma til að heimsækja og skoða garðinn. Í garðinum er meðal annars að finna 4.800 tré, 1.200 afbrigði af rósum og um tvær milljónir túlípana. Auk fjölda afbrigða og yrkja af lyngrósum og vatnaliljum. Kastaníur og linditré Tívolí er stærsti almenningsgarðurinn í Ljubljana, um fimm ferkílómetra, og í borginni miðri. Garðurinn var upphaflega margir litlir garðar sem voru sameinaðir árið 1813.Garðurinn er vinsælt útivistarsvæði borgarbúa þar sem gott er að hlaða batteríin og njóta veðurblíðunnar sem einkenndi borgina flesta dagana sem ég dvaldi þar í lok maí. Kastaníur eru einkennistré garðsins og reyndar helsta götutré Ljubljana, þrátt fyrir að Slóvenar líti á lind sem sitt þjóðartré. Í garðinum eru göngu- og hjólastígar og líka litrík blómabeð, gosbrunnar og styttur af frægum körlum. Elsta vísindastofnun landsins Grasagarðurinn í Ljubljana var formlega stofnaður 1810 og var þá 33 hektarar að stærð og kallaðist Þjóðarflórugarðurinn þegar fyrsta linditréð var gróðursett þar. Linditréð stendur enn og er garðurinn elsta samfellt starfandi vísinda- og menntastofnun í Slóveníu og einn elsti grasagarður í Suðaustur-Evrópu. Árið 1991 var garðurinn friðaður með sérstökum lögum. Markmiðið með garðinum, er líkt og annarra grasagarða vísast í heiminum, að safna á einn stað innlendum og erlendum plöntum til rannsókna og fræðslu og á sama tíma varðveita sjaldgæfar plöntur í útrýmingarhættu og viðhalda líffræðilegri fjölbreytni fyrir komandi kynslóðir. Þrátt fyrir að garðurinn sé ekki nema tveir hektarar að stærð í dag er hann fjölbreytilegur Þar er meðal annars glæsilegt hita- beltisgróðurhús, þjónustu- og upp- lýsingamiðstöð, uppeldisaðstaða fyrir gróður, notalegt kaffihús og hátt í fimm þúsund tegundir af plöntum víðs vegar að úr veröldinni og af þeim eru um þriðjungur upprunnar í Slóveníu. Gróðrinum í garðinum, sem í dag kallast formlega Háskólagrasagarðurinn í Ljubljana, er raðað upp eftir skyldleika og náttúrulegri þörf hans og þar er einnig að finna safn nytjaplantna og lækningajurta. Hitabeltishúsið var byggt og opnað árið 2010 í tilefni af 200 ára afmæli garðsins. Notaleg óreiða Býflugnaeldi á sér langa sögu í Slóveníu og í Ljubljana er að finna um 4.500 manngerð býflugnabú sem er ætlað að gera flugunum lífið auðveldara og safna hunangi. Eitt það fyrsta sem ég tók eftir þegar ég kom í grasagarðinn var hversu beðunum í honum er mátulega haldið við. Beðin eru notalega illa hirt án þess að vera vanhirt. Ástæðan fyrir þessu er að grasagarðurinn er hluti af því sem kallað er býflugnaleiðin sem liggur í gegnum garða í Ljubljana og er viðleitni í því að vernda býflugur og gefa þeim færi á að komast í villt blóm sem víðast í borginni. Hitabeltið í Slóveníu Hitabeltisgróðurhúsið er sérhannað, 533 fermetrar að flatarmáli og fimm þúsund rúmmetrar að stærð og þar er að finna hátt í 400 tegundir plantna frá hitabelti Suður-Ameríku, Eyjaálfunni, Ástralíu, Afríku og Asíu sem þrífast við hátt hita- og rakastig. Plöntur frá Afríku eru hafðar syðst í húsinu til að tryggja að þær fái sem mest af sól. Gengið er inn í gróðurhúsið frá lítilli fræðslu- og upplýsingamiðstöð garðsins og þrátt fyrir að hitastigið í Ljubljana hafi verið hátt á íslenskan mælikvarða var eins og að ganga á rakan vegg að stíga inn í húsið. Um húsið eru göngustígar meðfram beðunum sem eru án botns og teygja rætur sumra trjánna sig undir húsið og út í garðinn í kringum það. Sumar tegundirnar eru þekktar potta- eða nytjaplöntur en aðrar framandi og nýstárlegar. Til dæmis bananaplöntur, sagó- og kögurpálmar og trjáburknar, brómelíur og burknar, svo og begóníur og engifer sem undirgróður. Hæstu trén og klifurplönturnar ná allt að tólf metra hæð þar sem húsið er hæst og verulega gaman að ganga eftir fimm metra hárri loftbrú hússins sem liggur eftir því miðju og horfa niður á og niður eftir plöntunum. Innan um eru svo lægri plöntur og tjörn með nílarsefi, Victoriu-vatnalilju og öðrum vatnagróðri. Eitt af því sem vakti athygli mína í húsinu er hversu hátt rifblaðka, eða monstera, getur vaxið hafi hún góð skilyrði og hve stór blöð mánagulls eru þar sem vel fer um það. Frá hitabelti Suður-Ameríku eru í húsinu meðal annars kakótré, ananas, avakadó og margar tegundir af klifurplöntum, eins og passíublóm og vanilluorkidea sem vaxa upp eftir uppistöðum hússins eftir uppgöngu og handriði loftbrúarinnar. Af tegundum upprunnum í Asíu má nefna margs konar fíkusa eins og benjamín- og fiðlufíkus, glithala, havaí- og sólroðablóm. Afríkutegundir eru meðal annarra kaffitré, blóm paradísarfuglsins, blossatré, papírus og blóðlilja. Gamla uppeldishúsið Sambyggt í fræðslu- og upp- lýsinga miðstöðina, við hliðina á hitabeltishúsinu er gamalt uppeldisgróðurhús garðsins sem í dag geymir ýmsar pottaplöntur eins og orkideur, gyðinginn gangandi, kaktusa og annað fínerí. Sumar plönturnar, margar mjólkurjurtir, kaktusar og paradísartré, eru fluttar út snemma í maí og hafðar úti þar til um miðjan eða lok október og fara vel á stéttinni framan við upplýsingamiðstöðina. Heilagt tré Slóvenar líta á lind sem heilagt tré frá fornu fari og þjóðartré sitt enda það sagt vera lífstréð, tré visku og réttlætis og veita fjölskyldum sem bjuggu í nálægð við það vernd og velsæld. Víða um landið eru linditré staðsett í miðju þorpa og við kirkjur sem voru byggðar nálægt gömlum LÍF&STARF Garðar og gróður í Slóveníu: Iðjagræn fegurð og ævintýraleg tré Pottaplöntur í gamla uppeldishúsinu. Myndir / VH Grein af linditré, Tilia cordata. Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is Hitabeltisgróðurhúsið í grasagarðinum í Ljubljana. Slegið í sólinni. Oddabjörk, Betula alnoides. Mánagull. Partinaca sativa L. var fleischmanni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.