Bændablaðið - 23.06.2022, Qupperneq 49

Bændablaðið - 23.06.2022, Qupperneq 49
49Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2022 trjám áberandi í slóvensku landslagi enda geta evrópsk linditré orðið yfir tíu alda gömul. Í eina tíð voru trén bæði samkomu- og helgistaður þar sem fólk safnaðist saman undir greinum þess til að hlýða á dóma, taka sameiginlegar ákvarðanir, dansa, syngja, smella kossum og gleðjast. Í heiðni og frumkristni var til siðs að hengja fórnir á greinar linditrjáa og enn í dag er til siðs að strjúka stofni trésins þegar gengið er framhjá því til að auka á gæfu sína. Trén eru sögð vernda hús fyrir eldingum sem eru nokkuð tíðar í landinu og greinar sem settar voru í eða við glugga sagðar bægja frá nornum og illum öndum en bjóða hið góða velkomið í húsið. Þjóðsögur herma að víða í Slóveníu sé að finna falda fjársjóði sem féheldnir nískupúkar hafa grafið í jörð og gróðursett lindi- eða perutré ofan á gullinu til að merkja staðinn. Samkvæmt gamalli þjóðtrú gat linditré leitt saman tilvonandi brúðhjón. Ógift heimasæta í leit að eiginmanni gat á aðfangadag jóla farið að næsta linditré, faðmað stofninn og síðan brotið af því grein sem hún brenndi, því næst drakk hún öskuna í vatni um leið og hún bað tréð að finna fyrir sig álitlegan ektamann. Sagt er að öskulögurinn hafi gert rjóðar heimasætur enn glæsilegri en vanalega í augum karlkynsins. Viður linditrjáa er léttur og mjúkur og því góður í minni nytja- og listmuni, greinarnar má tága í körfur og skikkjur. Blóm og blöð voru notuð í lækningaskyni. Partinaca sativa L. var fleischmanni Í grasagarðinum og í hlíðunum við kastalann í Ljubljana finnst nípuafbrigði sem kallast Partinaca sativa L. var fleischmanni. Afbrigðið er sérstakt að því leyti að það hefur ekki fundist villt annars staðar í heiminum. Plantan er tvíær og nær um eins metra hæð, blöðin eru fjaðurlaga og sérstök að því leyti að þau eru þykkari og dekkri en almennt gerist hjá nípum. Afbrigðið er nefnt í höfuðið á grasafræðingnum Andrej Fleisch- mann sem uppgötvaði tegundina í hlíðum kastalans um 1820 og flutti eintak af henni í grasagarðinn. Nokkrum áratugum eftir að Fleischmann flutti plöntuna í grasagarðinn fannst hún ekki lengur í hlíðunum umhverfis kastalann og úrskurðuð útdauð í náttúrunni. Ástæða þess er meðal annars sögð vera ásókn grasafræðinga og plöntusafnara í eintak af plöntunni, að þeir hafi hreinlega eyðilagt vaxtarsvæði hennar. Fyrr á þessari öld var tegundinni plantað aftur í kastalahlíðinni og í Tívolí almenningsgarðinum þar sem hún dafnar ágætlega. Fyrir þann tíma hafði plantan lifað af í um 200 ár í umsjá garðyrkjumanna í grasagarðinum án þess að vekja teljandi athygli. Kaktusar og aðrir þykkblöðungar framan við þjónustu- og upplýsingamiðstöð grasagarðsins. Stæðileg rifblaðka. Nílarsef. Rætur beykis, Fagus sylvatica. FUSION Verð frá: 13.490.000 + vsk Framvél - F3100 - 2.790.000 + vsk. Afturvél - R3100 - 2.690.000 + vsk. Verð: 5.190.000 + vsk. GÆÐI I STYRKUR I ENDING Verð miðast við gengi EUR 138 Ef fram- og afturvél eru keyptar saman: TILBOÐ! Íslensk framleiðsla á Bílskúrs- og Iðnaðarhurðum 564-0013 | 865-1237
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.