Bændablaðið - 23.06.2022, Blaðsíða 51
51Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2022
Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing
og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020
eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is
Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Vegna aukinnar eftirspurnar óskum
við eftir bújörðum á söluskrá
STRANDSVÆÐISSKIPULAG
VESTFJARÐA
Félagsheimlinu Baldurshaga Bíldudal
Félagsheimilinu Bolungarvík
Hnyðju í Þróunarsetrinu Hólmavík
21. júní kl. 16:30-18:30
22. júní kl. 16:30-18:30
23. júní kl. 16:30-18:30
Frekari kynningarfundir verða auglýstir síðar.
Allir sem vilja sig láta varða skipulag svæðisins eru hvattir
til að kynna sér skipulagstillöguna. Allir sem þess óska geta
komið á framfæri ábendingum og gert athugasemdir við
skipulagstillöguna og umhverfismat hennar. Frestur til að
koma skriflegum athugasemdum á framfæri er til 15.
september 2022.
Athugasemdum skal skilað bréflega til Skipulagsstofnunar,
Borgartúni 7b, 105 Reykjavík, með tölvupósti á netfangið
hafskipulag@skipulag.is eða um athugasemdagátt á
www.hafskipulag.is.
Svæðisráð Vestfjarða
Nánari upplýsingar má nálgast á hafskipulag.is.
Fyrir liggur tillaga að Strandsvæðisskipulagi Vestfjarða 2022
sem kynnt er samkvæmt 12. gr. laga um skipulag haf- og
strandsvæða nr. 88/2018. Í skipulagstillögunni er sett fram
stefna um nýtingu svæðis sem nær yfir firði og flóa frá
Bjargtöngum í suðri að Straumnesi í norðri.
Skipulagstillagan ásamt umhverfismati er aðgengileg á
www.hafskipulag.is og liggur jafnframt frammi hjá
Skipulagsstofnun í Reykjavík og á skrifstofum
Vesturbyggðar, Tálknafjarðarhrepps, Ísafjarðarbæjar,
Bolungavíkurkaupstaðar, Súðavíkurhrepps og
Strandabyggðar.
Kynningarfundir um skipulagstillöguna verða haldnir á
eftirfarandi stöðum:
Skipulagsstofnun - Borgartúni 7b - 105 Reykjavík
VELKOMIN ÚT Í SKÓG
25. JÚNÍ 2022
#lifilundi
LÍF Í LUNDI
SJÁ NÁNAR Á WWW.SKOGARGATT.IS
er undan Orra frá Þúfu í Landeyjum
og Þoku frá Hólum.
Þrettán tíur
Nokkrar tíur litu dagsins ljós á
kynbótabrautinni en fyrir utan tíuna
sem Lýdía hlaut fyrir samstarfsvilja
hlaut Álfamær 10 fyrir skeið og
Sólfaxi frá Herríðarhóli hlaut 10
fyrir tölt og hægt tölt. Hann er einn
af þremur hrossum sem hefur hlotið
10 fyrir þessa eiginleika í sama dómi
og eini núlifandi stóðhesturinn, en hin
hrossin eru Katla frá Ketilsstöðum og
Arion frá Eystra-Fróðholti. Sólfaxi er
sex vetra undan Óskasteini frá Íbishóli
og Hyllingu frá Herríðarhóli sem er
undan Herkúles og Hamingju, bæði
frá Herríðarhóli.
Það var Árni Björn sem sýndi
Sólfaxa en hann hlaut fyrir sköpulag
8,69 og fyrir hæfileika 8,41 sem gerir
8,51 í aðaleinkunn. Ræktandi Sólfaxa
er Ólafur Arnar Jónsson en eigandi er
Grunur ehf. og Anja Egger-Meier. Níu
hross hafa hlotið 10 fyrir eiginleika
í sköpulagi, ein fyrir höfuð, Valdís
frá Auðsholtshjáleigu og átta fyrir
prúðleika; Sindri frá Lækjamóti,
Spennandi frá Fitjum, Kórall frá Hofi á
Höfðaströnd, Teningur frá Víðivöllum
fremri, Grettir frá Ásbrú, Lína frá
Efra-Hvoli, Blesi frá Heysholti og
Léttir frá Þóroddsstöðum.
Hæst dæmdi klárhestur landsins
Mette Mannseth sýndi Hannibal
frá Þúfum í byrjun júní og hlaut
hann fyrir sköpulag 8,66 og fyrir
hæfileika 8,69 en það gerir 8,68 í
aðaleinkunn. Hannibal er því hæst
dæmdi klárhesturinn staðsettur á
Íslandi. Hann er þriðji hæst dæmdi
klárhestur í heimi á eftir þeim Kveik
frá Stangarlæk 1 (8,76) og Arthúri frá
Baldurshaga (8,69) en bæði Arthúr og
Kveikur eru nú í Danmörku.
Konsert með flest sýnd afkvæmi
Konsert frá Hofi á flest sýnd afkvæmi
það sem af er ári, eða 43 afkvæmi, sem
hlotið hafa fullnaðardóm á árinu, ef
skoðuð eru bara þau hross sem sýnd
hafa verið á Íslandi eru þau 39 talsins.
Þegar skoðuð er sýningarskrá fyrir
Landsmót inn á WorldFeng standa
þar efst afkvæmi Konserts í flokki 6
vetra stóðhesta, Magni frá Stuðlum,
og í flokki 6 vetra hryssna, Díva frá
Austurási. Díva hlaut í aðaleinkunn
8,77 en það var Aðalheiður Anna
Guðjónsdóttir sem sýndi Dívu og
Magni hlaut 8,56 í aðaleinkunn en
það var Árni Björn Pálsson sem sýndi
hann. Næstir í röðinni hvað varðar
fjölda sýndra afkvæma eru þeir Skýr
frá Skálakoti með 38 afkvæmi (36 á
Íslandi) og Spuni frá Vesturkoti með
36 afkvæmi (30 á Íslandi).
Ótrúlegur árangur hjá
Garðshorni á Þelamörk
Birna Tryggvadóttir Thorlacius og
Agnar Þór Magnússon eru á bakvið
ræktunina á Garðshorni á Þelamörk.
Þó það sé erfitt að draga eitt ræktunarbú
út eftir árangur vorsins þá verða þau
að fá smá úttekt þar sem efstu hrossin í
4 vetra flokki hryssna og 4 vetra flokki
stóðhesta er ræktuð af þeim og þeir
Adrían og Leynir eru báðir í mikilli
sókn að vinna Landsmót, hvor í sínum
gæðingaflokknum.
Leynir frá Garðshorni á Þelamörk og knapi hans Eyrún
Ýr Pálsdóttir þykja sigurstrangleg í A flokki á Landsmóti
hestamanna í byrjun júlí.
Gandi er mældur 157 cm á hæð á herðakamb en ekkert
íslenskt hross hefur verið mælt svo hátt áður.
Mynd / Aðsend