Bændablaðið - 23.06.2022, Síða 57

Bændablaðið - 23.06.2022, Síða 57
57Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2022 STRANDSVÆÐISSKIPULAG AUSTFJARÐA Skipulagstillagan ásamt umhverfismati er aðgengileg á www.hafskipulag.is og liggur jafnframt frammi hjá Skipulagsstofnun í Reykjavík og á skrifstofum Múlaþings og Fjarðabyggðar. Kynningarfundir um skipulagstillöguna verða haldnir á eftirfarandi stöðum: Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar Herðubreið á Seyðisfirði 27. júní kl. 16:30-18:30 28. júní kl. 16:30-18:30 Frekari kynningarfundir verða auglýstir síðar. Allir sem vilja sig láta varða skipulag svæðisins eru hvattir til að kynna sér skipulagstillöguna. Allir sem þess óska geta komið á framfæri ábendingum og gert athugasemdir við skipulagstillöguna og umhverfismat hennar. Frestur til að koma skriflegum athugasemdum á framfæri er til 15. september 2022. Athugasemdum skal skilað bréflega til Skipulagsstofnunar, Borgartúni 7b, 105 Reykjavík, með tölvupósti á netfangið hafskipulag@skipulag.is eða um athugasemdagátt á www.hafskipulag.is. Svæðisráð Austfjarða Nánari upplýsingar má nálgast á hafskipulag.is. Fyrir liggur tillaga að Strandsvæðisskipulagi Austfjarða 2022 sem kynnt er samkvæmt 12. gr. laga um skipulag haf- og strandsvæða nr. 88/2018. Í skipulagstillögunni er sett fram stefna um nýtingu svæðis sem nær yfir firði og flóa frá Almenningsfles í norðri að Hvítingum í suðri. Skipulagsstofnun - Borgartúni 7b - 105 Reykjavík Bændur og Landgræðslan Umræður um beitarmál og landgræðslu eru oft og tíðum harðvítugar og sitt sýnist hverjum um ágæti þess sem verið er að gera. Samstarf bænda og Land­ græðslunnar á sér langa og farsæla sögu og margþættur ávinningur náðst við landgræðslu. Það má segja að kannski það mikilvægasta sem hefur komið út úr þessu áratuga samstarfi er þekking, þekking bænda og Landgræðslunnar hefur stóraukist á síðustu áratugum og landgræðsluaðgerðir eru vítt og breitt um landið orðnar að sjálfsögðum bústörfum hjá bændum. Víða eru bændur og Landgræðslan að vinna saman að því að bæta heimalönd bænda í gegnum verkefnið Bændur græða landið. Eins er það að á mörgum afréttum er unnið að landbótum með stuðningi Landbótasjóðs Landgræðslunnar og eru þau verkefni mörg unnin til að uppfylla gildandi landbótaáætlanir. Margt hefur áunnist á síðustu áratugum. Bændur hafa friðað 8.500 ferkílómetra af hnignuðu landi í gegnum landbótaáætlanir í tengslum við gæðastýringu í sauðfjárrækt. Frá árinu 1990 hafa bændur unnið að uppgræðslu 900 ferkílómetra landsvæðis í samstarfi við Landgræðsluna. Beitartími fjár á afréttum hefur verið styttur til muna og beit stýrt með mun markvissari hætti nú en á árum áður. Þá hefur fé fækkað nokkuð síðustu ár og er því ljóst að beitarálag hefur minnkað umtalsvert. Samstarfsverkefni bænda og Landgræðslunnar, GróLind, eykur þekkingu á ástandi landsins og verkefnið mun auðvelda sjálfbæra landnýtingu í framtíðinni. Bændur hafa sýnt það að þeir hafa vilja og getu til þess að auka verulega landbótastarf. Í könnun sem var gerð árið 2021 af Maskínu fyrir atvinnuvegaráðuneytið meðal sauðfjárbænda kom fram að þriðjungur sauðfjárbænda hafi mjög mikinn og fremur mikinn áhuga á því að vinna að verkefnum sem tengjast loftslags­ og umhverfismálum. Einnig kom fram í þessari könnun að 90% svarenda höfðu mestan áhuga á landgræðslu sem verkefni tengt aðgerðum í loftslags­ og umhverfismálum. Við getum séð fyrir okkur að nýta enn betur verkefni eins og Bændur græða landið, Endurheimt votlendis, Landbótasjóð, endurheimt birkiskóga og aukna nýtingu lífræns áburðar til að vinna að loftslagsmarkmiðum Íslands. Árlega taka yfir fjögur þúsund manns þátt í þessum verkefnum og þau skila margþættum ávinningi eins og auknum nýtingarmöguleikum, bættri vatnsmiðlun, vernd líffræðilegs fjölbreytileika, auk loftslagsávinn­ ingsins. Þau lönd sem bændur græða í samstarfi við Landgræðsluna teljast nefnilega þjóðinni allri til tekna þegar þau eru sett inn í loftslagsbókhald landsins. Með samstilltu átaki bænda og Landgræðslunnar er hægt að auka enn frekar endurheimt landgæða á Íslandi. Samstarf bænda og Land­ græðslunnar hefur gefist vel og þar sameinast allt sem þarf, þekking, mannafli, tæki og vilji. Trausti Hjálmarsson, formaður sauðfjárbænda Árni Bragason landgræðslustjóri. Árni Bragason. Trausti Hjálmarsson. Við sendum í einum grænum www.hardskafi.is Júní 2022 Sími 555 6520 sala@hardskafi.is Smágrafa 1,4 tonn 3-cyl dieselvél vatnskæld Kr 3,707.600 m. vsk Kr 2,990.000 án vsk Sturtuvagn 2 tonna Kúlutengi + traktorstengi Kr 570.400 m. vsk Kr 460.000 án vsk Smágrafa 1,0 tonn Diesel 12hp Kr 1.984.000 m. vsk Kr 1,600.000 án vsk Hnífatætari 180cm fyrir traktora 40-50hp Kr 452.600 m. vsk Kr 365,000 án vsk Kurlari PTO RPM1000 fyrir 25cm sver tré Kr 1.388.800 m. vsk Kr 1.120.000 án vsk Dreifari Fyrir áburð, salt eða sand Kr 29.760 m. vsk Kr 24.000 án vsk Rakstrarvél 2,5 metrar Kr 496.000 m. vsk Kr 400.000 án vsk Kurlari max 8cm Bensín 6,5hp Kr 217.000 m. vsk Kr 175.000 án vsk Stubbatætari Bensín 15hp Kr 291.400 m. vsk Kr 235.000 án vsk Slóðadragi 120cm Kr 117.800 m. vsk Kr 95.000 án vsk Sláttuvél PTO STANDARD 175cm Kr 396.800 m. vsk Kr 320.000 án vsk Rúllubindivél Fyrir smárúllur 700mm Kr 992.000 m. vsk Kr 800.000 án vsk Rafbörur 4x4 Drif á öllum og búkollubeygja Kr 545.600 m. vsk Kr 440.000 án vsk Flutningskassi 2mtr opna og sturta Kr 241.800 m. vsk Kr 195.000 án vsk Sláttuvél 120cm 15hp EL fyrir fjórhjól Kr 496.000 m. vsk Kr 400.000 án vsk Nýtt blað Fáðu blaðið sent Sláttuvél 160cm 24hp EL fyrir fjórhjól Kr 799.800 m. vsk Kr 645.000 án vsk Plógur einskeri Kr 167.400 m. vsk Kr 135.000 án vsk

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.