Bændablaðið - 23.06.2022, Blaðsíða 62
62 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2022
Að þessu sinni var pallbíllinn Isuzu
D-Max Lux, sem BL selur, tekinn í
reynsluakstur.
Þessi bíll myndi teljast til
stærðarflokks meðalstórra pallbíla,
rétt eins og Toyota Hilux og Nissan
Navara. D-Max veitir áðurnefndum
pallbílum öfluga samkeppni og
ætti hver sá sem er að leita sér að
meðalstórum pallbíl ekki að líta fram
hjá þessum.
D-Max kemur í Basic, Pro og
Lux útgáfum, en bíllinn sem ég
prufukeyrði var 4 dyra í Lux útgáfu,
sem er dýrasta týpan. Að auki við
þann búnað sem Lux útgáfan fær skv.
verðlista þá var umræddur bíll með 33
tommu breytingu frá Arctic Trucks,
heithúðun á palli og dráttarbeisli. Án
allra aukahluta kostar Lux útgáfan
8.690.000 kr. með vsk.
Fyrstu kynni
Það fyrsta sem ég tók eftir var
stílhrein hönnun bílsins að utan sem
innan. Því miður hafa pallbílar oft
verið óspennandi í útliti gegnum
tíðina og voru bílarnir frá Isuzu gott
dæmi þess. Hönnuðir fyrri gerða
D-Max hafa líklegast ekki haft kjark
til þess að hanna bíl sem myndi vekja
tilfinningar hjá nokkrum manni,
heldur hafa þeir bara horft til þess að
gera hagstætt, en jafnframt álappalegt
vinnutæki. Núna hafa hönnuðirnir
frá Isuzu hins vegar hitt naglann á
höfuðið og er D-Max afar fallegur
bíll, sérstaklega að utan. Allar línur
og hlutföll bílsins vekja áhuga manns
og það er ekki hægt að lýsa honum
öðruvísi en töff.
Innréttingin
Það sést um leið og sest er upp
í bílinn hversu þétt og vel saman
skrúfuð innréttingin er. Það er mjög
greinilegt að hún er hönnuð til þess
að þola mikið álag og endast. Eins
og áður segir var bíllinn í þessum
prufuakstri af svokallaðri Lux útgáfu.
Sá bíll er með leðurklædd sæti, stýri
og leður á mælaborðinu. Það þarf þó
ekki að leita lengi til þess að sjá að
þetta er vinnutæki, ekki lúxusbíll, því
hér og þar má finna ódýrara plast og
skarpar brúnir.
Hirslur má finna hér og þar í
bílnum, t.a.m. stórir hurðavasar
í öllum hurðum og lítil hirsla á
miðju mælaborðinu. Einnig eru
tvö hanskahólf, en smæðin á þeim
veldur miklum vonbrigðum. Stærra
hanskahólfið er það smátt að
eigendahandbókin kemst varla fyrir.
Ökumannssætið er rafdrifið og
er hægt að stilla það á ýmsa vegu
ásamt því að bíllinn er með velti- og
aðdráttarstýri. Flestir ættu því að geta
komið sér þægilega fyrir í þessum
bíl – nema hávaxnir ökumenn. Sjálfur
er ég 191 sentímetra hár og sætið fór
ekki nógu aftarlega til þess að ég gæti
verið í nógu afslappaðri stöðu.
Margmiðlunarkerfi
Þessi bíll er með níu tommu snertiskjá
sem er einungis fáanlegur í Lux
útgáfunni. Pro útgáfan kemur líka
með snertiskjá, en hann er sjö tommu.
Stýrikerfið er einfalt og fannst mér
það að flestu leyti vera notenda-
vænt. Bakkmyndavélin, sem er
staðalbúnaður í Pro og Lux útgáf-
unum, er til að mynda mikill kostur
á stórum bíl sem þessum.
Ég byrjaði á því að tengja símann
minn við kerfið í gegnum Bluetooth
sem tók nokkrar tilraunir en tókst fyrir
rest. Ég prufaði að hringja nokkur
símtöl og voru engin vandamál við
að eiga eðlilegar og afslappaðar
samræður. Það sem mér fannst hins
vegar mikill galli er að það er ekki
hægt að stimpla inn símanúmer eða
fletta í símaskrá símans í gegnum
margmiðlunarskjáinn í akstri. Þessi
takmörkun verður auðvitað til þess
að ökumenn sem þurfa að hringja á
ferðinni neyðast til þess að taka upp
símann til þess að slá inn númer.
Aksturseiginleikar
Isuzu D-Max er nokkuð þægilegur
og lipur í akstri. Hann er tiltölulega
hljóðlátur þó svo að dísilvélin láti
alltaf heyra í sér; sérstaklega þegar
gefið er í. Seint er hægt að segja
að þetta sé kraftmikill bíll, en hann
er bara 163 hestöfl og uppgefin
heildarþyngd er 3,1 tonn. Hann nær
því ekki upp í 100 km hraða fyrr en
eftir dúk og disk.
Fjöðrunin er eins og við er að búast
af pallbíl, en hann er nokkuð stífur
þegar ekið er yfir hraðahindranir og
aðrar ójöfnur.
Hann er hins vegar mjög stöðugur
á þjóðvegum og á malarvegum; það
er ekkert mál að aka greitt á grófum
malarvegi þegar maður er búinn að
setja í fjórhjóladrifið.
Uppgefin burðargeta D-Max með
sjálfskiptingu er 1.090 kg og má hann
draga allt að 3.500 kg vagn með
hemlum. Skv. bæklingi er blönduð
eyðsla 9,2 l/100 km og stóðst það
nokkurn veginn í þessum prufuakstri.
Samantekt
Isuzu D-Max er einn stílhreinasti
pallbíll sem völ er á í dag og er hann
sérstaklega smekklegur þegar búið
er að breyta honum fyrir 33 eða 35
tommu dekk. Hann er lipur í akstri
með góða burðargetu og dráttargetu
eins og best gerist.
Það er auðveldlega hægt að
mæla með þessum bíl fyrir hvern
þann sem þarf pallbíl í vinnu þar
sem nauðsynlegt er að ferðast utan
vega og/eða draga kerrur. Isuzu hafa
almennt verið áreiðanlegir bílar og
koma þeir með 5 ára ábyrgð.
Þetta er hins vegar mjög takmark-
aður bíll ef hann er hugsaður sem
fjölskyldubíll því pallurinn hentar
ekki til þess að geyma viðkvæman
farangur. Auk þess er næstum ekkert
geymslupláss inni í bílnum.
VÉLABÁSINN
Ástvaldur Lárusson
astvaldur@bondi.is
D-Max kemst auðveldlega út fyrir malbikið.Rúmgóður pallur.
D-Max í sínu eðlilega umhverfi. Isuzu D-Max er einn smekklegasti pallbíllinn á markaðnum í dag og er kostum gæddur. Bíll með dráttargetu eins og best gerist. Myndir / ÁL
Aftursæti með tvö IsoFix tengi fyrir barnabílstóla. Leðurklædd rafmagnssæti. Ekki fyrir mjög hávaxna. Nútímalegt mælaborð m/ stórum margmiðlunarskjá. Hanskahólfið er allt of lítið.