Bændablaðið - 23.06.2022, Side 66

Bændablaðið - 23.06.2022, Side 66
66 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2022 Heyrst hefur bak við tjöld tískuunnenda að lúxusveldið Val- entino hafi haft það fyrir augum að endurselja nokkuð af þeim fatnaði sem hefur verið að hringsóla um jörðina undir þeirra merki. Vouge Business staðfesti orðróminn á dögunum og mun veldi Valentino bjóða til sölu vintage fatnað í fjórum útibúum sínum nú í mánuðinum, en vilja forsvarsmenn fyrirtækisins stíga skref samhliða þeirri umhverfis- vænu stefnu sem nú er við lýði. Valentino Vintage Hugmyndin kviknaði fyrir ári, en síðastliðið haust setti fyrirtæki Valentino í gang söfnun undir nafninu Valentino Vintage þar sem eigendur vintage vara voru beðnir um að endurselja þá til vörumerkisins í skiptum fyrir inneign í verslun. Núna eru þessir hlutir til sölu yfir tveggja vikna tímabil í júní, en veldi Valentino mun taka yfir búðirnar Madame Pauline Vintage í Mílanó, The Vintage Dress í Tókýó, New York Vintage og Resurrection Vintage í Los Angeles til þess. Gucci Vault Með þessa stefnu í huga eru þó fleiri. Til dæmis má nefna hugmyndafræðina á bak við Gucci Vault þar sem gömlum fatnaði og fylgihlutum er gert hátt undir höfði. Um ræðir vefverslun sem býður upp á afar sjaldgæfa muni fortíðarinnar, vandlega innpakkaða – en á pakkningunni má finna auðkennisnúmer hlutarins auk klútar til varnar ryki. (Fyrir forvitna, sjá https://vault.gucci.com) Ganni einu skrefi framar Danska tískumerkið Ganni sem hefur oftar en einu sinni sýnt lit þegar kemur að umhverfisvernd, setti upp síðu á þessum nótum árið 2019 undir nafninu Ganni Repeat. Þar er lögð áhersla á endursölu og viðgerðir, í viðleitni til að vinna innan hringrásarhagkerfisins. Nýlega hleypti fyrirtækið svo af stokkunum endursöluvett- vangi sem gefur fólki aðgang til að kaupa og selja notaðan fatnað undir merkjum þess. Seljendur nýta sér svo tækni Reflaunt til þess að ákvarða verðlagninguna – fyrirtækis sem brúar bilið milli lúxusmerkja við markaðstorg nytjavarnings – sem skilar sér svo aftur í hringlaga hagkerfi auk þess að opna augu neytenda fyrir langvarandi gildi vandaðrar tísku (reflaunt.com). Þegar eigur þeirra eru seldar er í boði að velja milli bankamillifærslu eða kaupinneignar með 20% aukaverðmæti, til að eyða á vef- síðunni www.GANNI.com. Nytjavarningur lúxusmerkja Fyrir þá sem vilja annars gera góð kaup á vefsíðum sem bjóða upp á nytjavarning lúxusmerkja er einna helst hægt að líta á hewi (hardlyeverwornit.com). Þar má finna vörur eftir hönnuði Prada, Chanel, Loewe, The Row, Gucci auk annarra, en einnig má selja sínar eigin notuðu eða lítt notuðu merkjavörur. What Goes Around Comes Around er svo önnur síða, ekki síður skemmtileg og upplagt að renna yfir hana með morgunkaffinu. (www.whatgoesaroundnyc.com) Einnig eru til ógrynni vefsíðna sem selja nytjavörur sem ekki eru endilega undir merkjum lúxus en engu að síðar endingargóðar – og eða skemmtilegar – og um að gera að finna sér eitthvað til að bjarga heiminum frá endalausum hrúgum fatnaðar sem fara á haugana beint úr verksmiðjunum. / SP UMHVERFISMÁL - TÍSKA FUGLINN: SVARTÞRÖSTUR Svartþröstur er orðinn algengur varpfugl á Suðvesturlandi, einna helst í þéttbýli. Karlfuglinn er alsvartur með skærgulan gogg og augnhring. Kvenfuglinn er hins vegar dökkbrúnn, með ljósar rákir á bringu. Fyrir síðustu aldamót var svartþröstur fremur sjaldgæfur varpfugl og þekktist einna helst sem haust- og vetrargestur. Upp úr aldamótum byrjaði honum að fjölga talsvert. Nú er áætlað að hér séu nokkur þúsund varppör og hefur hann hægt og rólega verið að dreifa sér um landið. Svartþrestir eru einstaklega duglegir varpfuglar en fyrstu karlfuglana má heyra syngja seinni hluta febrúar. Varpið byrjar síðan í mars og er ekki óalgengt að svartþrestir nái að verpa þrisvar jafnvel fjórum sinnum yfir sumarið. Ófleygir ungar hafa fundist alveg fram í september, þetta er því langur tími og getur afkastageta þeirra verið nokkuð góð. Svartþrastarungar líkt og aðrir spörfuglsungar fara fljótlega úr hreiðrinu að kanna heiminn. Það er ekki óalgengt að sjá ófleyga unga sitja á jörðinni eða á trjágreinum. Þeir virðast kannski vera umkomulausir en foreldrar þeirra þurfa kannski að sinna 3-4 ungum á mismunandi stöðum í einu. Það er því mikilvægt að fjarlægja ekki unga þótt foreldrarnir séu ekki sjáanlegir. Þetta er hluti af þeirra uppeldi svo þeir verði hæfastir í að komast af á eigin spýtur. Mynd og texti / Óskar Andri Víðisson Endursala eldri tískufatnaðar: Vintage Valentino, Gucci, Ganni ... Klassískur rauður kjóll úr smiðju Valentino til vinstri, „Feathery Dress“ Ganna og Chanel taska frá vefsíðu nytjavarnings.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.