Bændablaðið - 07.07.2022, Side 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022
FRÉTTIR
www.kofaroghus.is - Sími 553 1545
TIL Á LAGER
Ítarlegar upplýsingar og teikningar ásamt ýmsum öðrum fróðleik
STAPI - 14,98 fm
Tilboðsverð
779.000 kr.
25%
afsláttur
BREKKA 34 - 9 fm
Tilboðsverð
489.000 kr.
25%
afsláttur
NAUST - 14,44 fm
Tilboðsverð
539.000 kr.
30%
afsláttur
VANTAR
ÞIG PLÁSS?
Afar einfalt er að reisa
húsin okkar. Uppsetning
tekur aðeins einn dag
TILBOÐ Á GARÐHÚSUM!
Afkoma nautakjötsframleiðenda:
Laun undir lágmarksviðmiðum
Út frá skýrslu Ráðgjafar miðstöðvar
landbúnaðarins (RML) um
afkomu nauta kjötsframleiðenda
má sjá að bændurnir, sem ljáðu
skýrsluhöfundum innsýn í
starfsemi sína, reiknuðu sér að
meðaltali um 220.000 krónur í
mánaðarlaun fyrir vinnu sína í
nautakjötsframleiðslunni.
Það má sjá með því að rýna í liðinn
laun og launatengdar greiðslur en hann
er um 3,15 milljónir á ársgrundvelli,
eða 260.000 kr. á mánuði.
„Bersýnilega duga þessi laun
ekki til og nautakjötsframleiðendur
geta ekki haldið áfram að greiða
með framleiðslunni líkt og þeir
hafa gert síðustu ár,“ segir Herdís
Magna Gunnarsdóttir, formaður
búgreinadeildar kúabænda, NautBÍ.
„Í skýrslunni er tekið undir
það sem við hjá BÍ höfum verið
að benda á; að undandarin ár hafa
íslenskir nautakjötsframleiðendur
verið að gera betur, jákvæð þróun er
í vaxtarhraða, fallþunga og flokkun
íslensks nautakjöts.
Þannig hafa bændur náð fram
hagræðingu í sínum rekstri með
að skila þyngri og betri gripum.
Svigrúmið til frekari hagræðingar
virðist þó vera takmarkað. Það sjáum
við kannski einna best á því að laun
og launatengd gjöld hafa lækkað
um rúmar 15.000 krónur á hvern
sláturgrip frá 2017-2021.
Með þyngri gripum er eðlilegt
að kostnaður á hvern grip lækki en
þessi lækkun launa er þó umfram þá
þyngdaraukningu sem hefur orðið á
gripunum. Við getum því með sanni
sagt að bændur séu farnir að taka á
sig talsverðar launalækkanir.“
Hækkun afurðaverðs nauðsynlegt
Hún segir sárt að horfa upp á
launaskerðingu á sama tíma og
laun í landinu hafi almennt verið
á uppleið. „Vert er að benda á að á
sama tímabili, skv. Hagstofu Íslands,
hækkaði launavísitalan um 176,7
stig,“ segir Herdís Magna.
Hún bendir á að skýrsla RML
styðji málflutning nautgripabænda
síðustu misseri.
„Rétt eins og skýrslan segir
hafa afurðaverðslækkanir síðustu
ára komið afar illa við greinina
ásamt auknum innflutningi.
Skýrsluhöfundar segja að hækkun
á afurðaverði sé nauðsynleg ásamt
því að ná jafnvægi á markaðnum.
Við bændur þurfum svo auðvitað
að halda áfram að leita allra leiða til
frekari hagræðingar,“ segir Herdís
Magna. Hún hvetur fleiri bændur
til að taka þátt í rekstrarverkefnum
RML svo hægt sé að fá víð-
tækar og nákvæmar niðurstöður
slíkra greininga.
„Það er okkur afar mikilvægt
til að geta tekið púlsinn á stöðu
nautgriparæktarinnar og í allri
hagsmunagæslu BÍ.“ /ghp
Sláturfélag Vopnfirðinga boðaði
umtalsverðar hækkanir á
afurðaverði til sauðfjárbænda í
nýrri verðskrá sem þeir gáfu út í
byrjun síðustu viku.
Samkvæmt útreikningum BÍ
hækkar reiknað meðalverð dilkakjöts
um 31,4% milli ára sé miðað við
lokaverð haustið 2021 (34,4%
miðað við upphafsverð). Reiknað
meðalverð dilkakjöts hækkar um
173 kr/kg milli ára.
Skúli Þórðarson, framkvæmda-
stjóri Sláturfélags Vopnfirðinga,
sagði að stjórn félagsins hafi
talið sig knúna til að bregðast við
rekstrarvanda sauðfjárbænda.
„Stjórn félagsins ákvað að hækka
verðið þannig að sauðfjárbændur
yrðu ekki fyrir launalækkun.“
Sláturfélag Vopnfirðinga er
meðal minnstu sláturleyfishafa
landsins og voru með innan við 10%
framleiðslunnar í fyrra.
Áður hafði Sláturfélag Suðurlands
gefið út verðskrá fyrir komandi haust.
Samkvæmt útreikningum BÍ hækkar
reiknað meðalverð dilkakjöts um
18,7% milli ára sé miðað við lokaverð
haustið 2021 (24,2% sé miðað við
upphafsverð). Reiknað meðalverð
dilkakjöts hækkar um 104 kr/kg.
Aðrar afurðastöðvar hafa enn ekki
gefið út afurðaverðið fyrir árið 2022
en Kjarnafæði Norðlenska gaf það út
í febrúar að þeirra afurðaverð myndi
hækka að lágmarki um 10%.
Vonar að aðrir fylgi í kjölfarið
Trausti Hjálmarsson, formaður
búgreinadeildar sauðfjárbænda,
sagði það sérstakt fagnaðarefni að
verð sé að koma fram svo tímanlega.
„Þetta er skref í rétta átt og
í fljótu bragði sýnist mér að
með viðbótarstuðningi ríkisins
og verðhækkunum Sláturfélags
Vopnfirðinga þá séum við að halda
sjó milli ára. Við vonum að aðrar
afurðastöðvar fylgi í kjölfarið.“
Sjö sláturhús fyrir sauðfé
kringum landið, rekin af fimm
fyrirtækjum. Þrjú þeirra hafa ekki
gefið upp afurðaverð sín fyrir
haustið. Ágúst Andrésson hjá
Kaupfélagi Skagfirðinga, sem rekur
kjötafurðastöðina á Sauðárkróki, og
sláturhúsið KVH á Hvammstanga
sagði að von væri á verðskrá frá
fyrirtækinu.
Björn Víkingur Björnsson hjá
Fjallalambi sagði að á Kópaskeri
hefðu menn engar ákvarðanir tekið
og engin svör fengust frá Kjarnafæði
Norðlenska.
Inntur eftir frekari hækkunum
í kjölfar tilkynningar Sláturfélags
Vopnfirðinga sagði Steinþór
Skúlason, forstjóri SS, að þeir muni
bíða eftir að fyrir liggi verðlagning
allra afurðastöðva. /ghp
Trausti Hjálmarsson, formaður búgreinadeildar sauðfjárbænda vonar að aðrar afurðastöðvar fylgi í kjölfar á boðuðum
verðhækkunum Sláturfélags Vopnfirðinga. Mynd / ghp
Lítið um svör eftir verulegar afurðaverðshækkanir Vopnfirðinga:
Beðið eftir viðbrögðum
Herdís Magna Gunnarsdóttir.
Vinnuhópur gerir aðgerðaráætlun:
Styrkja á stoðir
kornræktar
Efling innlends kornmarkaðar er
viðfangsefni vinnuhóps sem Svandís
Svavarsdóttir matvælaráðherra
hefur skipað í kjölfar funda með
sérfræðingum á sviði kornræktar
við Landbúnaðarháskólann.
Hópnum er ætlað að vinna drög að
aðgerðaráætlun en meðal verkþátta
er að skilgreina nauðsynlega
uppbyggingu á sviði kynbóta,
bútækni og aðlögun stuðningskerfa
í takt við það sem þekkist erlendis.
Fýsileiki innlends kornsamlags
verður kannaður og skilgreindar
þarfir á lágmarksbirgðum kornvöru
í landinu. Í því samhengi mun
hópurinn kynna sér starfsemi,
kerfi og eignarhald kornsamlaga
á Norðurlöndum. Að auki verður
skoðuð starfsemi innlendra samlaga
í innlendum landbúnaðargreinum.
„Staðsetning væntanlegs samlags
auk þurrkstöðva og korngeymslna
er mikilvæg og því verður lögð
áhersla á að finna sem hentugasta
staðsetningu. Þar spilar inn í nálægð
við framleiðendur, markaði, nýtingu
jarðvarma o.fl. Kannað verður
hvernig og hvort sé hægt að nýta
fyrirliggjandi innviði sem best í þessu
samhengi, s.s. þurrkstöðvar og minni
geymslur sem eru nú þegar í rekstri.
Hópurinn mun leggja til aðgerðir til að
bregðast við árum þar sem uppskera
á korni er rýr með það að markmiði
að vernda bæði bændur og kaupendur
og lágmarka fjárhagslegt tjón,“ segir
í tilkynningu frá Stjórnarráðinu.
Vinna þessi er í samræmi við
stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Katrínar
Jakobsdóttur en þar segir að unnin
verði aðgerðaáætlun um eflingu
kornræktar.
Verkefnið er einnig í takt við það
sem fram kemur í skýrslu spretthóps
vegna stöðu í matvælaframleiðslu á
Íslandi en þar er lagt til að sett verði
stóraukinn kraftur í að efla innlenda
kornrækt til manneldis, fóðrunar og
fóðurgerðar.
„Ríkið bjóði fram stuðning
til fjárfestinga í nauðsynlegum
innviðum, svo sem til svæðis-
bundinna söfnunar- og korn-
þurrkunar stöðva, stuðli að því að
einhvers konar áhættudreifingar-
eða tryggingakerfi gegn uppskeru-
bresti komist á fót og tryggi nægan
stuðning við ræktun á hvern hektara
til þess að fleiri sjái sér fært að
hefja kornrækt og eigi möguleika
á markaðsfærslu framleiðslunnar,“
segir í tillögum spretthóps að
aðgerðum til lengri tíma.
Landbúnaðarháskólinn stýrir
verkefninu en Egill Gautason,
Helgi E. Þorvaldsson, Hrannar
S. Hilmarsson og Ragnheiður
I. Þórarinsdóttir rektor mynda
starfshópinn af hálfu skólans en
matvælaráðherra lagði til rúmlega
17 milljónir króna í verkefnið.
Vinnuhópurinn hefur störf í ágúst
árið 2022 og stefnt er að henni ljúki
í mars 2023.
/ghp
Möguleg stofnun
kornsamlags
Einn stærsti liður verkefnisins
snýr að mögulegri stofnun
kornsamlags.
Helgi E. Þorvaldsson,
brautarstjóri og aðjúnkt hjá LbhÍ,
fer fyrir vinnuhópnum. Hann lýsir
ákveðinni brotalöm í kornrækt á
Íslandi í dag.
„Ef þú ert bóndi sem átt
10 hektara og vilt nýta hann
til kornræktar, þá er hér engin
afurðastöð sem tekur við korni.
Slíkt fyrirkomulag þekkist víða
erlendis. Því er eitt af okkar
verkefnum að kynna okkur
starfsemi kornsamlaga og meta
fýsileika þess að stofna slíkt hér.
Ef allt fer að óskum munum
við skila af okkur tillögum
að hentugri staðsetningu,
ákjósanlegri starfsemi og æskilegu
viðskiptamódeli,“ segir hann.
Því muni hópurinn kalla til
sérfræðinga á sviði viðskipta og
verkfræði sér til stuðnings.
Helgi E. Þorvaldsson.