Bændablaðið - 07.07.2022, Blaðsíða 32

Bændablaðið - 07.07.2022, Blaðsíða 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022 HROSS&HESTAMENNSKA Hestaferðir: Hesturinn er sameiningartákn – Árlegur þriggja daga reiðtúr sautján hefðarkvenna skapar ómetanlega vináttu Sautján konur hafa í fjórtán ár lagt upp í hestaferð kringum Jónsmessu. Þær setja tvö skilyrði; að gisting og matur sé eins og best verður á kosið, enda er fylkingin samansafn sannkallaðra hefðarkvenna. Oft verða góðar hugmyndir til í gleðskap. Svo er annað mál hvort hugmyndirnar verða að veruleika. Í tilfelli „Hefðarkvenna“, eins og þær kjósa að kalla sig, létu nokkrar konur gjörð fylgja orðum. Þær hóuðu saman nokkrum kunningjakonum, sem þær vissu til að hefðu stigið á bak hesti, og héldu í hestaferð. „Í upphafi tengdumst við margar hverjar lítið sem ekkert, nema í gegnum þennan hóp. Við erum ólíkar konur, komum úr ólíkum áttum, erum á ólíkum aldri, að fást við ólíka hluti dagsdaglega,“ segir Erna Ingvarsdóttir, en tuttugu ár eru á milli elstu og yngstu hefðarkonunnar. Þrjár þeirra eru valdar ár hvert til að undirbúa ferðina, sem alltaf er haldinn á sama tíma árs; í þrjá daga kringum Jónsmessu. Undirbúningsnefndin finnur til gistingu við hæfi kringum skemmtilegar reiðleiðir. Þær Elsa Ingjaldsdóttir, Erna Ingvarsdóttir og Elín Bjarnveig Sveinsdóttir mönnuðu undirbúningsnefndina í ár. Hrossin, landið og við Sumar hefðarkvennanna eru alvanir knapar með hesta á húsi ár hvert, meðan aðrar stíga á bak einstaka sinnum. Skiptir það þó engu máli enda er erfiðleikastig ferðaleiðar ekki markmiðið. „Þetta snýst um að vera úti í náttúrunni og takast á við verkefnið saman. Við leggjum upp með að vera á góðum reiðgötum svo við njótum þess bara að vera á töltinu og upplifum að vera á hestunum. Þegar maður er í þrjá daga í röð með hestunum sínum verður sú þrenning að einu. Það er mjög sterk upplifun,“ segir Erna og Elsa tekur undir á háfleygum nótum: „Við verðum eitt; hrossin, landið og við.“ Að öllu gamni slepptu segir Elsa hestaferðir tilvalda leið til að slíta sig frá veruleikanum um stund. Hestaferðir séu núvitund í sinni tærustu mynd. „Mér þykir yndislegast þegar við erum búnar að ríða okkur svolítið saman og erum farnar að þegja og njóta. Þá erum við í núinu. Við hættum að hafa áhyggjur af vandamálum heima, óborguðum reikningum eða daglegu amstri. Við erum bara hér og nú og hugsum ekki um neitt nema áskorun ferðarinnar, sem getur verið veðrið, reiðleiðin eða bara nýr hestur. Verkefnin verða öll svo yfirstíganleg. Eftir daginn erum við samt alltaf búnar að leysa verkefnin saman,“ segir Elsa. Eiginmennirnir öfundast Í ferðunum gera konurnar vel við sig eins og sönnum drottningum sæmir. „Við leggjum upp með að ferðunum fylgi ákveðinn munaður; uppábúin rúm og góður matur. Við höfum verið heppnar öll fjórtán árin, enda leynast litlar perlur víða um land fyrir hópa í okkar stærð,“ bendir Elsa á. Í ár var heimahöfnin gistihúsið Álftröð á Skeiðum, sem Hefðarkonur og fákar þeirra við Stóru-Laxá. Frá vinstri; Anna Björg Níelsdóttir, Vigdís Þorvaldsdóttir, Jenný Erlingsdóttir, Sigríður Sigfúsdóttir, Dagbjört Guðmundsdóttir, Sigríður Hrönn Gunnarsdóttir, Guðbjörg Rósa Björnsdóttir, Ásta B. Gunnlaugsdóttir, Elsa Ingjaldsdóttir, Margrét Stefánsdóttir, Erna Ingvarsdóttir og Elín Bjarnveig Sveinsdóttir. Á myndina vantar Hörpu Dís Harðardóttur, Margréti K. Erlingsdóttur, Jóhönnu Kristínu Guðmundsdóttur, Sjöfn Sveinsdóttur og Hrönn Guðmundsdóttur. Myndir / ghp Sumar hefðarkvennanna eru alvanir knapar með hesta á húsi ár hvert, meðan aðrar stíga á bak einstaka sinnum. Skiptir það þó engu máli enda er erfiðleikastig ferðaleiðar ekki markmiðið. Sigríður Hrönn Gunnarsdóttir, Guðbjörg Rósa Björnsdóttir og Margrét Stefánsdóttir í forgrunni. Guðrún Hulda Pálsdóttir gudrunhulda@bondi.is Ultrasonic Cleaner Nokkrar stærðir Sandblásturskassar með/án ryksugu Nokkrar stærðir Sandblásturskútur m/ryksugu 80L Amerískir Sandblásturskassar  HREINSIEFNI - Íslensk  SANDBLÁSTURSSANDUR  SANDBLÁSTURSKASSAR  SANDBLÁSTURSKÚTAR  SANDBLÁSTURBYSSUR  KERAMIKSPÍSSAR  ÞVOTTAKÖR  ULTRASONIC CLEANER  O.m.fl. SENDUM FRÍTT UM ALLT LAND MEÐ FLYTJANDA ALK 150 ÞETTA SEM VIRKAR og er einstaklega gott á verkstæðið, í hesthúsið, fjárhúsið og fjósið. Umhverfisvænt sterkt alkalískt hreinsiefni fyrir erfið óhreinindi. Alhliða hreinsiefni fyrir gólf, veggi, áhöld, vélar og fl. Virkar sérstaklega vel á fitu og sót. Verð: 5L, 3.949 kr 20L, 12.815 kr ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA SÍÐAN 1985 Sandblásturskútar 3 stærðir Gildir ekki fyrir tilboðsvörur Ferðir Hefðarkvennanna hafa bundið saman mjög dýrmæta vináttu og sterk tengsl. Jenný Erlingsdóttir, Sigríður Sigfúsdóttir og Dagbjört Guðmundsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.