Bændablaðið - 07.07.2022, Blaðsíða 34

Bændablaðið - 07.07.2022, Blaðsíða 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022 YLEININGAR ERU LÉTTAR STÁL- KLÆDDAR SAMLOKUEININGAR SEM FÁST MEÐ ÞÉTTIFRAUÐS- EÐA STEINULLARKJARNA. Einingarnar eru sterkar og burðarmiklar og fást með mismunandi yfirborði og litum að eigin vali. Helstu kostir þess að nota samloku- einingar er auðveld og fljót uppsetning, auðveld þrif, mikil burðargeta, mikið einangrunargildi og er ódýr kostur ef miðað er við hefðbundnar lausnir. Yleiningar henta vel fyrir eldri gripahús þar sem skipta þarf út þak- og eða veggjaklæðningum. BALEX yleiningar eru framleiddar undir ströngu eftirliti samkvæmt viðurkenndum evrópskum stöðlum. Hafðu samband: bondi@byko.is YLEININGAR bondi@byko.is LÍF&STARF Eitt af langlífustu umkvörtunar- efnum bænda í jarðrækt er ágangur fugla; aðallega gæsa og álfta. Fjölmargar aðferðir hafa verið reyndar í baráttunni við að vernda verðmætin í ræktarlöndunum en fáar virðast duga að fullu. Nýlega birti Björgvin Þór Harðarson, svína- og kornbóndi í Laxárdal, stöðufærslu í Facebook- hópnum Kornrækt á Íslandi frá hveitiakri sínum í Gunnarsholti þar sem hann lýsir ánægju sinni með flugdreka-fuglafælu sína, sem er nýjasta vopnið í vopnabúrinu. Í færslunni segir Björgvin að flugdreka-fuglafælan sem hann setti upp sé í líki fálka og hugsuð til að fæla álftir úr akri með vetrarhveiti í. Áður en hann setti þá upp hafi verið um 50 álftir í rúmlega 30 hektara akri. Þær hafi farið strax og hann setti upp þrjá flugdreka og hafi ekki verið meira til ama. Fálkar sem hreyfast eftir ákveðnu mynstri „Ég hef séð svona fugla á stöng víða erlendis, en þessir eru sérhannaðir til að fljúga eftir ákveðnu mynstri sem fælir aðra fugla frá,“ segir Björgvin Þór. Eins og flestir aðrir kornbændur hefur hann prófað ýmislegt til varnar vágestunum. „Ég hef til dæmis prófað venjulegar fuglahræður, geisladiska á staur, sett eitthvað við akurinn, tæki eða annað og einnig hljóðfælur sem spila viðvörunarhljóð fugla. Sumt af þessu virkar í einhvern tíma og svo ekki meir. Einnig er ég með fimm hektara akur sem er sérstaklega ætlaður fyrir fuglinn þannig að maður býr til svæði þar sem hann má vera. Þá fá aðrir akrar frið á meðan, en það er náttúrlega kostnaður við það. Fálkinn hefur komið einna best út, þarf ekkert viðhald, það er rafgeymi eða annað, og þetta er mjög góð og sterk framleiðsla á þessum flugdrekum. Ég var með þá úti síðasta haust fram í nóvember og það sá ekki á þeim.“ Virkar líklega á flesta fugla Björgvin telur að flugdrekinn muni virka á flesta fugla. „Þetta heldur gæsinni klárlega frá en ég hugsa að þetta virki á flesta fugla – svipaðir drekar eru notaðir heima við bæi erlendis hef ég séð til að stugga við starra og öðrum spörfuglum.“Sagnir eru af miklu tjóni sem bændur hafa orðið fyrir vegna ágangs álfta og gæsa og Björgvin er þar engin undantekning. „Það er mjög misjafnt eftir árferði hversu mikið tjónið verður. Ef það haustar snemma þá er ágangurinn miklu harðari. En ég hugsa að mesta tjónið hafi verið um 100 tonn af korni sem fóru í fuglinn eitt haustið. Kornið lítur vel út Björgvin er einn fárra kornbænda sem hefur náð ágætum árangri með ræktun á hveiti á undanförnum árum, sem hann nýtir sem fóður í svínaræktina. „Ég er að rækta hveiti á um 42 hekturum, það er svipað og undanfarin ár. En almennt lítur kornið mjög vel út. Það var mjög lítið frost í jörðu í vor og góður raki þannig að kornið fór vel af stað og tíðin hefur haldist góð síðan, þannig að það er hægt að gera sér vonir um rúmlega meðalár í uppskeru í haust.“ Hann telur möguleika íslenskrar kornræktar til framtíðar vera ágæta, heilmikið land sé til á Íslandi sem ekki er notað en væri hægt að nýta í ræktun á byggi og fleiri tegundum. „Þar má nefna hveiti, nepju, kúmen, bóndabaunir. En það þarf að ná tökum á þeim vandamálum sem herja á okkur hér. Það er náttúrlega fuglinn og svo eru það veðrin á haustin sem geta skemmt mikið fyrir. Það er hægt að lágmarka það tjón með markvissum aðgerðum sem miða að því að auka ræktunaröryggið. En öll þessi ræktun byggir líka á því að við höfum aðgang að yrkjum sem henta okkar aðstæðum og því er mikilvægt að kynbætur og þróun á nýjum yrkjum fyrir okkar aðstæður sé með miklum sóma.“ /smh Flugdreka-fuglafælan á lofti í Gunnarsholti. Á innfelldu myndinni er Björgvin Þór Harðarson, korn- og svínabóndi í Laxárdal. Myndir / BÞH Björgvin Þór við sáningu í Gunnarsholti. Myndir / smh Þessi glæsilegi hafur, sem heitir Þorri, á heima á bænum Felli í Finnafirði. Eigandi hans er Reimar Sigurjónsson. Fell er á Norðausturlandi á Langanesströnd, sem liggur milli Þórshafnar og Bakkafjarðar. Þar er stunduð ferðaþjónusta og landbúnaður í smáum stíl. „Þorri er 2015 árgerð, fæddur 10. febrúar. Hann var vanaður fyrir tveimur árum. Hann er algjört gæðablóð og í miklu uppáhaldi hér á bænum,“ segir Reimar, sem fékk 24 kið í vor en á Felli eru 20 vetrarfóðraðar geitur og tuttugu kindur. /MHH Flugdreka-fuglafælan virkar vel í Gunnarsholti: Álftirnar fóru og hafa ekki verið meira til ama Mynd / Aðsend
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.