Bændablaðið - 07.07.2022, Blaðsíða 24

Bændablaðið - 07.07.2022, Blaðsíða 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022 HRINGINN Í KRINGUM LANDIÐ Austurland & Austfirðir 7.-9. júlí Eistnaflug, árleg tónlistarhátíð í Neskaupstað 8.-10. júlí Bæjar- og fjölskylduhátíðin Vopnaskak á Vopnafirði 8.-10. júlí Sumarhátíð UÍA – Íþróttahátíð á Egilsstöðum 9. júlí Dyrfjallahlaupið á Borgarfirði eystri, 12 eða 14 km 10.-17. júlí Listahátíðin LungA, tónleikar og list á Seyðisfirði 14.-17. júlí Bæjarhátíðin Útsæðið á Eskifirði, kassabílarallí, kvöldvaka, flugeldasýning og margt fleira 23. júlí Tónlistarhátíðin Bræðslan Norðurland & Norðausturland 28. júní-10. júlí Hríseyjarhátíð 6.-10. júlí Þjóðlagahátíð Siglufjarðar, dansar, námskeið, tónleikar 14.-17. júlí Húnavaka – Bæjarhátíð sem haldin er á Blönduósi 15.-17. júlí Miðaldadagar á Gásum við Hörgárósa í Eyjafirði 22.-24. júlí Mærudagar Húsavíkur 23. júlí Fjölskylduhátíðin Trilludagar á Siglufirði, útsýnis- siglingar, trilluball og markaðir Reykjanes, Suðurland, Suðaustur- & Suðvesturland 3.-10. júlí Landsmót hestamanna á félagssvæði Geysis á Rangárbökkum á Hellu 7.-10. júlí Kótelettan – Fjölskyldu- og tónlistarhátíð á Selfossi 8.-10. júlí Flughátíðin á Hellu; karamellur, grillveisla og skýlisball 16.-17. júlí Götubitahátíð í Hljómskálagarðinum, stærsta matarvagna- og götubitahátíð landsins Vesturland, Norðvesturland & Vestfirðir 7.-10. júlí Sandara- og Rifsaragleði í Snæfellsbæ 9. júlí Bátadagar á Breiðafirði 9. júlí 2022, haldnir af félagi áhugamanna um Bátasafn Breiðafjarðar á Reykhólum. Farið verður til Hvalláturs þar sem rekin var afkastamikil bátasmíðastöð fram á 7. áratug síðustu aldar. 14.-17. júlí Hlaupahátíð á Vestfjörðum þar sem keppt er í hlaupum, hjólreiðum, sjósundi og þríþraut 16. júlí Ögurball í Súðavík 20.-24. júlí Eldur í Húnaþingi – Bæjarhátíð á Hvammstanga Á döfinni í júlí ... (Svo er nú sjálfsagt eitthvað sem hefur ekki komist á lista, en hér að ofanverðu er ýmislegt upptalið sem má skemmta sér við.) Útihátíðir hafa viðgengist svo elstu menn muna og þá undir margvíslegum formerkjum. Þó, að staðaldri er þar mannmergð, tónlist og ýmsar uppákomur. Gjarnan dvelur fólk í tjöldum ef um ræðir lengri tíma en dagstund og þykir mörgum gaman að skvetta í sig sopanum. Verslunarmannahelgin er stærsta helgi útihátíða, en þó hafa fyrstu þrjár helgarnar í júlí komið sterkar inn. Eru þar þekktastar Bræðslan á Borgarfirði eystri, sem upphaflega var haldin árið 2005 í tilefni 100 ára afmælis Jóhannesar Kjarvals listmálara, sem var fóstraður þar ungur að árum. Var Emilíana Torrini fengin til að halda tónleika – sem hún gerði með stakri prýði innan dyra gamallar síldarbræðslu. Nú í ár má finna listamenn undir merkjum Skálmaldar, Írafárs, Flott, Mugison&KK og Malen á sviðinu en löngu er uppselt á hátíðina sem verður þann 23. júlí. Önnur vel kunn júlíhátíð er svo Eistnaflug sem haldin er fyrr í mánuðinum, nú í ár helgina 7.-9. júlí. Nafn hátíðarinnar er öfugsnúningur af nafni hátíðarinnar neistaflug, sem haldin er um verslunarmannahelgina, en líkt og Bræðslan var Eistnaflug haldið í fyrsta skipti árið 2005. Þetta er þriggja daga (þunga) rokkhátíð sem fæstir ættu að láta framhjá sér fara, enda einstakur tónlistarsuðupottur eins og fram kemur á vefsíðu aðstandenda – og jafnvel listamenn á borð við Pál Óskar stigið þar á svið. Hljómsveitirnar Sólstafir, Dark Funeral, Morpholith, Saktmóðigur og Igorr eru þar nöfn á lista í ár auk þess sem nokkuð verður um að erlendum gestahljómsveitum bregði þar fyrir. Þriðja hátíð júlímánaðar sem kemst hér á blað er að sjálfsögðu LungA, en fyrst heyrðist af henni um aldamótin 2000. Þar hefur aðalmarkmiðið verið að vekja athygli á menningu og listum auk þess að virkja sköpunarkraftinn undir sólargeislum dags og nætur. Þetta er fjölsótt hátíð, haldin vikuna 10.-17. júlí og má með sanni segja að þar megi víkka sjóndeildarhringinn á allan hátt. Meðal þess sem gestir geta unnt sér við eru dagleg sjóböð og sauna, bíómyndir, karaókí, listasmiðjur, gjörningar, tónlistar- flutningar, dans og margt fleira nytsamlegt sál og líkama. Kæti í kjötinu Hátíðir sem þessar hafa, þrátt fyrir litskrúðugt úrval gesta, farið nokkuð friðsamlega fram. Ef litið er yfir síðustu 30-40 ár eru þó nokkrar sem eru minnisstæðari en aðrar og ef til vill ofboðið sumum. Mögulega lesendum Tímans þann 9. ágúst árið 1989, en á for- síðunni stóð stórum skýrum stöfum „Fimm þúsund smokka hátíð í Húnaveri“. Þeim sem brugðið hefur, hafa þó sjálfsagt samt sem áður fikrað sig aftar í blaðið, en í opnu þess var um fimmtán hundruð orða grein er lýsti á vel skrifaðan hátt verslunarmannahelgarhátíðinni „Húnaver ´89“ sem Jakob Magnús- son Stuðmaður og félagar hans í bandinu stóðu fyrir. Vísaði fyrirsögn greinarinnar í smokkaþurrð er varð á hátíðinni en þeir bæði seldust upp á svæðinu auk þess sem apótek nærliggjandi bæja voru þurrausin. Haft var eftir Jakobi Magnússyni að þegar hefðu farið í sölu fimm þúsund smokkar og væru frekari birgðir á leiðinni. Djarflega en varlega Þessi gífurlega sala hlýtur þó að vekja stolt heilbrigðisyfirvalda – að almenningur skuli verja sig svona vel, en þremur árum áður tröllreið ein minnisstæðasta auglýsingabylgja Íslands yfir, „Smokkaplakötin“ svokölluðu. Mikið var um ærsl og læti á hátíðinni en þó báru nærsveitarmenn aðkomufólki vel söguna. Það er því gleði- og þakkarvert að svo skuli hafa farið í það skiptið, þrátt fyrir æsilega fyrirsögn, og voru aðstandendur að sama skapi ánægðir. Útihátíðir er eitthvað sem ber að njóta til fulls, fara djarflega en varlega. /SP Útihátíðir: Vel varin með gleði í hjarta Húsið verður til sýnis helgina 9. – 10. júlí n.k. Vinsamlegast hringið í síma 695 8611 fyrir frekari upplýsingar. Sumarhús í landi Miðdals við Laugarvatn til sölu. Húsið er um 61 m2. Að auki er svefnloft og tvær útigeymslur. Heitur og kaldur pottur. Stór verönd, mikill og fallegur gróður. Lokað svæði með aðgangsstýrðu hliði. Húsið er í um 100 km akstursfjarlægð frá Reykjavík. Stutt í 9 holu golfvöll, gullna hringinn og verslun, sund og aðra þjónustu á Laugavatni. Myndir og frekari upplýsingar má finna á facebooksíðu eignarinnar: Sumarbústaður í Miðdal: T-Gata 11. Verðhugmynd: 34,9 mkr. GLÆSILEGT SUMARHÚS Í LANDI MIÐDALS VIÐ LAUGARVATN. T-GATA 11, 806 SELFOSS Uxi 1995 Útihátíðin Uxi 95 var einn gleðskapurinn sem haldin var um verslunarmannahelgina árið 1995, nánar tiltekið á Kirkjubæjarklaustri. Fjöldi innlendra og erlendra tónlistarmanna komu fram, einna minnisstæðust var hljómsveitin Prodigy sem lifir í minningunni sem einn af helstu menningarviðburðum tíunda áratugarins. Prodigy
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.