Bændablaðið - 07.07.2022, Blaðsíða 53

Bændablaðið - 07.07.2022, Blaðsíða 53
53Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022 AF VETTVANGI STJÓRNARRÁÐSINS Þess vegna aukum við kornrækt Undanfarna mánuði hefur umræða um fæðuöryggi tekið stakkaskiptum á Íslandi eins og annars staðar. Ástæðan er einföld, vegna innrásar Rússa í Úkraínu er fæðuöryggi heimsins ógnað. Hungurvofan mun gera vart við sig hjá tugum milljóna í ár og á næsta ári vegna þessa. Vegna þeirrar forréttinda sem við Íslendingar njótum í krafti ríkidæmis okkar og mikillar matvælaframleiðslu eru hverfandi líkur á því að aðgengi okkar að mat sé skert. Við flytjum út 98% af þeim fiski sem við veiðum og sá fiskur fæðir milljónir. Ísland er matvælaútflutningsland. En áhrifin innanlands hafa falist í miklum verðhækkunum á aðföngum og því taldi ég nauðsynlegt að grípa til aðgerða til að styðja bændur. Til þess skipaði ég spretthóp sem vann hratt og örugglega, og lagði fram tillögur sem ég gerði að mínum. Í framhaldinu samþykkti ríkisstjórnin að veita 2,5 milljörðum í sér- stakan stuðning við bændur sem greiddur verður út með haustinu. Ég mun standa með bændum í þessum þrengingum hér eftir sem hingað til. Að sama skapi hefur ríkis- stjórnin einnig gripið til aðgerða til að milda áhrif dýrtíðarinnar á þá hópa í samfélaginu sem veikast standa, með hækkunum á bótum almannatrygginga og sérstökum barnabótaauka. Þá höfum við talað skýrt gegn útflutningshindrunum á matvælum á alþjóðavettvangi, en slíkar ráðstafanir eru til þess að auka á vanda fátækari þjóða. Hagkvæmni á kostnað þanþols Það sem blasir hins vegar við er að við höfum byggt upp okkar landbúnað á forsendum þess að við getum alltaf fengið kornvöru á skikkanlegu verði sem aðföng í framleiðslu á kjöti, mjólk, brauði og öðrum matvælum. Þá stefnu má m.a. rekja til hagfræðikenninga sem komust í tísku upp úr 1980 og snúa m.a. að sérhæfingu og hagkvæmni. Með þessu móti höfum við byggt upp framleiðslu á kjöti og mjólk. Það sem kemur nú í ljós er að þessi meinta hagkvæmni var ekki fengin ókeypis. Enda er hagfræðingum tíðrætt um að ekkert sé ókeypis í heimi hér. Kostnaðurinn sem í þessu felst er í formi þanþols og öryggis. Þetta eru margir að uppgötva sem birtist meðal annars í því að fyrirtæki sitja nú á meiri birgðum, til þess að freista þess að tryggja aðgengi að nauðsynlegum aðföngum. Eins og margir þekkja nú er mjög lítill hluti kornvöru til sölu á alþjóðamörkuðum. Örfáar þjóðir framleiða megnið af því magni sem á annað borð er verslað með milli landa. Ástæða þess að stríðið hefur haft svo mikil áhrif er að bæði Rússar og Úkraínumenn eru stórleikendur á alþjóðlegum mörkuðum með kornvöru. Sennilega eru fáar þjóðir í heiminum sem eru meira háðar alþjóðamörkuðum með korn en Ísland. Það er ekki náttúrulögmál, því hér er vel hægt að rækta korn og var raunar gert um aldir. Ég tel það óskynsamlegt til lengri tíma að verð á mikilvægustu aðföngum til landbúnaðar séu með öllu háð duttlungum alþjóðamarkaða. M.a. vegna þess þurfum við að efla innlenda kornrækt. Með réttri jarðvinnslu vex kornræktin sjálf Margar skýrslur hafa verið skrifaðar um eflingu kornræktar á Íslandi, en nú er aðgerða þörf. Þess vegna hef ég falið sérfræðingum við Landbúnaðarháskóla Íslands að útbúa aðgerðaáætlun sem taki á þeim helstu hindrunum sem standa í vegi fyrir því að kornræktin dafni. Það sem máli skiptir er að vinna jarðveginn þannig að kornrækt geti vaxið af sjálfsdáðum. Með því að innlendur markaður með korn verði til skapast möguleikar til að bændur geti gert áætlanir og vitað með nokkurri vissu hvað þeir fái fyrir uppskeruna. Þá hef ég þá skoðun að fjár- festingar séu forsendur framfara og því þurfi meiri þungi að færast á fjárfestingarstuðning í búvörusamningum, m.a. til þess að stuðla að aukinni kornrækt. Ég hef miklar væntingar til þessarar vinnu og að hún skili okkur góðu veganesti á leiðinni til aukins fæðu- öryggis og fjölbreyttari land- búnaðarframleiðslu til sveita. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra. Svandís Svavarsdóttir. Reynsla, virðing, fagmennska Baritón Veiti einnig ráðgjöf vegna tónlistar og útvega sönghópa SÖNGUR VIÐ ÚTFARIR Jón Svavar Jósefsson jonsvavar.is s: 864 2407 jonljon@gmail.com facebook/jarðarfarasöngvarinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.