Bændablaðið - 07.07.2022, Blaðsíða 23

Bændablaðið - 07.07.2022, Blaðsíða 23
23Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022 MHG VERSLUN | Víkurhvarf 8 | 203 Kópavogur | Sími 544 4656 | www.mhg.is CUMMINS RAFSTÖÐVAR - amerísk gæði Cummins C28D5S - 28kVA 1667 x 930 x 1282 mm / 647,5 kg 2082 x 987 x 1524 mm / 927,5 kg Cummins C1400D5 – 1400kVA 5110 x 2000 x 2240 / 10,075 kg 5120 x 2230 x 2770 / 15,450 kg Cummins C66D5E - 66kVA 2050 x 967 x 1510 mm / 1127 kg 2270 x 975 x 1920 mm / 1530 kg Cummins C110D5 - 110kVA 2415 x 1102 x 1862 mm / 1560 kg 3147 x 1102 x 2243 mm / 2161 kg L Á LAGERTI L Á LAGERTI TIL Á LAGER TIL Á LAGER Norrænn matur fyrir marga: The Junk Food Project, Danmörku Rasmus Munk, yfirmatreiðslumaður og maðurinn á bakvið hinn þekkta veitingastað Alchemist, sem hefur tvær Michelin-stjörnur, byrjaði með verkefnið árið 2020 eftir að Covid-19 skall á. Hugsunin er að útvega bragðgóðan og næringarríkan mat fyrir heimilislausa sem eldað er af þekktum og góðum matreiðslumönnum. Junkfood tryggir heitar máltíðir á hverjum degi fyrir hundruð heimilislausra einstaklinga í Kaupmannahöfn. Á hverjum degi framleiðir teymið um 350 næringarríkar máltíðir. Sjálfbærni er kjarninn í hugmyndafræði verkefnisins þar sem allt kapp er lagt á að draga úr matarsóun. Norrænn matvælamiðlari: Det Grønne Museum, Danmörku Græna safnið er þjóðminjasafn Danmerkur fyrir veiðar, skógrækt, landbúnað og matvæli. Hér geta bæði börn og fullorðnir upplifað danska og norræna matarmenningu ásamt sögunni. Í Græna safninu, sem er þekkingarstofnun, er unnið ötullega við að varðveita og rækta gömul afbrigði af plöntum og dýrategundum. Auk þess er skóli á safninu sem sérhæfir sig í matarfræðum, þar sem gestir geta notað forn eldhústæki og lært gamlar hefðir. Norrænn matvælalistamaður: Brӓnnland Cider, Svíþjóð Andreas Sundgren, stofnandi Brӓnnland Cider, hefur búið til hágæða áfengan eplasíder. Vörurnar bera sterka sögu um þrautseigju og sérstöðu fyrir- tækisins sem Andreas hefur ötullega byggt upp. Í dag eru framleiddar nokkrar tegundir fyrir innlendan og alþjóðlegan markað og eru meðal annars nokkrir Michelin- veitingastaðir meðal viðskiptavina á sídernum. Norrænn matvælaframleiðandi: Frederiksdals Kirsebærvin, Danmörk Framleiðsla á hágæða víni úr kirsuberjum sem ræktuð eru í Frederiksdal í suðurhluta Danmerkur og gerjað er með sérstakri gamalli tækni. Víngerðarmeistarinn notast við villta gerjun í framleiðslunni áður en vínið er geymt utandyra í stórum glerkútum en þannig á veðurfarið stóran þátt í að skapa einstakt bragð vínsins. Frederiksdals Kirsebærvin er eini framleiðandinn í heiminum sem framleiðir kirsuberjavín sam- kvæmt þessari aldagömlu hefð. Markmiðið er að framleiða heimsins besta kirsuberjavín og sumir halda því fram að því hafi nú þegar verið náð. Hinn sænski Andreas Sundgren er höfundur hágæða áfengs eplasíders og var hann kjörinn matvælalistamaður Embluverðlaunanna. Sendiherra Íslands í Noregi, Ingibjörg Davíðsdóttir, bauð til móttöku í embættisbústaðnum í Osló þar sem þær íslensku vörur sem tilnefndar voru til Embluverðlaunanna voru kynntar fyrir aðilum tengdum matvælageiranum þar í landi. Kokkurinn Gabríel Kristinn Bjarnason (t.v.), sem nýverið vann titilinn Besti ungkokkur Norðurlanda, bauð upp á smárétti úr íslenskum hráefnum. Mynd / Aðsend Pétur Pétursson kynnti nýsköpun sína, Jökla rjómalíkjör, sem vakti mikla lukku. Mynd / Aðsend
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.