Bændablaðið - 07.07.2022, Blaðsíða 28

Bændablaðið - 07.07.2022, Blaðsíða 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022 Æskuvinirnir Karl G. Friðriksson og Grétar Gústavsson ætla að aka Vestfjarðahringinn í sumar. Með því ætla þeir að láta gott af sér leiða og safna styrkjum fyrir Vináttu, sem er forvarnarverkefni Barnaheilla gegn einelti. Árið 2015 óku þeir félagar hringinn í kringum landið á þjóðvegi 1 til þess að vekja máls á þessu sama málefni. „Við ætlum að klára það sem eftir er af hringnum núna í sumar með því að aka Vestfirðina frá Staðarskála að Hvanneyri. Við leggjum af stað frá Staðarskála miðvikudaginn 13. júlí klukkan tíu og vonumst til þess að sjá sem flesta. Við höfum verið í sambandi við nokkra bændur og Ferguson-áhugamenn á svæðinu, en öllum er velkomið að koma. Það skemmir ekki fyrir ef menn mæta á Ferguson. Ef allt gengur að óskum þá komum við í mark á Hvanneyri þann 20. júlí,“ segir Karl. Félagarnir munu stoppa í leikskólum á leiðinni til þess að kynna verkefni Barnaheilla Vinátta gegn einelti, sem er fyrirbyggjandi verkefni fyrir leikskólabörn. „Við ferðumst með fjólubláan bangsa sem heitir Blær, sem er einkennismerki verkefnisins, og við munum taka hann með okkur á leikskólana,“ segir Karl. „Jafnframt munum við heimsækja nokkur fyrirtæki á svæðinu þar sem þau ætla að lýsa yfir stuðningi við verkefnið, en auðvitað munum við líka heimsækja bændur þegar við erum að keyra um sveitirnar; rennum í hlað, heilsum og eigum vonandi gott samtal um landsins gagn og nauðsynjar.“ Keyra 100 km á fjórum tímum „Við getum keyrt í 10–13 tíma á dag,“ segir Grétar. „Það er hins vegar mjög misjafnt. Suma daga keyrum við bara í tvo tíma og jafnvel ekki neitt. Við erum að jafnaði fjóra klukkutíma að keyra hundrað kílómetra með stoppum.“ Félagarnir beita ýmsum ráðum til þess að halda kostnaði við ferðalagið í lágmarki. „Við erum að reyna að fá vini og vandamenn til þess að styðja okkur, en við viljum helst að peningurinn sem við söfnum renni beint í Barnaheill. Við höfum til að mynda leitað til vina, vandamanna og vina þeirra eftir gistingu til þess að spara kostnað,“ segir Karl. Gamall draumur æskuvina Grétar og Karl kynntust ungir að aldri í sveit á Valdarási í Fitjárdal í Vestur-Húnavatnssýslu. „Ég var sex ára þegar ég kom þangað og Karl var fimm ára þegar hann kom fyrst. Ég bjó þarna alveg þangað til ég var 17 ára og Karl var alltaf í sveit þarna á sumrin,“ segir Grétar. Karl bendir á fagurrauðan Massey Ferguson 35x við hlið sér. „Þegar þessi gripur kemur í hlaðið árið 1963 vorum við farnir að keyra traktora og tókum ástfóstri við vélina. Þetta er sama vélin og kom á Valdarás á sjöunda áratugnum. Hin vélin sem við notum er sambærileg og er í eigu Hauks Júlíussonar á Hvanneyri. Hann hefur verið einstök hjálparhella í báðum þessum ævintýraferðum okkar.“ Axel Guðmundsson, bóndi á Valdarási, keypti vélina á sínum tíma en að sögn Grétars lærði hann aldrei að keyra traktor. „Við urðum því hálfgerðir umsjónarmenn vélarinnar, ég tíu ára og Karl átta ára. Ég segi svo við Karl þarna um sumarið að það væri nú gaman að fara hringinn á þessum traktor. Við veltum því mikið fyrir okkur en við vissum ekki alveg hvernig við ættum að komast yfir Skeiðarársand. Svo hringir Karl í mig fyrir nokkrum árum og fer að spyrja mig hvort við ætlum ekki að láta verða af því að fara hringinn þar sem að allt sé orðið brúað og fínt. Ég hélt fyrst að hann væri að grínast, en svo hélt hann áfram að ýta á eftir þessu. Að lokum ákváðum við að láta verða af því og fórum hringveginn sumarið 2015.“ Allir styrkir af ferðinni renna í verkefni Barnaheilla Meðal stuðningsaðila ferðarinnar eru Olís, N1, Húsasmiðjan, Búvélar, Plexigler og Bílagler. „Okkur hefur alls staðar verið tekið opnum örmum, en við höfum ekki verið sérstaklega að leita styrkja til þess að kosta sjálfa ferðina, heldur höfum við verið að hvetja fyrirtæki og fólk til þess að styrkja Barnaheill,“ segir Karl. „Ég man ekki nákvæmlega hvað við náðum að safna miklum fjármunum síðast, en Erna Reynisdóttir hjá Barnaheillum sagði okkur eftir ferðina að Vináttuverkefnið væri komið í meira en helming allra leikskóla á landinu og þessi fjáröflun hjálpaði til við það,“ segir Karl. „Peningarnir söfnuðust bæði þegar við vorum að keyra og þegar við gáfum út bókina Vinir Ferguson. Allar tekjur af sölu þeirrar bókar fóru í verkefnið.“ Með ferðinni vilja félagarnir leggja sérstaka áherslu á hugtakið „vinátta“ enda hafa þeir haldið í sína miklu vináttu þótt þeir færu ólíkar leiðir í lífinu. „Grétar varð fyrir miklu einelti og átti erfiða æsku. Sjálfur finn ég mikið til með fólki sem fær ekki þá virðingu sem það á skilið. Þetta hefur sérstaklega mikil áhrif á börn,“ segir Karl. Hægt er að fylgjast með ferðum félaganna á Facebook og Instagram, undir Vinir Ferguson og Vestfjarða. Þau sem vilja leggja verkefninu lið geta sent SMS skilaboðin „Barnaheill“ í síma 1900 og styrkt um 1.900 krónur. Það er líka hægt að styrkja verkefnið í gegnum heimasíðuna barnaheill.is. LÍF&STARF Vinir Ferguson keyra Vestfirðina til að styrkja Barnaheill: Á traktor gegn einelti Ástvaldur Lárusson astvaldur@bondi.is Vinir Ferguson ungir að árum á Valdarási í Fitjárdal. Mynd / Einkaeign Karl G. Friðriksson og Grétar Gústavsson við Massey Ferguson 35x árgerð 1963 sem verður notaður til þess að keyra Vestfjarðahringinn í sumar. Mynd / ÁL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.