Bændablaðið - 07.07.2022, Blaðsíða 43

Bændablaðið - 07.07.2022, Blaðsíða 43
43Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022 Sáð inni í maí, æskilegt bil á milli plantna í beði 20 sentímetrar. Má einnig fjölga með skiptingu. Dafnar best á sólríkum stað og í frjósömum jarðvegi. Upprunnin í löndunum við Miðjarðarhaf. Rómverjar plöntuðu orígan á grafir í þeirri trú að plantan veitti hinum látnu gleði. Mikið notað í ítalska rétti, pitsur og pasta. Góð í kryddolíur og notuð í ilmvötn. Piparrót (Armoracia rusticana). Fjölær og harðgerð planta sem er ræktuð vegna digurrar rótarinnar en það má einnig nýta blöðin. Blómin hvít. Þrífst best í djúpum, frjósömum jarðvegi og á sólríkum stað. Dreifir sér mikið og því best að rækta í potti. Ævagömul ræktunarjurt við Miðjarðarhaf og í Egyptalandi. Mikið notuð sem krydd í sósur. Rósmarín (Rosmarinus officinalis). Sígræn jurt sem nær tveggja metra hæð í náttúrulegum heimkynnum sínum við Miðjarðarhaf. Einær hér á landi. Blöðin oddmjó og blómin blá. Ilmsterk. Sáð inni í björtum glugga í febrúar, eins má kaupa stálpaðar plöntur á vorin. Þrífst best í potti á þurrum stað og rýr jarðvegur hentar rósmaríni ágætlega. Gott með öllu kjöti og villibráð. Rósmarín var tákn tryggðar hjá Forn- Grikkjum og ofið í brúðarvendi og brennt sem reykelsi. Það er sagt örva minnið og hugsun. Virkar á höfuðverk og spennu. Á miðöldum var plantan notuð sem jólaskraut í Evrópu. Salvía (Salvía officunalis). Sígræn jurt sem getur verið fjölær ef hún fær vetrarskjól. Sáð í mars. Vex best á björtum stað og í vel framræstum jarðvegi. Beiskt bragð sem fer vel með ljósu kjöti, ostum og rauðvíni. Ítalir nota hana í lifrarrétti með lauk. Gömul galdra-, lækninga- og kryddjurt. Notuð í reykelsi og til að hreinsa burt illt. Keltar trúðu því að máttur salvíunnar væri svo magnaður að jurtin gæti reist menn frá dauðum. Sellerí (Apium graveolens). Bæði til stilksellerí (A. graveolens var. dulcu) og hnúðsellerí (A. graveolens var. rapaceum). Sellerí er gömul, tvíær ræktunarjurt sem vex villt víða í Evrópu. Báðar gerðir þrífast best í vel framræstum, moldarmiklum og næringarríkum jarðvegi. Nauð- synlegt er að forrækta selleríið inni áður en það er hert og plantað út. Æskilegt bil á milli plantna er 30 til 40 sentímetrar. Sítrónugras (Cymbopogon citratus). Upprunnið í Suður-Asíu og getur náð um 60 sentímetra hæð. Einær hér og þrífst best í potti í frjósömum jarðvegi. Mikið notað í austurlenskri matargerð. Skarfakál (Cochlearia officinalis). Vex villt meðfram ströndum en finnst einnig inn til sveita. Dafnar best í moldarríkum malarjarðvegi, gjarnan vel blönd- uðum þörungaáburði og þurrkuðu hænsnadriti. Í Íslenskum sjávarháttum eftir Lúðvík Kristjáns - son segir að skarfakál hafi víða vaxið á veggjum og þökum torfbæja á sjávarjörðum kringum landið. Skarfakál er ríkt af C-vítamíni og þótti einnig gott við margs konar kvillum, til dæmis gigt, húðsjúkdómum og andremmu. Gott í salat. Skessujurt (Levisticum officinale). Stórvaxin jurt sem nær tveggja metra hæð og þarf því mikið pláss. Blaðstór með gulgræn blóm. Skessujurt er ágeng planta sem bætir hratt við sig sé ekki haldið aftur af henni. Upprunnin frá Suður-Evrópu þar sem hún er þekkt lækningajurt og nýtt til matar. Vegna lyktarinnar var lauf af skessujurt sett í baðvatn og var hún sögð hafa góð áhrif á húðina. Nú til dags er hún notuð í te og fiskrétti og er ómissandi í íslenska kjötsúpu. Um tíma var hún kölluð Maggi- jurtin vegna þess að súpufram- leiðandinn Maggi notaði hana í flesta rétti sem hann framleiddi. Steinselja (Petroselium crispum). Einær og stundum tvíær jurt sem launar góða meðferð með ríkulegri uppskeru. Hrokkinblaða steinselju er sáð í mars en þeirri sléttblaða í apríl og þykir hún bragðbetri. Dafnar best í djúpum potti í skjóli og á sólríkum stað. Upprunnin í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs. Hentar með öllum mat. Full af vítamínum og andoxunarefnum. Í Búnaðarbálki, sem er titlaður Eymdaróður eður óvættadvöl og ógeðsæfi, sem birtist í tímaritinu Fjallkonunni 1909, segir: Steinselja leysir þvagsins þunga, þá miltisteppu og kviðarstein; spínakkan mýkir líf og lungu, laukurinn kveisu og ormamein; eins hvert meðal það eykur kraft áborið, sem til matar haft. Túnfífill (Taraxacum officinale). Upp af langri stólparót vex holur stöngull sem getur orðið allt að 40 sentímetra hár. Blöðin í stofnhvirfingu. Bæði stöngull og blöð með hvítum mjólkursafa. Blómin mynda stórar gular körfur. Fræin með hvítan svifkrans. Blómgast í maí. Algengur um allt land. Fífill er elsta þekkta heitið á þessari jurt. Af öðrum nöfnum má nefna beiskjugras, sem vísar til þess að jurtin er beisk á bragðið. Vallarfífill bendir til vaxtar- staðarins, hrafnablaðka til blaðanna og bifukolla eða biðukolla til fræjanna. Nafnið múkakróna er þýðing á dönsku heiti. Einnig þekkt sem ætifífill og húsfreyjuhrellir. Blöðin eða hrafnablöðkurnar þóttu góðar í salat og voru taldar sefa blóðhita bráðlyndra manna. Einnig talin góð við svefnleysi. Ungum mönnum sem bjuggu einlífi var ráðlagt að neyta blaðanna þar sem þau dempuðu losta, bættu meltinguna og losuðu harðlífi. Ræturnar voru taldar hið mesta lostæti væru þær soðnar í mjólk, og þurrkaðar væru þær notaðar sem kaffibætir. Fífilmjólk var talin góð gegn vörtum og líkþorni. Blómin soðin í sírópi með sykri. Gefa gulan lit séu þau notuð til litunar. Túnsúra (Rumex acetosa). Fjölær jurt sem vex villt hér og víða í Evrópu og er sums staðar ræktuð sem grænmeti vegna blaðanna. Blómgast í maí-júní, sögð góð við bjúg og talin örva og styrkja lifrina. Tilvalin við lystarleysi, hægða- tregðu og gyllinæð. Ætihvönn (Angelica archangelica). Stórvaxin jurt sem verður allt að 180 cm há. Stöngullinn þykkur og holur að innan. Blöðin stór. Blómin hvít og gefa frá sér sterka lykt. Blómstrar í júlí. Algeng í lautum og hvömmum um allt land. Þekkt undir mörgum nöfnum. Höfuðhvönn, graðhvönn, hvannarót og hvannagras. Latneska orðið angelica þýðir engill og af því eru dregin nöfnin engilsjurt, englajurt, englarót og erkiengilsjurt. Nafnið brjósthvönn vísar til þess að hvannavatn þótti gott við brjóstveiki. Hvönnin hefur lengi verið talin góð lækningajurt. Talið er að hún hafi verið ræktuð hér á landi frá landnámi og orðið hvannagarður er þekkt úr fornsögunum. Stönglarnir voru afhýddir og borðaðir hráir og taldir hollt sælgæti. Rótin þótti hin mesta vörn við alls kyns plágum. Björn Halldórsson segir í Grasnytjum að jurtin sé hið besta meðal við drepsótt og eitri, að hún dreifi stöðnuðu blóði og eyði vondum vessum. Rótin styrkir maga, eyðir vindi, drepur orma og er góð við tannverk. Fræin þóttu góð með hunangi til átu. Hvönn hefur lengi verið notuð til að bragðbæta brennivín. KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10 104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is HAGKVÆM DEKK FYRIR ALVÖRU KRÖFUR Þegar velja skal vinnuvéla- og landbúnaðardekk skipta gæði, ending og áreiðanleiki höfuðmáli. Maxam dekkin eru hagkvæmur kostur og hafa reynst vel við krefjandi aðstæður. Gerðu kröfur - hafðu samband við sölumenn okkar í síma 590 5280 og kynntu þér kosti Maxam dekkjanna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.