Bændablaðið - 07.07.2022, Síða 43
43Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022
Sáð inni í maí, æskilegt bil á milli
plantna í beði 20 sentímetrar. Má
einnig fjölga með skiptingu. Dafnar
best á sólríkum stað og í frjósömum
jarðvegi. Upprunnin í löndunum við
Miðjarðarhaf. Rómverjar plöntuðu
orígan á grafir í þeirri trú að plantan
veitti hinum látnu gleði.
Mikið notað í ítalska rétti, pitsur
og pasta. Góð í kryddolíur og notuð
í ilmvötn.
Piparrót (Armoracia rusticana).
Fjölær og harðgerð planta sem er
ræktuð vegna digurrar rótarinnar en
það má einnig nýta blöðin. Blómin
hvít. Þrífst best í djúpum, frjósömum
jarðvegi og á sólríkum stað. Dreifir
sér mikið og því best að rækta í
potti. Ævagömul ræktunarjurt við
Miðjarðarhaf og í Egyptalandi. Mikið
notuð sem krydd í sósur.
Rósmarín (Rosmarinus
officinalis).
Sígræn jurt sem nær tveggja metra
hæð í náttúrulegum heimkynnum
sínum við Miðjarðarhaf. Einær hér á
landi. Blöðin oddmjó og blómin blá.
Ilmsterk. Sáð inni í björtum glugga
í febrúar, eins má kaupa stálpaðar
plöntur á vorin. Þrífst best í potti á
þurrum stað og rýr jarðvegur hentar
rósmaríni ágætlega.
Gott með öllu kjöti og villibráð.
Rósmarín var tákn tryggðar hjá Forn-
Grikkjum og ofið í brúðarvendi og
brennt sem reykelsi. Það er sagt örva
minnið og hugsun.
Virkar á höfuðverk og spennu.
Á miðöldum var plantan notuð sem
jólaskraut í Evrópu.
Salvía (Salvía officunalis).
Sígræn jurt sem getur verið fjölær
ef hún fær vetrarskjól. Sáð í mars.
Vex best á björtum stað og í vel
framræstum jarðvegi. Beiskt bragð
sem fer vel með ljósu kjöti, ostum og
rauðvíni. Ítalir nota hana í lifrarrétti
með lauk. Gömul galdra-, lækninga-
og kryddjurt. Notuð í reykelsi og til
að hreinsa burt illt. Keltar trúðu því að
máttur salvíunnar væri svo magnaður
að jurtin gæti reist menn frá dauðum.
Sellerí (Apium graveolens).
Bæði til stilksellerí (A. graveolens var.
dulcu) og hnúðsellerí (A. graveolens
var. rapaceum). Sellerí er gömul,
tvíær ræktunarjurt sem vex villt víða
í Evrópu.
Báðar gerðir þrífast best í vel
framræstum, moldarmiklum og
næringarríkum jarðvegi. Nauð-
synlegt er að forrækta selleríið inni
áður en það er hert og plantað út.
Æskilegt bil á milli plantna er 30
til 40 sentímetrar.
Sítrónugras (Cymbopogon
citratus).
Upprunnið í Suður-Asíu og getur náð
um 60 sentímetra hæð.
Einær hér og þrífst best í potti í
frjósömum jarðvegi. Mikið notað í
austurlenskri matargerð.
Skarfakál (Cochlearia officinalis).
Vex villt meðfram ströndum en finnst
einnig inn til sveita.
Dafnar best í moldarríkum
malarjarðvegi, gjarnan vel blönd-
uðum þörungaáburði og þurrkuðu
hænsnadriti. Í Íslenskum
sjávarháttum eftir Lúðvík Kristjáns -
son segir að skarfakál hafi víða vaxið
á veggjum og þökum torfbæja á
sjávarjörðum kringum landið.
Skarfakál er ríkt af C-vítamíni
og þótti einnig gott við margs
konar kvillum, til dæmis gigt,
húðsjúkdómum og andremmu. Gott
í salat.
Skessujurt (Levisticum officinale).
Stórvaxin jurt sem nær tveggja metra
hæð og þarf því mikið pláss. Blaðstór
með gulgræn blóm. Skessujurt er
ágeng planta sem bætir hratt við sig sé
ekki haldið aftur af henni. Upprunnin
frá Suður-Evrópu þar sem hún er
þekkt lækningajurt og nýtt til matar.
Vegna lyktarinnar var lauf af
skessujurt sett í baðvatn og var hún
sögð hafa góð áhrif á húðina. Nú til
dags er hún notuð í te og fiskrétti og
er ómissandi í íslenska kjötsúpu.
Um tíma var hún kölluð Maggi-
jurtin vegna þess að súpufram-
leiðandinn Maggi notaði hana í flesta
rétti sem hann framleiddi.
Steinselja (Petroselium crispum).
Einær og stundum tvíær jurt sem
launar góða meðferð með ríkulegri
uppskeru.
Hrokkinblaða steinselju er sáð í
mars en þeirri sléttblaða í apríl og
þykir hún bragðbetri. Dafnar best í
djúpum potti í skjóli og á sólríkum
stað. Upprunnin í löndunum fyrir
botni Miðjarðarhafs. Hentar með
öllum mat. Full af vítamínum og
andoxunarefnum.
Í Búnaðarbálki, sem er titlaður
Eymdaróður eður óvættadvöl og
ógeðsæfi, sem birtist í tímaritinu
Fjallkonunni 1909, segir:
Steinselja leysir þvagsins þunga,
þá miltisteppu og kviðarstein;
spínakkan mýkir líf og lungu,
laukurinn kveisu og ormamein;
eins hvert meðal það eykur kraft
áborið, sem til matar haft.
Túnfífill (Taraxacum officinale).
Upp af langri stólparót vex holur
stöngull sem getur orðið allt
að 40 sentímetra hár. Blöðin í
stofnhvirfingu. Bæði stöngull og blöð
með hvítum mjólkursafa. Blómin
mynda stórar gular körfur. Fræin
með hvítan svifkrans. Blómgast í
maí. Algengur um allt land. Fífill er
elsta þekkta heitið á þessari jurt. Af
öðrum nöfnum má nefna beiskjugras,
sem vísar til þess að jurtin er beisk
á bragðið.
Vallarfífill bendir til vaxtar-
staðarins, hrafnablaðka til blaðanna
og bifukolla eða biðukolla til
fræjanna. Nafnið múkakróna er
þýðing á dönsku heiti. Einnig þekkt
sem ætifífill og húsfreyjuhrellir.
Blöðin eða hrafnablöðkurnar
þóttu góðar í salat og voru taldar
sefa blóðhita bráðlyndra manna.
Einnig talin góð við svefnleysi.
Ungum mönnum sem bjuggu einlífi
var ráðlagt að neyta blaðanna þar
sem þau dempuðu losta, bættu
meltinguna og losuðu harðlífi.
Ræturnar voru taldar hið mesta
lostæti væru þær soðnar í mjólk,
og þurrkaðar væru þær notaðar sem
kaffibætir. Fífilmjólk var talin góð
gegn vörtum og líkþorni. Blómin
soðin í sírópi með sykri. Gefa gulan
lit séu þau notuð til litunar.
Túnsúra (Rumex acetosa).
Fjölær jurt sem vex villt hér og víða í
Evrópu og er sums staðar ræktuð sem
grænmeti vegna blaðanna. Blómgast
í maí-júní, sögð góð við bjúg og talin
örva og styrkja lifrina.
Tilvalin við lystarleysi, hægða-
tregðu og gyllinæð.
Ætihvönn (Angelica archangelica).
Stórvaxin jurt sem verður allt að 180
cm há. Stöngullinn þykkur og holur
að innan. Blöðin stór.
Blómin hvít og gefa frá sér sterka
lykt. Blómstrar í júlí. Algeng í lautum
og hvömmum um allt land.
Þekkt undir mörgum nöfnum.
Höfuðhvönn, graðhvönn, hvannarót
og hvannagras.
Latneska orðið angelica þýðir
engill og af því eru dregin nöfnin
engilsjurt, englajurt, englarót og
erkiengilsjurt.
Nafnið brjósthvönn vísar til
þess að hvannavatn þótti gott við
brjóstveiki.
Hvönnin hefur lengi verið talin
góð lækningajurt.
Talið er að hún hafi verið
ræktuð hér á landi frá landnámi
og orðið hvannagarður er þekkt
úr fornsögunum. Stönglarnir voru
afhýddir og borðaðir hráir og taldir
hollt sælgæti. Rótin þótti hin mesta
vörn við alls kyns plágum.
Björn Halldórsson segir í
Grasnytjum að jurtin sé hið besta
meðal við drepsótt og eitri, að
hún dreifi stöðnuðu blóði og eyði
vondum vessum.
Rótin styrkir maga, eyðir vindi,
drepur orma og er góð við tannverk.
Fræin þóttu góð með hunangi til átu.
Hvönn hefur lengi verið notuð til að
bragðbæta brennivín.
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
HAGKVÆM DEKK FYRIR
ALVÖRU KRÖFUR
Þegar velja skal vinnuvéla- og landbúnaðardekk skipta gæði,
ending og áreiðanleiki höfuðmáli.
Maxam dekkin eru hagkvæmur kostur og
hafa reynst vel við krefjandi aðstæður.
Gerðu kröfur - hafðu samband við sölumenn okkar
í síma 590 5280 og kynntu þér kosti Maxam dekkjanna.