Bændablaðið - 07.07.2022, Blaðsíða 26

Bændablaðið - 07.07.2022, Blaðsíða 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022 LÍF&STARF Hjörtur L. Jónsson skrifaði vinsælar greinar um ökutæki og reynsluakstur í 299 tölublöð Bændablaðið. Skipti engu hvort um var að ræða bíla, traktora, mótorhjól, fjórhjól eða önnur faratæki. Að sögn Hjartar fylgir reynslu­ akstri mengun eins og öðrum akstri. Hjörtur átti hugmyndina að skógrækt mótorhjólamanna við Heklurætur. Í pistlum sínum nefndi Hjörtur aldrei að hann hefur frá 2009 kolefnisjafnað alla sína keyrslu, að vísu ekki í nafni Bændablaðsins heldur í nafni Slóðavina, mótor­ hjólaklúbbsins sem hann er í. Það sem áður var gróðurlaus auðn kallast í dag Mótorhjólaskógur. Slóðavinir í samstarf við Hekluskóga „Vorið 2009 hófu félagar í Ferða­ og útivistarfélaginu Slóðavinum samstarf með Hekluskógum í að dreifa áburði á landsvæði rétt suður af Sultartangalóni sem kallast Vaðalda. Aðkoma á svæðið er erfið og því tilvalin fyrir Slóðavini sem eiga fjórhjól, sexhjól og torfærumótorhjól.“ Í framhaldi af því dreifðu Slóðavinir áburði á Vaðöldu og gróðursettu birki í þrjú vor á svæðinu. Fimm mótorhjólafélög bætast við Vorið 2011 fékk Hjörtur þá flugu í höfuðið að gera enn betur og bar upp hugmyndina við Hrein Óskarsson, þáverandi verkefna­ stjóra Hekluskóga. „Hugmyndin gekk út á að Slóða­ vinir héldu áfram að græða upp Vaðöldu, en að bjóða öðrum mótor­ hjólafélögum að græða upp 500 sinnum 500 metra reiti norður frá veginum þar sem Landvegur endar og skiptir í Sprengidalsleið eða Þjórsárdalsveg. Hjörtur bauðst til að stjórna verkinu fyrir hönd mótorhjólamanna í samstarfi við verkefnastjóra Hekluskóga í tíu ár, betla áburð og koma honum í vegkantinn á svæði hvers félags. „Í dag taka fimm mótorhjóla­ klúbbar þátt í verkefninu. Slóðavinir sinna Vaðöldu og talið frá Þjórsár­ brú er fyrstur reitur BMW klúbbsins, síðan koma Skutlur kvennaklúbbur og svo er sameiginlegur reitur allra félaganna. Þar fyrir austan eru HOG Íslandi, Harley Davidson eigendur, svo kemur auður reitur og síðan reitur Endurvinnslunnar og austast er reitur Gaflara úr Hafnafirði.“ Mótorhjólaskógur „Til að vera sem mest skapandi og óháð Hekluskógum betluðum við áburð af nokkrum fyrirtækjum. Markmiðið var að fá sex stórsekki árlega til að hvert félag fengi einn sekk og sameiginlegi reiturinn líka. N1 hefur alltaf lánað vörubíl með krana til að flytja áburðinn á staðinn. Samstarfið hófst formlega með lítilli athöfn á miðju svæðinu þann 19. maí 2012 þegar hvert félag plantaði einu reynitré. Trén voru á bilinu 40 til 60 sentímetrar á hæð og fékk svæðið heitið Mótorhjólaskógurinn. Núna, tíu árum seinna, hefur hvert félag dreift um 600 kílóum af áburði í sinn reit og plantað þar um 500 birkiplöntum og eru fyrstu reynitrén flest orðin yfir tveir metrar. Á hverju ári er svo sameiginlegur landgræðsludagur seinni hluta maí og áburðinum ekið á staðinn og pokarnir hífðir í vegkantinn. Verkefnastjóri Hekluskóga kemur svo með birkiplöntur og geispur til að planta trjám.“ 30.000 trjáplöntur á tíu árum Hjörtur segir að fyrstu árin hafi Skeljungur, Olís og Ölgerðin gefið allan áburðinn og N1 lánaði bíl til að flytja hann. „Betlið varð erfiðara með tímanum og var því sótt um styrk í Pokasjóði til áburðarkaupa. Við fengum styrkinn en tímdum ekki að nota hann og ákváðum bara að gerast grimmari í betlinu. Í staðinn notuðum við styrkinn til að láta gera upplýsingaskilti um reit hvers félags og kynna þá sem gefa okkur áburð og eftir það gekk miklu betur að fá gefins áburð. Núna tíu árum eftir að við hófum samstarfið erum við búin að planta yfir 30.000 plöntum og bera á um 35 tonn af áburði og svæðið norðan við veginn ber þess greinileg merki því á sumrin er allt þar að mestu grænt fyrir en óttaleg gróðursnauð fyrir sunnan veg,“ segir Hjörtur L. Jónsson sem er til alls líklegur. Á 10 árum breytist land úr gróðurlausum mel í Mótorhjólaskóg: Kolefnisjafnaður reynsluakstur Upplýsingaskilti Mótorhjólaskógar. Hjörtur L. Jónsson, mótorhjólakappi og skógræktarmaður. Áburðarsekkjum landað við skógræktarsvæði mótorhjólamanna. Mæting í gróðursetningu er góð. Gróðursetningardagur mótorhjólafélaganna sem standa að Mótorhjólaskógi, sem spannar stórt svæði við Heklu. Myndir /HLJ Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.