Bændablaðið - 07.07.2022, Page 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022
LÍF&STARF
Hjörtur L. Jónsson skrifaði
vinsælar greinar um ökutæki
og reynsluakstur í 299 tölublöð
Bændablaðið. Skipti engu hvort
um var að ræða bíla, traktora,
mótorhjól, fjórhjól eða önnur
faratæki.
Að sögn Hjartar fylgir reynslu
akstri mengun eins og öðrum
akstri. Hjörtur átti hugmyndina
að skógrækt mótorhjólamanna
við Heklurætur.
Í pistlum sínum nefndi Hjörtur
aldrei að hann hefur frá 2009
kolefnisjafnað alla sína keyrslu,
að vísu ekki í nafni Bændablaðsins
heldur í nafni Slóðavina, mótor
hjólaklúbbsins sem hann er í. Það
sem áður var gróðurlaus auðn
kallast í dag Mótorhjólaskógur.
Slóðavinir í samstarf
við Hekluskóga
„Vorið 2009 hófu félagar í Ferða
og útivistarfélaginu Slóðavinum
samstarf með Hekluskógum í
að dreifa áburði á landsvæði rétt
suður af Sultartangalóni sem kallast
Vaðalda. Aðkoma á svæðið er
erfið og því tilvalin fyrir Slóðavini
sem eiga fjórhjól, sexhjól og
torfærumótorhjól.“
Í framhaldi af því dreifðu
Slóðavinir áburði á Vaðöldu
og gróðursettu birki í þrjú vor
á svæðinu.
Fimm mótorhjólafélög bætast við
Vorið 2011 fékk Hjörtur þá flugu
í höfuðið að gera enn betur og
bar upp hugmyndina við Hrein
Óskarsson, þáverandi verkefna
stjóra Hekluskóga.
„Hugmyndin gekk út á að Slóða
vinir héldu áfram að græða upp
Vaðöldu, en að bjóða öðrum
mótor hjólafélögum að græða upp
500 sinnum 500 metra reiti norður
frá veginum þar sem Landvegur
endar og skiptir í Sprengidalsleið
eða Þjórsárdalsveg.
Hjörtur bauðst til að stjórna
verkinu fyrir hönd mótorhjólamanna
í samstarfi við verkefnastjóra
Hekluskóga í tíu ár, betla áburð og
koma honum í vegkantinn á svæði
hvers félags.
„Í dag taka fimm mótorhjóla
klúbbar þátt í verkefninu. Slóðavinir
sinna Vaðöldu og talið frá Þjórsár
brú er fyrstur reitur BMW klúbbsins,
síðan koma Skutlur kvennaklúbbur
og svo er sameiginlegur reitur
allra félaganna.
Þar fyrir austan eru HOG Íslandi,
Harley Davidson eigendur, svo
kemur auður reitur og síðan reitur
Endurvinnslunnar og austast er
reitur Gaflara úr Hafnafirði.“
Mótorhjólaskógur
„Til að vera sem mest skapandi og
óháð Hekluskógum betluðum við
áburð af nokkrum fyrirtækjum.
Markmiðið var að fá sex stórsekki
árlega til að hvert félag fengi einn
sekk og sameiginlegi reiturinn
líka. N1 hefur alltaf lánað vörubíl
með krana til að flytja áburðinn
á staðinn.
Samstarfið hófst formlega
með lítilli athöfn á miðju svæðinu
þann 19. maí 2012 þegar hvert
félag plantaði einu reynitré. Trén
voru á bilinu 40 til 60 sentímetrar
á hæð og fékk svæðið heitið
Mótorhjólaskógurinn. Núna, tíu
árum seinna, hefur hvert félag dreift
um 600 kílóum af áburði í sinn reit
og plantað þar um 500 birkiplöntum
og eru fyrstu reynitrén flest orðin
yfir tveir metrar.
Á hverju ári er svo sameiginlegur
landgræðsludagur seinni hluta
maí og áburðinum ekið á staðinn
og pokarnir hífðir í vegkantinn.
Verkefnastjóri Hekluskóga kemur
svo með birkiplöntur og geispur til
að planta trjám.“
30.000 trjáplöntur á tíu árum
Hjörtur segir að fyrstu árin hafi
Skeljungur, Olís og Ölgerðin gefið
allan áburðinn og N1 lánaði bíl til
að flytja hann. „Betlið varð erfiðara
með tímanum og var því sótt um
styrk í Pokasjóði til áburðarkaupa.
Við fengum styrkinn en tímdum ekki
að nota hann og ákváðum bara að
gerast grimmari í betlinu.
Í staðinn notuðum við styrkinn
til að láta gera upplýsingaskilti um
reit hvers félags og kynna þá sem
gefa okkur áburð og eftir það gekk
miklu betur að fá gefins áburð.
Núna tíu árum eftir að við hófum
samstarfið erum við búin að planta
yfir 30.000 plöntum og bera á um
35 tonn af áburði og svæðið norðan
við veginn ber þess greinileg merki
því á sumrin er allt þar að mestu
grænt fyrir en óttaleg gróðursnauð
fyrir sunnan veg,“ segir Hjörtur L.
Jónsson sem er til alls líklegur.
Á 10 árum breytist land úr gróðurlausum mel í Mótorhjólaskóg:
Kolefnisjafnaður reynsluakstur
Upplýsingaskilti Mótorhjólaskógar.
Hjörtur L. Jónsson, mótorhjólakappi
og skógræktarmaður.
Áburðarsekkjum landað við skógræktarsvæði mótorhjólamanna.
Mæting í gróðursetningu er góð.
Gróðursetningardagur mótorhjólafélaganna sem standa að Mótorhjólaskógi, sem spannar stórt svæði við Heklu. Myndir /HLJ
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is