Bændablaðið - 07.07.2022, Side 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022
Æskuvinirnir Karl G. Friðriksson
og Grétar Gústavsson ætla að aka
Vestfjarðahringinn í sumar.
Með því ætla þeir að láta gott
af sér leiða og safna styrkjum fyrir
Vináttu, sem er forvarnarverkefni
Barnaheilla gegn einelti. Árið 2015
óku þeir félagar hringinn í kringum
landið á þjóðvegi 1 til þess að vekja
máls á þessu sama málefni.
„Við ætlum að klára það sem eftir
er af hringnum núna í sumar með því
að aka Vestfirðina frá Staðarskála
að Hvanneyri. Við leggjum af stað
frá Staðarskála miðvikudaginn 13.
júlí klukkan tíu og vonumst til þess
að sjá sem flesta. Við höfum verið
í sambandi við nokkra bændur og
Ferguson-áhugamenn á svæðinu,
en öllum er velkomið að koma. Það
skemmir ekki fyrir ef menn mæta á
Ferguson. Ef allt gengur að óskum þá
komum við í mark á Hvanneyri þann
20. júlí,“ segir Karl.
Félagarnir munu stoppa í
leikskólum á leiðinni til þess að
kynna verkefni Barnaheilla Vinátta
gegn einelti, sem er fyrirbyggjandi
verkefni fyrir leikskólabörn. „Við
ferðumst með fjólubláan bangsa sem
heitir Blær, sem er einkennismerki
verkefnisins, og við munum taka hann
með okkur á leikskólana,“ segir Karl.
„Jafnframt munum við heimsækja
nokkur fyrirtæki á svæðinu þar sem
þau ætla að lýsa yfir stuðningi við
verkefnið, en auðvitað munum við
líka heimsækja bændur þegar við
erum að keyra um sveitirnar; rennum
í hlað, heilsum og eigum vonandi
gott samtal um landsins gagn og
nauðsynjar.“
Keyra 100 km á fjórum tímum
„Við getum keyrt í 10–13 tíma á dag,“
segir Grétar. „Það er hins vegar mjög
misjafnt. Suma daga keyrum við bara
í tvo tíma og jafnvel ekki neitt. Við
erum að jafnaði fjóra klukkutíma
að keyra hundrað kílómetra með
stoppum.“
Félagarnir beita ýmsum ráðum til
þess að halda kostnaði við ferðalagið
í lágmarki. „Við erum að reyna að
fá vini og vandamenn til þess að
styðja okkur, en við viljum helst að
peningurinn sem við söfnum renni
beint í Barnaheill. Við höfum til að
mynda leitað til vina, vandamanna og
vina þeirra eftir gistingu til þess að
spara kostnað,“ segir Karl.
Gamall draumur æskuvina
Grétar og Karl kynntust ungir að
aldri í sveit á Valdarási í Fitjárdal í
Vestur-Húnavatnssýslu. „Ég var sex
ára þegar ég kom þangað og Karl var
fimm ára þegar hann kom fyrst. Ég
bjó þarna alveg þangað til ég var 17
ára og Karl var alltaf í sveit
þarna á sumrin,“ segir Grétar.
Karl bendir á fagurrauðan
Massey Ferguson 35x við hlið
sér. „Þegar þessi gripur kemur
í hlaðið árið 1963 vorum við
farnir að keyra traktora og
tókum ástfóstri við vélina.
Þetta er sama vélin og kom á
Valdarás á sjöunda áratugnum.
Hin vélin sem við notum er
sambærileg og er í eigu Hauks
Júlíussonar á Hvanneyri.
Hann hefur verið einstök
hjálparhella í báðum þessum
ævintýraferðum okkar.“
Axel Guðmundsson, bóndi
á Valdarási, keypti vélina
á sínum tíma en að sögn
Grétars lærði hann aldrei að
keyra traktor. „Við urðum
því hálfgerðir umsjónarmenn
vélarinnar, ég tíu ára og Karl
átta ára. Ég segi svo við Karl
þarna um sumarið að það væri nú
gaman að fara hringinn á þessum
traktor. Við veltum því mikið fyrir
okkur en við vissum ekki alveg
hvernig við ættum að komast yfir
Skeiðarársand. Svo hringir Karl í
mig fyrir nokkrum árum og fer að
spyrja mig hvort við ætlum ekki að
láta verða af því að fara hringinn þar
sem að allt sé orðið brúað og fínt. Ég
hélt fyrst að hann væri að grínast,
en svo hélt hann áfram að ýta á eftir
þessu. Að lokum ákváðum við að láta
verða af því og fórum hringveginn
sumarið 2015.“
Allir styrkir af ferðinni renna í
verkefni Barnaheilla
Meðal stuðningsaðila ferðarinnar
eru Olís, N1, Húsasmiðjan, Búvélar,
Plexigler og Bílagler. „Okkur hefur
alls staðar verið tekið opnum örmum,
en við höfum ekki verið sérstaklega
að leita styrkja til þess að kosta sjálfa
ferðina, heldur höfum við verið að
hvetja fyrirtæki og fólk til þess að
styrkja Barnaheill,“ segir Karl.
„Ég man ekki nákvæmlega
hvað við náðum að safna miklum
fjármunum síðast, en Erna
Reynisdóttir hjá Barnaheillum
sagði okkur eftir ferðina að
Vináttuverkefnið væri komið í
meira en helming allra leikskóla á
landinu og þessi fjáröflun hjálpaði
til við það,“ segir Karl. „Peningarnir
söfnuðust bæði þegar við vorum að
keyra og þegar við gáfum út bókina
Vinir Ferguson. Allar tekjur af sölu
þeirrar bókar fóru í verkefnið.“
Með ferðinni vilja félagarnir
leggja sérstaka áherslu á hugtakið
„vinátta“ enda hafa þeir haldið í sína
miklu vináttu þótt þeir færu ólíkar
leiðir í lífinu. „Grétar varð fyrir miklu
einelti og átti erfiða æsku. Sjálfur finn
ég mikið til með fólki sem fær ekki
þá virðingu sem það á skilið. Þetta
hefur sérstaklega mikil áhrif á börn,“
segir Karl.
Hægt er að fylgjast með ferðum
félaganna á Facebook og Instagram,
undir Vinir Ferguson og Vestfjarða.
Þau sem vilja leggja verkefninu
lið geta sent SMS skilaboðin
„Barnaheill“ í síma 1900 og styrkt
um 1.900 krónur. Það er líka hægt
að styrkja verkefnið í gegnum
heimasíðuna barnaheill.is.
LÍF&STARF
Vinir Ferguson keyra Vestfirðina til að styrkja Barnaheill:
Á traktor gegn einelti
Ástvaldur Lárusson
astvaldur@bondi.is
Vinir Ferguson ungir að árum á Valdarási
í Fitjárdal. Mynd / Einkaeign
Karl G. Friðriksson og Grétar Gústavsson við Massey Ferguson 35x árgerð 1963 sem verður notaður til þess að keyra Vestfjarðahringinn í sumar. Mynd / ÁL