Bændablaðið - 07.07.2022, Side 23
23Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022
MHG VERSLUN | Víkurhvarf 8 | 203 Kópavogur | Sími 544 4656 | www.mhg.is
CUMMINS RAFSTÖÐVAR
- amerísk gæði
Cummins C28D5S - 28kVA
1667 x 930 x 1282 mm / 647,5 kg
2082 x 987 x 1524 mm / 927,5 kg
Cummins C1400D5 – 1400kVA
5110 x 2000 x 2240 / 10,075 kg
5120 x 2230 x 2770 / 15,450 kg
Cummins C66D5E - 66kVA
2050 x 967 x 1510 mm / 1127 kg
2270 x 975 x 1920 mm / 1530 kg
Cummins C110D5 - 110kVA
2415 x 1102 x 1862 mm / 1560 kg
3147 x 1102 x 2243 mm / 2161 kg
L Á LAGERTI
L Á LAGERTI
TIL Á LAGER
TIL Á LAGER
Norrænn matur fyrir marga: The
Junk Food Project, Danmörku
Rasmus Munk, yfirmatreiðslumaður
og maðurinn á bakvið hinn þekkta
veitingastað Alchemist, sem hefur
tvær Michelin-stjörnur, byrjaði
með verkefnið árið 2020 eftir að
Covid-19 skall á. Hugsunin er að
útvega bragðgóðan og næringarríkan
mat fyrir heimilislausa sem
eldað er af þekktum og góðum
matreiðslumönnum. Junkfood
tryggir heitar máltíðir á hverjum
degi fyrir hundruð heimilislausra
einstaklinga í Kaupmannahöfn.
Á hverjum degi framleiðir
teymið um 350 næringarríkar
máltíðir. Sjálfbærni er kjarninn í
hugmyndafræði verkefnisins þar
sem allt kapp er lagt á að draga úr
matarsóun.
Norrænn matvælamiðlari: Det
Grønne Museum, Danmörku
Græna safnið er þjóðminjasafn
Danmerkur fyrir veiðar, skógrækt,
landbúnað og matvæli. Hér geta
bæði börn og fullorðnir upplifað
danska og norræna matarmenningu
ásamt sögunni.
Í Græna safninu, sem er
þekkingarstofnun, er unnið
ötullega við að varðveita og
rækta gömul afbrigði af plöntum
og dýrategundum. Auk þess er
skóli á safninu sem sérhæfir sig
í matarfræðum, þar sem gestir
geta notað forn eldhústæki og lært
gamlar hefðir.
Norrænn matvælalistamaður:
Brӓnnland Cider, Svíþjóð
Andreas Sundgren, stofnandi
Brӓnnland Cider, hefur búið til
hágæða áfengan eplasíder.
Vörurnar bera sterka sögu um
þrautseigju og sérstöðu fyrir-
tækisins sem Andreas hefur ötullega
byggt upp. Í dag eru framleiddar
nokkrar tegundir fyrir innlendan
og alþjóðlegan markað og eru
meðal annars nokkrir Michelin-
veitingastaðir meðal viðskiptavina
á sídernum.
Norrænn matvælaframleiðandi:
Frederiksdals Kirsebærvin,
Danmörk
Framleiðsla á hágæða víni úr
kirsuberjum sem ræktuð eru
í Frederiksdal í suðurhluta
Danmerkur og gerjað er með
sérstakri gamalli tækni.
Víngerðarmeistarinn notast við
villta gerjun í framleiðslunni áður
en vínið er geymt utandyra í stórum
glerkútum en þannig á veðurfarið
stóran þátt í að skapa einstakt bragð
vínsins. Frederiksdals Kirsebærvin
er eini framleiðandinn í heiminum
sem framleiðir kirsuberjavín sam-
kvæmt þessari aldagömlu hefð.
Markmiðið er að framleiða
heimsins besta kirsuberjavín og
sumir halda því fram að því hafi nú
þegar verið náð.
Hinn sænski Andreas Sundgren er höfundur hágæða áfengs eplasíders og
var hann kjörinn matvælalistamaður Embluverðlaunanna.
Sendiherra Íslands í Noregi, Ingibjörg Davíðsdóttir, bauð til móttöku í embættisbústaðnum í Osló þar sem þær
íslensku vörur sem tilnefndar voru til Embluverðlaunanna voru kynntar fyrir aðilum tengdum matvælageiranum
þar í landi. Kokkurinn Gabríel Kristinn Bjarnason (t.v.), sem nýverið vann titilinn Besti ungkokkur Norðurlanda,
bauð upp á smárétti úr íslenskum hráefnum. Mynd / Aðsend
Pétur Pétursson kynnti nýsköpun
sína, Jökla rjómalíkjör, sem vakti
mikla lukku. Mynd / Aðsend