Bændablaðið - 07.07.2022, Side 53
53Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022
AF VETTVANGI STJÓRNARRÁÐSINS
Þess vegna aukum við kornrækt
Undanfarna mánuði hefur
umræða um fæðuöryggi tekið
stakkaskiptum á Íslandi eins
og annars staðar. Ástæðan
er einföld, vegna innrásar
Rússa í Úkraínu er fæðuöryggi
heimsins ógnað.
Hungurvofan mun gera vart
við sig hjá tugum milljóna í
ár og á næsta ári vegna þessa.
Vegna þeirrar forréttinda
sem við Íslendingar njótum
í krafti ríkidæmis okkar og
mikillar matvælaframleiðslu
eru hverfandi líkur á því að
aðgengi okkar að mat sé skert.
Við flytjum út 98% af þeim
fiski sem við veiðum og sá
fiskur fæðir milljónir. Ísland er
matvælaútflutningsland.
En áhrifin innanlands hafa
falist í miklum verðhækkunum
á aðföngum og því taldi ég
nauðsynlegt að grípa til aðgerða
til að styðja bændur.
Til þess skipaði ég spretthóp
sem vann hratt og örugglega,
og lagði fram tillögur sem ég
gerði að mínum. Í framhaldinu
samþykkti ríkisstjórnin að
veita 2,5 milljörðum í sér-
stakan stuðning við bændur sem
greiddur verður út með haustinu.
Ég mun standa með bændum í
þessum þrengingum hér eftir
sem hingað til.
Að sama skapi hefur ríkis-
stjórnin einnig gripið til aðgerða
til að milda áhrif dýrtíðarinnar
á þá hópa í samfélaginu sem
veikast standa, með hækkunum
á bótum almannatrygginga og
sérstökum barnabótaauka.
Þá höfum við talað skýrt
gegn útflutningshindrunum á
matvælum á alþjóðavettvangi,
en slíkar ráðstafanir eru til þess
að auka á vanda fátækari þjóða.
Hagkvæmni á kostnað
þanþols
Það sem blasir hins vegar við er
að við höfum byggt upp okkar
landbúnað á forsendum þess að
við getum alltaf fengið kornvöru
á skikkanlegu verði sem aðföng
í framleiðslu á kjöti, mjólk,
brauði og öðrum matvælum.
Þá stefnu má m.a. rekja til
hagfræðikenninga sem komust
í tísku upp úr 1980 og snúa m.a.
að sérhæfingu og hagkvæmni.
Með þessu móti höfum við
byggt upp framleiðslu á kjöti
og mjólk.
Það sem kemur nú í ljós er
að þessi meinta hagkvæmni
var ekki fengin ókeypis. Enda
er hagfræðingum tíðrætt um að
ekkert sé ókeypis í heimi hér.
Kostnaðurinn sem í þessu felst
er í formi þanþols og öryggis.
Þetta eru margir að uppgötva
sem birtist meðal annars í því
að fyrirtæki sitja nú á meiri
birgðum, til þess að freista
þess að tryggja aðgengi að
nauðsynlegum aðföngum.
Eins og margir þekkja nú
er mjög lítill hluti kornvöru til
sölu á alþjóðamörkuðum. Örfáar
þjóðir framleiða megnið af því
magni sem á annað borð er
verslað með milli landa.
Ástæða þess að stríðið hefur
haft svo mikil áhrif er að bæði
Rússar og Úkraínumenn eru
stórleikendur á alþjóðlegum
mörkuðum með kornvöru.
Sennilega eru fáar þjóðir í
heiminum sem eru meira háðar
alþjóðamörkuðum með korn en
Ísland.
Það er ekki náttúrulögmál,
því hér er vel hægt að rækta korn
og var raunar gert um aldir. Ég
tel það óskynsamlegt til lengri
tíma að verð á mikilvægustu
aðföngum til landbúnaðar
séu með öllu háð duttlungum
alþjóðamarkaða. M.a. vegna
þess þurfum við að efla innlenda
kornrækt.
Með réttri jarðvinnslu vex
kornræktin sjálf
Margar skýrslur hafa
verið skrifaðar um eflingu
kornræktar á Íslandi, en nú
er aðgerða þörf. Þess vegna
hef ég falið sérfræðingum við
Landbúnaðarháskóla Íslands
að útbúa aðgerðaáætlun sem
taki á þeim helstu hindrunum
sem standa í vegi fyrir því að
kornræktin dafni. Það sem máli
skiptir er að vinna jarðveginn
þannig að kornrækt geti vaxið
af sjálfsdáðum.
Með því að innlendur
markaður með korn verði
til skapast möguleikar til að
bændur geti gert áætlanir og
vitað með nokkurri vissu hvað
þeir fái fyrir uppskeruna.
Þá hef ég þá skoðun að fjár-
festingar séu forsendur framfara
og því þurfi meiri þungi að
færast á fjárfestingarstuðning í
búvörusamningum, m.a. til þess
að stuðla að aukinni kornrækt.
Ég hef miklar væntingar
til þessarar vinnu og að hún
skili okkur góðu veganesti
á leiðinni til aukins fæðu-
öryggis og fjölbreyttari land-
búnaðarframleiðslu til sveita.
Svandís Svavarsdóttir
matvælaráðherra.
Svandís Svavarsdóttir.
Reynsla, virðing,
fagmennska
Baritón
Veiti einnig ráðgjöf
vegna tónlistar og
útvega sönghópa
SÖNGUR VIÐ ÚTFARIR
Jón Svavar Jósefsson
jonsvavar.is s: 864 2407
jonljon@gmail.com
facebook/jarðarfarasöngvarinn