Bændablaðið - 07.07.2022, Page 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022
HRINGINN Í KRINGUM LANDIÐ
Austurland & Austfirðir
7.-9. júlí Eistnaflug, árleg tónlistarhátíð í Neskaupstað
8.-10. júlí Bæjar- og fjölskylduhátíðin Vopnaskak á Vopnafirði
8.-10. júlí Sumarhátíð UÍA – Íþróttahátíð á Egilsstöðum
9. júlí Dyrfjallahlaupið á Borgarfirði eystri, 12 eða 14 km
10.-17. júlí Listahátíðin LungA, tónleikar og list á Seyðisfirði
14.-17. júlí Bæjarhátíðin Útsæðið á Eskifirði, kassabílarallí,
kvöldvaka, flugeldasýning og margt fleira
23. júlí Tónlistarhátíðin Bræðslan
Norðurland & Norðausturland
28. júní-10. júlí Hríseyjarhátíð
6.-10. júlí Þjóðlagahátíð Siglufjarðar, dansar, námskeið, tónleikar
14.-17. júlí Húnavaka – Bæjarhátíð sem haldin er á Blönduósi
15.-17. júlí Miðaldadagar á Gásum við Hörgárósa í Eyjafirði
22.-24. júlí Mærudagar Húsavíkur
23. júlí Fjölskylduhátíðin Trilludagar á Siglufirði, útsýnis-
siglingar, trilluball og markaðir
Reykjanes, Suðurland, Suðaustur- & Suðvesturland
3.-10. júlí Landsmót hestamanna á félagssvæði Geysis á
Rangárbökkum á Hellu
7.-10. júlí Kótelettan – Fjölskyldu- og tónlistarhátíð á Selfossi
8.-10. júlí Flughátíðin á Hellu; karamellur, grillveisla og skýlisball
16.-17. júlí Götubitahátíð í Hljómskálagarðinum, stærsta
matarvagna- og götubitahátíð landsins
Vesturland, Norðvesturland & Vestfirðir
7.-10. júlí Sandara- og Rifsaragleði í Snæfellsbæ
9. júlí Bátadagar á Breiðafirði 9. júlí 2022, haldnir af félagi
áhugamanna um Bátasafn Breiðafjarðar á Reykhólum.
Farið verður til Hvalláturs þar sem rekin var afkastamikil
bátasmíðastöð fram á 7. áratug síðustu aldar.
14.-17. júlí Hlaupahátíð á Vestfjörðum þar sem keppt er í hlaupum,
hjólreiðum, sjósundi og þríþraut
16. júlí Ögurball í Súðavík
20.-24. júlí Eldur í Húnaþingi – Bæjarhátíð á Hvammstanga
Á döfinni í júlí ...
(Svo er nú sjálfsagt eitthvað sem hefur ekki
komist á lista, en hér að ofanverðu er ýmislegt
upptalið sem má skemmta sér við.)
Útihátíðir hafa viðgengist svo
elstu menn muna og þá undir
margvíslegum formerkjum. Þó,
að staðaldri er þar mannmergð,
tónlist og ýmsar uppákomur.
Gjarnan dvelur fólk í tjöldum ef
um ræðir lengri tíma en dagstund
og þykir mörgum gaman að skvetta
í sig sopanum.
Verslunarmannahelgin er stærsta
helgi útihátíða, en þó hafa fyrstu
þrjár helgarnar í júlí komið sterkar
inn. Eru þar þekktastar Bræðslan á
Borgarfirði eystri, sem upphaflega
var haldin árið 2005 í tilefni 100
ára afmælis Jóhannesar Kjarvals
listmálara, sem var fóstraður þar
ungur að árum.
Var Emilíana Torrini fengin til
að halda tónleika – sem hún gerði
með stakri prýði innan dyra gamallar
síldarbræðslu.
Nú í ár má finna listamenn undir
merkjum Skálmaldar, Írafárs, Flott,
Mugison&KK og Malen á sviðinu
en löngu er uppselt á hátíðina sem
verður þann 23. júlí.
Önnur vel kunn júlíhátíð er svo
Eistnaflug sem haldin er fyrr í
mánuðinum, nú í ár helgina 7.-9. júlí.
Nafn hátíðarinnar er öfugsnúningur
af nafni hátíðarinnar neistaflug, sem
haldin er um verslunarmannahelgina,
en líkt og Bræðslan var Eistnaflug
haldið í fyrsta skipti árið 2005.
Þetta er þriggja daga (þunga)
rokkhátíð sem fæstir ættu að láta
framhjá sér fara, enda einstakur
tónlistarsuðupottur eins og fram
kemur á vefsíðu aðstandenda – og
jafnvel listamenn á borð við Pál
Óskar stigið þar á svið.
Hljómsveitirnar Sólstafir, Dark
Funeral, Morpholith, Saktmóðigur og
Igorr eru þar nöfn á lista í ár auk þess
sem nokkuð verður um að erlendum
gestahljómsveitum bregði þar fyrir.
Þriðja hátíð júlímánaðar sem
kemst hér á blað er að sjálfsögðu
LungA, en fyrst heyrðist af henni
um aldamótin 2000.
Þar hefur aðalmarkmiðið verið að
vekja athygli á menningu og listum
auk þess að virkja sköpunarkraftinn
undir sólargeislum dags og nætur.
Þetta er fjölsótt hátíð, haldin vikuna
10.-17. júlí og má með sanni segja að
þar megi víkka sjóndeildarhringinn
á allan hátt. Meðal þess sem gestir
geta unnt sér við eru dagleg sjóböð
og sauna, bíómyndir, karaókí,
listasmiðjur, gjörningar, tónlistar-
flutningar, dans og margt fleira
nytsamlegt sál og líkama.
Kæti í kjötinu
Hátíðir sem þessar hafa, þrátt fyrir
litskrúðugt úrval gesta, farið nokkuð
friðsamlega fram. Ef litið er yfir
síðustu 30-40 ár eru þó nokkrar sem
eru minnisstæðari en aðrar og ef til
vill ofboðið sumum.
Mögulega lesendum Tímans
þann 9. ágúst árið 1989, en á for-
síðunni stóð stórum skýrum stöfum
„Fimm þúsund smokka hátíð í
Húnaveri“. Þeim sem brugðið
hefur, hafa þó sjálfsagt samt sem
áður fikrað sig aftar í blaðið, en í
opnu þess var um fimmtán hundruð
orða grein er lýsti á vel skrifaðan
hátt verslunarmannahelgarhátíðinni
„Húnaver ´89“ sem Jakob Magnús-
son Stuðmaður og félagar hans í
bandinu stóðu fyrir.
Vísaði fyrirsögn greinarinnar í
smokkaþurrð er varð á hátíðinni en
þeir bæði seldust upp á svæðinu auk
þess sem apótek nærliggjandi bæja
voru þurrausin. Haft var eftir Jakobi
Magnússyni að þegar hefðu farið í
sölu fimm þúsund smokkar og væru
frekari birgðir á leiðinni.
Djarflega en varlega
Þessi gífurlega sala hlýtur þó að
vekja stolt heilbrigðisyfirvalda – að
almenningur skuli verja sig svona
vel, en þremur árum áður tröllreið
ein minnisstæðasta auglýsingabylgja
Íslands yfir, „Smokkaplakötin“
svokölluðu.
Mikið var um ærsl og læti á
hátíðinni en þó báru nærsveitarmenn
aðkomufólki vel söguna. Það er því
gleði- og þakkarvert að svo skuli hafa
farið í það skiptið, þrátt fyrir æsilega
fyrirsögn, og voru aðstandendur að
sama skapi ánægðir.
Útihátíðir er eitthvað sem ber
að njóta til fulls, fara djarflega
en varlega. /SP
Útihátíðir:
Vel varin með gleði í hjarta
Húsið verður til sýnis helgina 9. – 10. júlí n.k.
Vinsamlegast hringið í síma 695 8611
fyrir frekari upplýsingar.
Sumarhús í landi Miðdals við Laugarvatn til sölu.
Húsið er um 61 m2. Að auki er svefnloft
og tvær útigeymslur. Heitur og kaldur pottur.
Stór verönd, mikill og fallegur gróður.
Lokað svæði með aðgangsstýrðu hliði.
Húsið er í um 100 km akstursfjarlægð frá Reykjavík.
Stutt í 9 holu golfvöll, gullna hringinn og verslun,
sund og aðra þjónustu á Laugavatni.
Myndir og frekari upplýsingar má finna
á facebooksíðu eignarinnar:
Sumarbústaður í Miðdal: T-Gata 11.
Verðhugmynd: 34,9 mkr.
GLÆSILEGT SUMARHÚS Í LANDI MIÐDALS
VIÐ LAUGARVATN. T-GATA 11, 806 SELFOSS
Uxi 1995
Útihátíðin Uxi 95 var einn gleðskapurinn sem haldin var um verslunarmannahelgina árið
1995, nánar tiltekið á Kirkjubæjarklaustri. Fjöldi innlendra og erlendra tónlistarmanna komu
fram, einna minnisstæðust var hljómsveitin Prodigy sem lifir í minningunni sem einn af
helstu menningarviðburðum tíunda áratugarins.
Prodigy