Bændablaðið - 07.07.2022, Blaðsíða 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022
YLEININGAR ERU LÉTTAR STÁL-
KLÆDDAR SAMLOKUEININGAR
SEM FÁST MEÐ ÞÉTTIFRAUÐS-
EÐA STEINULLARKJARNA.
Einingarnar eru sterkar og burðarmiklar og
fást með mismunandi yfirborði og litum að
eigin vali. Helstu kostir þess að nota samloku-
einingar er auðveld og fljót uppsetning, auðveld
þrif, mikil burðargeta, mikið einangrunargildi og er
ódýr kostur ef miðað er við hefðbundnar lausnir.
Yleiningar henta vel fyrir eldri gripahús þar sem
skipta þarf út þak- og eða veggjaklæðningum.
BALEX yleiningar eru framleiddar undir
ströngu eftirliti samkvæmt viðurkenndum
evrópskum stöðlum.
Hafðu samband: bondi@byko.is
YLEININGAR
bondi@byko.is
LÍF&STARF
Eitt af langlífustu umkvörtunar-
efnum bænda í jarðrækt er
ágangur fugla; aðallega gæsa
og álfta. Fjölmargar aðferðir
hafa verið reyndar í baráttunni
við að vernda verðmætin í
ræktarlöndunum en fáar virðast
duga að fullu.
Nýlega birti Björgvin Þór
Harðarson, svína- og kornbóndi í
Laxárdal, stöðufærslu í Facebook-
hópnum Kornrækt á Íslandi frá
hveitiakri sínum í Gunnarsholti þar
sem hann lýsir ánægju sinni með
flugdreka-fuglafælu sína, sem er
nýjasta vopnið í vopnabúrinu.
Í færslunni segir Björgvin að
flugdreka-fuglafælan sem hann setti
upp sé í líki fálka og hugsuð til að
fæla álftir úr akri með vetrarhveiti í.
Áður en hann setti þá upp hafi verið
um 50 álftir í rúmlega 30 hektara
akri. Þær hafi farið strax og hann
setti upp þrjá flugdreka og hafi ekki
verið meira til ama.
Fálkar sem hreyfast
eftir ákveðnu mynstri
„Ég hef séð svona fugla á stöng víða
erlendis, en þessir eru sérhannaðir til
að fljúga eftir ákveðnu mynstri sem
fælir aðra fugla frá,“ segir Björgvin
Þór. Eins og flestir aðrir kornbændur
hefur hann prófað ýmislegt til varnar
vágestunum.
„Ég hef til dæmis prófað
venjulegar fuglahræður, geisladiska
á staur, sett eitthvað við akurinn, tæki
eða annað og einnig hljóðfælur sem
spila viðvörunarhljóð fugla. Sumt af
þessu virkar í einhvern tíma og svo
ekki meir. Einnig er ég með fimm
hektara akur sem er sérstaklega
ætlaður fyrir fuglinn þannig að
maður býr til svæði þar sem hann má
vera. Þá fá aðrir akrar frið á meðan,
en það er náttúrlega kostnaður við
það. Fálkinn hefur komið einna
best út, þarf ekkert viðhald, það
er rafgeymi eða annað, og þetta
er mjög góð og sterk framleiðsla á
þessum flugdrekum. Ég var með þá
úti síðasta haust fram í nóvember og
það sá ekki á þeim.“
Virkar líklega á flesta fugla
Björgvin telur að flugdrekinn muni
virka á flesta fugla.
„Þetta heldur gæsinni klárlega frá
en ég hugsa að þetta virki á flesta
fugla – svipaðir drekar eru notaðir
heima við bæi erlendis hef ég séð
til að stugga við starra og öðrum
spörfuglum.“Sagnir eru af miklu
tjóni sem bændur hafa orðið fyrir
vegna ágangs álfta og gæsa og
Björgvin er þar engin undantekning.
„Það er mjög misjafnt eftir árferði
hversu mikið tjónið verður.
Ef það haustar snemma þá er
ágangurinn miklu harðari.
En ég hugsa að mesta tjónið hafi
verið um 100 tonn af korni sem fóru
í fuglinn eitt haustið.
Kornið lítur vel út
Björgvin er einn fárra kornbænda
sem hefur náð ágætum árangri með
ræktun á hveiti á undanförnum
árum, sem hann nýtir sem fóður í
svínaræktina.
„Ég er að rækta hveiti á um
42 hekturum, það er svipað og
undanfarin ár.
En almennt lítur kornið mjög vel
út. Það var mjög lítið frost í jörðu í
vor og góður raki þannig að kornið
fór vel af stað og tíðin hefur haldist
góð síðan, þannig að það er hægt að
gera sér vonir um rúmlega meðalár
í uppskeru í haust.“
Hann telur möguleika íslenskrar
kornræktar til framtíðar vera ágæta,
heilmikið land sé til á Íslandi sem
ekki er notað en væri hægt að nýta
í ræktun á byggi og fleiri tegundum.
„Þar má nefna hveiti, nepju,
kúmen, bóndabaunir. En það þarf
að ná tökum á þeim vandamálum
sem herja á okkur hér. Það er
náttúrlega fuglinn og svo eru það
veðrin á haustin sem geta skemmt
mikið fyrir.
Það er hægt að lágmarka það tjón
með markvissum aðgerðum sem
miða að því að auka ræktunaröryggið.
En öll þessi ræktun byggir líka á
því að við höfum aðgang að yrkjum
sem henta okkar aðstæðum og því er
mikilvægt að kynbætur og þróun á
nýjum yrkjum fyrir okkar aðstæður
sé með miklum sóma.“ /smh
Flugdreka-fuglafælan á lofti í Gunnarsholti. Á innfelldu myndinni er Björgvin
Þór Harðarson, korn- og svínabóndi í Laxárdal. Myndir / BÞH
Björgvin Þór við sáningu í Gunnarsholti. Myndir / smh
Þessi glæsilegi hafur, sem heitir Þorri, á heima á bænum Felli í Finnafirði.
Eigandi hans er Reimar Sigurjónsson. Fell er á Norðausturlandi á
Langanesströnd, sem liggur milli Þórshafnar og Bakkafjarðar. Þar er
stunduð ferðaþjónusta og landbúnaður í smáum stíl.
„Þorri er 2015 árgerð, fæddur 10. febrúar. Hann var vanaður fyrir tveimur
árum. Hann er algjört gæðablóð og í miklu uppáhaldi hér á bænum,“
segir Reimar, sem fékk 24 kið í vor en á Felli eru 20 vetrarfóðraðar geitur
og tuttugu kindur. /MHH
Flugdreka-fuglafælan virkar vel í Gunnarsholti:
Álftirnar fóru og hafa ekki
verið meira til ama
Mynd / Aðsend