Bændablaðið - 07.07.2022, Page 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022
HROSS&HESTAMENNSKA
Hestaferðir:
Hesturinn er sameiningartákn
– Árlegur þriggja daga reiðtúr sautján hefðarkvenna skapar ómetanlega vináttu
Sautján konur hafa í fjórtán
ár lagt upp í hestaferð kringum
Jónsmessu. Þær setja tvö skilyrði;
að gisting og matur sé eins og
best verður á kosið, enda er
fylkingin samansafn sannkallaðra
hefðarkvenna.
Oft verða góðar hugmyndir til í
gleðskap. Svo er annað mál hvort
hugmyndirnar verða að veruleika. Í
tilfelli „Hefðarkvenna“, eins og þær
kjósa að kalla sig, létu nokkrar konur
gjörð fylgja orðum. Þær hóuðu saman
nokkrum kunningjakonum, sem þær
vissu til að hefðu stigið á bak hesti,
og héldu í hestaferð.
„Í upphafi tengdumst við margar
hverjar lítið sem ekkert, nema í
gegnum þennan hóp. Við erum
ólíkar konur, komum úr ólíkum
áttum, erum á ólíkum aldri, að fást
við ólíka hluti dagsdaglega,“ segir
Erna Ingvarsdóttir, en tuttugu ár eru á
milli elstu og yngstu hefðarkonunnar.
Þrjár þeirra eru valdar ár hvert til að
undirbúa ferðina, sem alltaf er haldinn
á sama tíma árs; í þrjá daga kringum
Jónsmessu. Undirbúningsnefndin
finnur til gistingu við hæfi kringum
skemmtilegar reiðleiðir. Þær Elsa
Ingjaldsdóttir, Erna Ingvarsdóttir og
Elín Bjarnveig Sveinsdóttir mönnuðu
undirbúningsnefndina í ár.
Hrossin, landið og við
Sumar hefðarkvennanna eru alvanir
knapar með hesta á húsi ár hvert,
meðan aðrar stíga á bak einstaka
sinnum. Skiptir það þó engu máli
enda er erfiðleikastig ferðaleiðar ekki
markmiðið.
„Þetta snýst um að vera úti í
náttúrunni og takast á við verkefnið
saman. Við leggjum upp með að
vera á góðum reiðgötum svo við
njótum þess bara að vera á töltinu
og upplifum að vera á hestunum.
Þegar maður er í þrjá daga í röð með
hestunum sínum verður sú þrenning
að einu. Það er mjög sterk upplifun,“
segir Erna og Elsa tekur undir á
háfleygum nótum: „Við verðum eitt;
hrossin, landið og við.“
Að öllu gamni slepptu segir Elsa
hestaferðir tilvalda leið til að slíta
sig frá veruleikanum um stund.
Hestaferðir séu núvitund í sinni
tærustu mynd.
„Mér þykir yndislegast þegar
við erum búnar að ríða okkur
svolítið saman og erum farnar að
þegja og njóta. Þá erum við í núinu.
Við hættum að hafa áhyggjur af
vandamálum heima, óborguðum
reikningum eða daglegu amstri. Við
erum bara hér og nú og hugsum ekki
um neitt nema áskorun ferðarinnar,
sem getur verið veðrið, reiðleiðin
eða bara nýr hestur. Verkefnin verða
öll svo yfirstíganleg. Eftir daginn
erum við samt alltaf búnar að leysa
verkefnin saman,“ segir Elsa.
Eiginmennirnir öfundast
Í ferðunum gera konurnar vel við sig
eins og sönnum drottningum sæmir.
„Við leggjum upp með að
ferðunum fylgi ákveðinn munaður;
uppábúin rúm og góður matur. Við
höfum verið heppnar öll fjórtán
árin, enda leynast litlar perlur víða
um land fyrir hópa í okkar stærð,“
bendir Elsa á. Í ár var heimahöfnin
gistihúsið Álftröð á Skeiðum, sem
Hefðarkonur og fákar þeirra við Stóru-Laxá. Frá vinstri; Anna Björg Níelsdóttir, Vigdís Þorvaldsdóttir, Jenný Erlingsdóttir, Sigríður Sigfúsdóttir, Dagbjört Guðmundsdóttir, Sigríður Hrönn
Gunnarsdóttir, Guðbjörg Rósa Björnsdóttir, Ásta B. Gunnlaugsdóttir, Elsa Ingjaldsdóttir, Margrét Stefánsdóttir, Erna Ingvarsdóttir og Elín Bjarnveig Sveinsdóttir. Á myndina vantar Hörpu Dís
Harðardóttur, Margréti K. Erlingsdóttur, Jóhönnu Kristínu Guðmundsdóttur, Sjöfn Sveinsdóttur og Hrönn Guðmundsdóttur. Myndir / ghp
Sumar hefðarkvennanna eru alvanir knapar með hesta á húsi ár hvert, meðan aðrar stíga á bak einstaka sinnum.
Skiptir það þó engu máli enda er erfiðleikastig ferðaleiðar ekki markmiðið. Sigríður Hrönn Gunnarsdóttir, Guðbjörg
Rósa Björnsdóttir og Margrét Stefánsdóttir í forgrunni.
Guðrún Hulda Pálsdóttir
gudrunhulda@bondi.is
Ultrasonic Cleaner
Nokkrar stærðir
Sandblásturskassar
með/án ryksugu
Nokkrar stærðir
Sandblásturskútur
m/ryksugu 80L
Amerískir
Sandblásturskassar
HREINSIEFNI - Íslensk
SANDBLÁSTURSSANDUR
SANDBLÁSTURSKASSAR
SANDBLÁSTURSKÚTAR
SANDBLÁSTURBYSSUR
KERAMIKSPÍSSAR
ÞVOTTAKÖR
ULTRASONIC CLEANER
O.m.fl.
SENDUM FRÍTT UM ALLT LAND MEÐ FLYTJANDA
ALK 150
ÞETTA SEM VIRKAR
og er einstaklega gott á
verkstæðið, í hesthúsið,
fjárhúsið og fjósið.
Umhverfisvænt sterkt
alkalískt hreinsiefni fyrir erfið
óhreinindi. Alhliða hreinsiefni
fyrir gólf, veggi, áhöld, vélar
og fl. Virkar sérstaklega vel á
fitu og sót.
Verð: 5L, 3.949 kr
20L, 12.815 kr
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA
SÍÐAN 1985
Sandblásturskútar
3 stærðir
Gildir ekki fyrir tilboðsvörur
Ferðir Hefðarkvennanna hafa bundið saman mjög dýrmæta vináttu og sterk
tengsl. Jenný Erlingsdóttir, Sigríður Sigfúsdóttir og Dagbjört Guðmundsdóttir.