Bændablaðið - 07.07.2022, Qupperneq 4
4 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022
FRÉTTIR
Skýr frá Skálakoti, handhafi
Sleipnis bikarsins árið 2020, er faðir
flestra kynbótahrossa sem koma
fram á Landsmóti hestamanna í ár.
Þar á hann fimmtán afkvæmi, eða
um 8,8% þeirra hrossa sem koma
fram í kynbótahluta mótsins.
Hann á einnig sex afkvæmi
í keppnishluta mótsins.
Næstflest afkvæmi,
níu talsins, á annar
þekktur Sleipnisverð
launahafi, Spuni frá
Vesturkoti.
Konsert frá Hofi á átta
afkvæmi og auk þess eru þrjú
hross undan honum skráð
til leiks í keppnishlutann.
Sjö afkvæmi Ölnis frá
Akranesi koma fram í
kynbótadómi auk þriggja í
keppnishlutanum.
Hrannar frá Flugumýri II og
Skaginn frá Skipaskaga eru feður
sex kynbótahrossa hver á meðan
Draupnir frá Stuðlum og
Trymbill frá StóraÁsi eiga
fimm hver. Bæði Hrannar og
Trymbill náðu lágmörkum
til heiðursverðlauna fyrir
afkvæmi við uppfærslu
kynbótamatsins í júní og munu
því taka á móti verðlaunum
á mótinu. Hrannar á auk
þess sex afkvæmi í
keppnishlutanum og
Trymbill tíu. /ghp
Skýr faðir flestra á kynbótasýningum
Skýr frá Skálakoti, Landsmóti
2018. Knapi er Jakob Svavar
Sigurðsson.
Spuni frá Vesturkoti á flest
afkvæmi í keppnishluta Landsmóts
hestamanna í ár.
Alls koma 15 afkvæmi hans fram
í gæðinga eða íþróttahluta mótsins.
Stáli frá Kjarri á næstflest afkvæmi,
fjórtán talsins. Þá er Arður frá
Brautarholti einnig atkvæðamikill
gæðingafaðir, en þrettán afkvæmi
hans eru skráð til leiks. Loki frá
Selfossi á einnig þrettán afkvæmi á
mótinu en auk þess mun hann sjálfur
spreyta sig í B flokki gæðinga.
Ellefu afkvæmi Óms frá Kvistum
mæta í keppnisbrautina og tíu afkvæmi
heiðursverðlaunastóðhestsins Álfs
frá Selfossi. Trymbill frá Stóra
Ási á einnig tíu afkvæmi í hópi
keppnishesta og mun sjálfur koma
fram í gæðingaskeiði.
Sex mætir stóðhestar eiga átta
afkvæmi í keppnishluta mótsins,
þeir Arion frá EystraFróðholti,
Framherji frá Flagbjarnarholti,
Gaumur frá Auðsholtshjáleigu,
Hágangur frá Narfastöðum, Hrannar
frá Flugumýri II og Hróður frá
Refsstöðum. /ghp
Fjölhæfir afkvæmafeður
Spuni frá Vesturkoti og Þórarinn
Ragnarsson.
Nokkur hundruð hross munu
koma fram á Landsmóti í ár.
Rúmlega 170 kynbótahross mæta
til dóms og yfir 600 skráningar eru
í gæðinga og íþróttakeppnishluta
hátíðarinnar. Knaparnir eru ekki
jafn margir og hrossin og því horfir
í að allmargir af atvinnuknöpum
landsins muni hafa í nógu að snúast
alla vikuna. Hér eru nokkur dæmi:
Árni Björn Pálsson er skráður
knapi á 29 kynbótahrossum á mótinu
auk þess að vera skráður fimm
sinnum í keppni. Teitur Árnason
er með 11 kynbótahross á sinni
könnu auk þess að vera skráður
tíu sinnum til keppni, jafn oft og
Viðar Ingólfsson sem er knapi á sex
kynbótahrossum.
Eyrún Ýr Pálsdóttir er skráð átta
sinnum til leiks í íþróttahlutanum og
er auk þess með þrjú kynbótahross
í sýningu. Helga Una Björnsdóttir
er skráður knapi ellefu hrossa í
kynbótasýningu og fjórum sinnum
í keppni.
Þá er Jakob Svavar Sigurðsson
skráður níu sinnum til keppni og
knapi á átta kynbótahrossum. /ghp
Annríki hjá atvinnuknöpum
Eyrún Ýr Pálsdóttir og Teitur Árnason
munu hafa í nógu að snúast.
Gæðingamæður á Landsmóti hestamanna:
Þrjú afkvæmi Þulu
Gaman á Landsmóti. Pálmi Guðmundsson, Marín frá Lækjarbrekku 2, Ída Marín Hlynsdóttir og Elín Ósk Óskarsdóttir.
Á Landsmóti á Vindheimamelum
árið 2000 stóð efst í flokki 7 vetra
og eldri hryssna, jörp hryssa, Þula
frá Hólum.
Þula hlaut í aðaleinkunn 8,46
á mótinu. Á Landsmótinu á Hellu
eru þrjú afkvæmi hennar skráð í
keppni, þau Marín frá Lækjarbrekku
2, Þórmundur frá Lækjarbrekku 2 og
Ögri frá Horni I.
Þula var fædd í Hólaskóla árið
2000 en hún var undan Kolfinni frá
Kjarnholtum og Þráardótturinni,
Þóru frá Hólum.
„Á sínum tíma voru auglýstar
tvær hryssur til sölu frá skólanum,
Þula var önnur af þeim. Skólinn
gerði þetta oft og fékk ég ábendingu
um hryssuna frá ágætum manni,
Daníel Jónssyni. Ég bauð í
hryssuna enda var ég hrifinn af
Kolfinnsgenunum og Þráarkyninu,“
segir Pálmi Guðmundsson, annar
eigenda Þulu, en í framhaldinu bauð
hann Ómari Antonssyni, ræktanda
á Horni I, að vera meðeigandi í
hryssunni. Afkvæmi hennar eru því
ýmist kennd við Lækjarbrekku 2 eða
Horn I.
„Við höfum skipst á að halda
hryssunni en Ómar fékk aðeins færri
afkvæmi en ég, hann var óheppinn.
Marín er algjört yfirburðahross,
geðslagið er svo einstakt, yfirveguð
en samt með þennan kraft og mýkt.
Einnig á ég undan henni Nælu,
Arionsdóttur og síðasta afkvæmi
mitt undan henni er Þórmundur, sem
er að keppa í Aflokki á Landsmóti.“
Orrablóðið virkar vel með Þulu
Pálmi segir að Þula skili góðri
vekurð og fótahæð en það staðfesta
dómsorð hennar þegar hún hlaut
heiðursverðlaun fyrir afkvæmi 2014.
„Ég er mjög stoltur af Þulu.
Þessi hryssa var alveg ótrúlegt
kynbótahross en það þurfti að velja
rétt á hana. Við Ómar höfðum fengið
veður að því að það vantaði viljann
í hrossin undan henni sem skólinn
hafði fengið. Við héldum henni því
bara undir viljuga hesta. Orrablóðið
var gott á móti henni.“
Afkvæmi Þulu á Landsmótinu
keppa í gæðingakeppni og
kappreiðum. Ögri keppir í 250
metra skeiði en hann hefur verið
afar farsæll í þeirri grein og kemur
annar inn á stöðulista á mótið. Knapi
á Ögra er Árni Björn Pálsson.
Þórmundur keppti í Aflokki
gæðinga fyrir hestamannafélagið
Hornfirðing en knapi á honum er
Hlynur Guðmundsson. Hlynur
og kærasta hans, Bjarney Jóna
Unnsteinsdóttir, hafa átt í góðu
samstarfi við Pálma og þekkja
afkvæmi Þulu vel. Bjarney
sýndi m.a. Nælu fjögurra vetra á
Landsmótinu á Hólum þar sem hún
hlaut 9,0 fyrir skeið.
„Þórmundur var ekki alveg
heill í vetur þannig að þegar hann
var sýndur í kynbótadóm í vor var
hann kannski ekki alveg tilbúinn.
Við enduðum á að fara með hann í
Aflokk í gamni og stefnum síðan
á að hann toppi í kynbótadómi á
næsta ári á Fjórðungsmóti hér fyrir
austan,“ segir hann en Þórmundur
er einungis sex vetra og á því
framtíðina fyrir sér.
Barnabörn í unglingaflokki
Marín frá Lækjarbrekku 2 er í
unglingaflokki en knapi á henni er
Ída Mekkín Hlynsdóttir, barnabarn
Pálma. Marín hefur verið í
folaldseign en Pálmi á nú orðið
fjögur afkvæmi undan henni. Þegar
hún hélt ekki í fyrrasumar ákvað
hann að taka hann í þjálfun og leyfa
síðan Ídu að spreyta sig á henni.
„Við vorum búin að vera að leita
að hrossi fyrir Ídu og þær Marín
smellpössuðu saman. Af hverju
ekki að nota hrossin sem maður
veit að eru góð? Það er líka miklu
skemmtilegra að vera með sitt eigið.
Ég hef ákveðið að fara með hana í
fósturvísaflutninga í sumar og leyfa
stelpunni að hafa hana næsta vetur
og stefna á Fjórðungsmót.“
Ída byrjaði að keppa fyrir
tveimur árum en hefur alltaf haft
mikinn áhuga á hestum. Hún bjó
lengi í Danmörku og fór þar á
reiðnámskeið og komst í tæri við
íslenska hesta.
„Ída er ofboðsleg dýrakona.
Alveg sama hvað, hún er alltaf utan
í dýrum. Hún er með rosa mikið
jafnvægi og er svolítill indjáni á
baki. Nú er hún komin á sitt fyrsta
alvöru hross og þá sér maður hana
líka blómstra.”
Ída er ekki eina barnabarn því þær
eru tvær í unglingaflokknum, Ída og
Elín Ósk Óskarsdóttir. Elín keppir á
hryssunni Ísafold frá Kirkjubæ.
„Við vorum svo heppin að frétta
af henni Ísafold í nóvember 2020.
Geysilega viljug en samt alveg örugg
hryssa. Mikið verk fyrir ungling að
læra á. Hryssan kann allt svo stelpan
þarf að kunna mikið.
Mikill skóli fyrir hana að þjálfa
hana. Ég hef síðan ákveðið að
önnur sparimerin mín, Sara frá
Lækjarbrekku 2, en hún fór í 8,52
fyrir hæfileika fjögurra vetra sýnd
af Friðriki Reynissyni. Hún var
að kasta núna og ætla ég að taka
snemma undan henni í vetur og leyfa
Elínu að ríða á henni og stefna með
í keppni á Fjórðungsmót.“
Pálmi er greinilega allur af vilja
gerður að aðstoða barnabörnin í
hestamennsku sinni en stelpurnar
hafa báðar verið duglegar að ríða
út og þjálfa.
Fleiri gæðingamæður
Þula er ein af fjórum hryssum sem
eiga flest afkvæmi á Landsmótinu en
hinar eru þær Grjóska frá Dallandi,
Prestfrú frá Húsatóftum og Snædís
frá Selfossi.
Grjóska á eitt afkvæmi í flokki
5 vetra stóðhesta, Guttorm frá
Dallandi, og tvö í keppnishlutanum;
Gnúp frá Dallandi og Konfúsíus frá
Dallandi.
Prestfrú á einnig tvö afkvæmi
í keppnishlutanum, þær Silfru og
Silfá, báðar frá Húsatóftum 2a og
Silfurloga sem sýndur var í flokki
4 vetra stóðhesta.
Afkvæmi Snædísar eru tvö í
keppni, Kári frá Korpu og Kóngur
frá Korpu, og ein hryssa í flokki
7 vetra og eldri hryssna Kná frá
Korpu. /HF
Það er Pálma mjög minnisstætt þegar Ída var mjög ung hvað hún var strax
mikil dýrakona. Hún var fljót að læðast í burtu og fara innan um hrossin.
Hér eru hún og Þula á góðri stundu. Mynd/Aðsend