Bændablaðið - 07.07.2022, Síða 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022
LÍF&STARF
M ikil vinátta var með þeim
Jakobi Ó. Péturssyni, ritstjóra
Íslendings á Akureyri, og
Tryggva Haraldssyni.
Báðir voru prýðilega stökufærir og
áttust við á þeim vettvangi. Tryggvi færði
vini sínum Jakobi tímaritið Súlur ásamt
meðliggjandi vísu:
Okkur ljóðin yrkja ber,
öll má þjóðin vita.
Andans fóður færi þér,
fjandi góðan bita.
Og næstu tvær vísur orti Tryggvi einnig og
færði ritstjóranum til birtingar:
Aldrei verður eðli breytt
eða tímans straumi.
Yrki ég helst um ekki neitt
oft í vökudraumi.
Aftansól við eld og skraut
eilíft muntu skína.
Merlað gull um mararskaut
markar göngu þína.
Jón Magnússon, kenndur við Minna-Holt,
orti er hann horfði yfir Siglufjörð ofan úr
Siglufjarðarskarði:
Nú er súld á Siglufirði,
svona drúldulegur oft,
þar að kúldrast þung er byrði,
þar er úldið grútarloft.
Um píanóleikarann Þórunni Jóhannsdóttur
orti Leifur Auðunsson:
Í bernsku hélstu heimanað,
hljómsins fræði sóttir.
Sómi Íslands, þú ert það
Þórunn Jóhannsdóttir.
Stefán frá Móskógum orti til ungmeyjar
ónefndrar:
Blíðuatlot þrái ég þín,
þau eru lífsins yndi.
Um þig snýst ég, elskan mín
eins og rella í vindi.
Friðjón Ólafsson orti oddhent til
viðvaninga við slátt:
Eru að slá með orfi og ljá,
enginn sá þeim bíta.
Reyta stráin rótum frá,
raun er á að líta.
Ragnari Skjóldal bílstjóra fimmtugum,
sendi Örlygur Axelsson þessa hlýlegu
kveðju fyrir hönd samstarfsmanna:
Ellin hefir hönd á þér,
hreysti og æskufjörið dvín.
Sunnan heiðar sendum vér
samúð vora heim til þín.
Að morgni hvítasunnu 1964 orti Pétur
Jónsson á Hallgilsstöðum:
Glymur hátt í gljúfrasal,
glampar bára á sjánum.
Fagurt er um fjöll og dal,
fuglar syngja í trjánum.
Sr. Sigurður Norðland orti svo
harðneskjulega til Miðfjarðar í V-
Húnavatnssýslu:
Það má kalla undur, að
ýmsir flytji héðan,
inn í Miðfjörð eftir það
að þeir hafa séð’hann.
Margir í prestastétt hafa átt létt með yrkingar,
og ekki endilega stöðugt með bænarefni á
vörum.
Sr. Guðmundur Torfason orti svo um
ónefndan:
Von er ekki verri gesta,
veit ég það og skil.
Satan hefur sent þann versta
sem hann átti til.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggd1@gmail.com
301MÆLT AF
MUNNI FRAM
Skógardagurinn mikli, hefur verið hald
inn árlega í Hallormsstaðaskógi um
Jónsmessuleytið allt frá árinu 2005, eða
fimmtán sinnum alls.
Vegna kórónuveirunnar var ekki hægt að
halda uppteknum hætti tvö undanfarin ár og
því mikil ánægja að hægt var að blása til hans
á ný nú í sumar.
Skógardagurinn er samstarfsverkefni
skógræktenda á svæðinu, þ.e. Félags
skógarbænda á Austurlandi og Skógræktar-
innar. Einnig koma að deginum Félag
sauðfjár- og kúabænda á Héraði og
fjörðum. Skógardagurinn mikli er einn af
aðalviðburðum sumarsins á Austurlandi,
að sögn Þórs Þorfinnssonar, skógarvarðar
á Austurlandi.
Nær tvö þúsund manns hafa sótt dagskrá
Skógardagsins ár hvert og segir Þór að svo
hafi einnig verið nú en þessi góða aðsókn
geri daginn að stærsta einstaka viðburði í
Múlaþingi á hverju sumri.
„Tilgangurinn með deginum er að
kynna fyrir heimamönnum og gestum
skógarmenningu, útivist í skógi og skógrækt
og mikilvægi hennar sem framtíðar-
atvinnugrein á svæðinu. Austurland er þekkt
fyrir sína víðfeðmu skóga, þeir eru einn af
seglum landshlutans sem brýnt er að halda á
lofti,“ segir Þór. Boðið var upp á fjölbreytta
dagskrá á Skógardeginum. Má þar nefna
Íslandsmeistaramót í skógarhöggi, þar sem
Bjarki Sigurðsson fór með sigur af hólmi,
Sigfús Jörgen Oddsson varð í öðru sæti og í
því þriðja var Jón Þór Þorvarðarson
Kúabændur buðu upp á heilgrillað naut
og sauðfjárbændur upp á grillað lambakjöt.
Listamenn af ýmsum toga komu fram, m.a.
Magni Ásgeirsson, og þá voru þrautir í boði
fyrir yngstu kynslóðina. Ketilkaffið var á
sínum stað sem og lummurnar en gestir gerðu
veitingum góð skil. /MÞÞ
Skógardagurinn mikli í Hallormsstaðaskógi:
Skógarnir einn af seglum landshlutans
Þór Þorfinnsson, skógarvörður á Austurlandi, segir tilgang Skógardagsins að
kynna heimamönnum og gestum skógarmenningu, útivist í skógi og mikilvægi
skógræktar sem framtíðaratvinnugreinar á svæðinu. Myndir / Anna Jakobs
Það er vinsælt á skógardögum að útbúa snúrubrauð, hér
eru nokkrir af fulltrúum yngri kynslóðarinnar að baka
þannig brauð yfir eldi.
Nautgripabændur grilluðu og buðu gestum og gangandi
að bragða á gæðakjöti.
Jón bóndi í Teigarseli með fullan bakka af grilluðu
kjöti. Mynd / Sigrún Júnía
Íslandsmót í skógarhöggi fór fram á Skógardeginum mikla í
Hallormsstaðaskógi. Hér er það Sigfús J. Oddsson sem beitir söginni.
Jóhann Gísli og Edda Björnsdóttir á Miðhúsum við
súpupottinn.