Bændablaðið - 07.07.2022, Síða 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022
FRÉTTIR
Ætla að vinna áburð úr fiskimykju:
Landeldi í örum vexti
– Samstarf milli nýstofnaðra Landeldissamtaka Íslands og Bændasamtakanna
Nýlega stofnuðu þau fimm
fyrirtæki sem stunda þauleldi
fisks á landi samtökin Eldís,
Landeldissamtök Íslands.
Við stofnun samtakanna var
jafnframt undirrituð viljayfirlýsing
milli þeirra og Bændasamtaka
Íslands þess efnis að sameiginlega
muni þau vinna að framgangi á
fullvinnslu lífræns úrgangs til
áburðarframleiðslu.
Rúnar Þór Þórarinsson, stjórnandi
sjálfbærni og nýsköpunar hjá
Landeldi hf., er stjórnarformaður
hinna nýstofnuðu samtaka,
Eldís, en auk Landeldis ehf. eiga
Samherji, Geo Salmo, Matorka og
ILFS í Vestmannaeyjum aðild að
samtökunum.
Áform um framleiðslu á 131.500
tonnum af landöldum laxi
Rúnar segir umfang landeldis hér á
landi vera í örum vexti.
„Samherji rekur eldisstöð í
Öxarfirði þar sem áherslan er á
áframeldi á laxi og bleikju, en þar að
auki rekur Samherji bleikjueldi á landi
í Grindavík og við Vatnsleysuströnd.
Fyrirtækið áformar enn fremur að
stórauka framleiðsluna á laxi með
uppbyggingu sinni á Reykjanesi,
svonefndum Auðlindagarði.
Áformar Samherji að auka þannig
framleiðslu sína á landöldum laxi
upp í 45.000 tonn á ári.
Landeldi hf. hóf á árinu 2020
framkvæmdir á lóð sinni vestan
við Þorlákshöfn, þar sem félagið
hyggst ala lax á landi. Landeldi náði
nýverið þeim áfanga að setja fyrstu
laxaseiði í fulleldisker á staðnum,
og þar eru nú um 370.000 laxar allt
upp í 1400 grömm að þyngd. Að
auki er Landeldi með 1,4 milljón
seiða í seiðastöð sinni í Öxnalæk
við Hveragerði. Landeldi hyggst ala
33.500 tonn af laxi á ári þegar fullri
framleiðslu er náð í landeldisstöð
sinni við Laxabraut í Þorlákshöfn.
Við hlið þeirrar stöðvar mun
rísa landeldisstöð Geo Salmo, þar
sem áform eru uppi um að ala
24.000 tonn af laxi á ársgrundvelli.
Enn fremur eru Icelandic Land
Farmed Salmon með landeldisstöð
í Vestmannaeyjum í smíðum og
hyggjast þar ala 9.000 tonn af laxi
á ári. Jafnframt má nefna Fiskeldi
Ölfuss, sem eru í leyfisferli en
hafa tryggt sér landsvæði við
Þorlákshöfn og stefna á 20.000
tonna ársframleiðslu af laxi.
Saman tekið eru því 131.500 tonn
af landöldum laxi á ársgrundvelli
við sjóndeildarhringinn hjá þessum
fimm landeldisfélögum. Langmest
eru uppbyggingaráformin hvað
landeldi varðar á Suðurlandi
og Reykjanesi,“ segir Rúnar og
bætir við að til samanburðar hafi
heildarmagn þess lax sem slátrað
var úr sjókvíum við Ísland árið
2021 verið alls 44.500 tonn. Nam
útflutningsverðmæti þessa rúmum
20 milljörðum króna á síðasta ári.
„Meðal þeirra landeldisfélaga
sem rækta annað en lax er Matorka,
einn stofnaðila Eldís, ræktaraðili
regnbogasilungs við Grindavík
sem hyggjur á stækkun og eflingu
eldisins. Klausturbleikja er einnig
gróið fyrirtæki sem hefur verið
lengi að og svo eru smærri en afar
spennandi vaxtarbroddar í dýrmætu
landeldi eins og Sæbýli sem elur
sæeyru og Hið íslenska styrjufélag,“
segir Rúnar.
Tillögum spretthóps
fundinn farvegur
Með viljayfirlýsingu og samstarfi
Eldís og BÍ er stefnt að því að fá
hagaðila að verkefninu, greina
fýsileika þess að fullvinna lífrænan
úrgang til áburðarframleiðslu, sækja
um styrki og þróa umgjörð og
tæknilausnir.
„Lífrænn úrgangur og
hliðarafurðir eru orðnar enn
mikilvægari auðlindir en áður til
áburðarnotkunar í ljósi mikilla
hækkana á innfluttum, tilbúnum
áburði. Hlutverk BÍ og Eldís
næstu mánuði verður að vinna
að sameiginlegri umsókn í
samkeppnissjóði á sviði loftslags- og
umhverfismála á grundvelli þeirrar
hugmyndafræði að með innlendri
endurnýtingu á lífrænum efnum sem
falla til við landbúnað og landeldi sé
hægt að framleiða áburð sem mætir
þörfum innanlandsmarkaðar og
þannig stuðla að aukinni sjálfbærni
í íslenskum landbúnaði,“ segir í
sameiginlegri tilkynningu félaganna.
Með samstarfsverkefninu sé hafin
ein af þeim framtíðaraðgerðum
sem lögð var til í spretthópi
matvælaráðherra.
Unnið að heimtingu fiskimykju
Seiðeldisstöð Landeldis hf. að
Öxnalæk hefur verið endurnýjuð
með endurheimt fiskimykju í huga.
„Heimtur hráefnisins hefjast
þar, í réttu flæðimagni úr tankinum
í réttar tromlur. Þetta er þekkt
og eðlileg leið og mikilvægt að
gera hana rétt, en Landeldi hefur
hannað fjölda aukaaðferða til að
auka söfnunina frá kari til tromlu.
Landeldi hefur tekið næstu skref og
skrifað undir samning við norska
fyrirtækið Blue Ocean Technology
um að smíða og byggja fyrsta hluta
áframvinnslustöðvar sem forvinnur
hráefnið enn frekar áður en það fer í
áburðarvinnsluna,“ segir Rúnar, en
fræðslugrein hans um landeldi má
lesa í blaðinu. /ghp
Fulleldisstöð Landeldis hf., sem nú er í smíðum vestan við Þorlákshöfn, en þar hyggst fyrirtækið ala 33.500 tonn
af laxi á ári þegar fullri framleiðslu er náð. Mynd/ Landeldi hf.
Jarðræktarstyrkir:
Greitt verður 65% álag
Opnað hefur verið fyrir rafrænar
umsóknir fyrir jarðræktarstyrki
og landgreiðslur vegna yfir
standandi ræktunarárs.
Að þessu sinni geta bændur
sótt um sérstakar álagsgreiðslur,
í samræmi við ákvörðun mat-
vælaráðherra um aðgerðir til bjargar
íslenskri frumframleiðslu matvæla
vegna versnandi rekstrar skilyrða af
ytri orsökum. Á jarð- ræktarstyrki og
landgreiðslur á árinu verður greitt 65
prósenta álag.
Umsóknarfrestur er til mánu-
dagsins 3. október og skal um-
sóknum skilað í gegnum Afurð
(afurd.is). Samkvæmt tilkynningu
úr matvælaráðuneytinu er mikilvægt
að umsóknir berist tímanlega svo
hægt sé að greiða út álagsgreiðslur
í byrjun október á þessu ári.
Ræktun til manneldis og
fóðuröflunar
Styrkhæf jarðrækt er til að mynda
ræktun á grasi, korntegundum til
dýrafóðurs og manneldis, ræktun
olíujurta og ræktun grænfóðurs til
beitar og uppskeru á því ári sem
uppskorið er.
„Beit búpenings telst vera
uppskera og nýting kornhálms
og annarra jurta til uppræktunar
jarðvegs í útiræktun grænmetis telst
styrkhæf. Ræktun vetraryrkja sem
sáð er um mitt sumar og endurræktun
túna er tekin út á ræktunarári. Ekki
telst styrkhæf ræktun ef kornrækt er
eingöngu ætluð til að draga að gæsir
til skotveiði, nema ef kornhálmur er
sannarlega hirtur eða plægður niður.
Önnur ræktun sem ekki er nytjuð
til búskapar, þar með talin sáning í
golfvelli, tjaldstæði o.s.frv. er ekki
styrkhæf,“ segir í tilkynningunni.
Landgreiðslur á ræktað land
sem er uppskorið
Landgreiðslur eiga við um
ræktað land sem uppskorið er til
fóðuröflunar og framleiðanda er
heimilt að nýta. Framlög eru ekki
greidd út á land sem eingöngu er
nýtt til beitar. Þegar uppskorinn er
hluti lands, sem sækja á um styrk út
á, skal skrá sérstaklega þann fjölda
hektara sem er uppskorinn.
Fram kemur í tilkynningunni
að þar sem úttekt umsókna verður
ekki lokið fyrr en 15. nóvember
2022 verði álagsgreiðslur greiddar
með fyrirvara um að standast
úttekt. Tekið verður á misræmi
milli umsókna og úttekta sem
kann að koma upp við greiðslu
á árlegum jarðræktarstyrkjum og
landgreiðslum í byrjun desember
2022. /smh
Á jarðræktarstyrki og landgreiðslur á árinu verður greitt 65 prósenta álag,
vegna versnandi rekstrarskilyrða frumframleiðenda í matvælaframleiðslu.
Rúnar Þór Þórarinsson.
Laxar í landeldiskeri. Mynd / Landeldi hf.
Galli reyndist
ekki gallagripur
- Mannleg mistök á tilraunastofu
Greint var frá því hér í blaðinu
í lok maí síðastliðnum að
hrúturinn Galli (20875) frá Hesti
væri meintur gallagripur, þar
sem talið var að hann væri með
áhættuarfgerð fyrir riðusmiti.
Nú hefur hins vegar komið á daginn,
að vegna þess að ruglingur varð á
sýnum er raunin sú að Galli er ekki
með þessa áhættuarfgerð, heldur hlut-
lausa arfgerð.
Þetta kemur fram í aðsendri grein
Eyþórs Einarssonar, sauð fjárræktar-
ráðunautar hjá Ráðgjafarmiðstöð
landbúnaðarins, á blaðsíðu 46.
Galli kom nýr inn á sæðingastöð
í desember og var einmitt upphaflega
tekinn inn á sæðingastöð á þeim
forsendum að hann hefði hlut-
lausa arfgerð.
Því var um falsfrétt að ræða í maí,
en Eyþór segir að þetta hafi komið
fram þegar nokkrir sæðingahrútar
voru endurgreindir til að fá ýtarlegri
niðurstöður um arfgerðir þeirra.
Tíðindin í maí þóttu mjög
slæm, enda var þá búist við að um
helmingur þeirra afkvæma sem
myndu fæðast undan Galla bæru
áhættuarfgerðina.
Eyþór harmar að rangar upp-
lýsingar hafi verið settar fram en um
mannleg mistök hafi átt sér stað á
tilraunastofu og eru hlutaðeigendur
beðnir velvirðingar.
Ánægjulegt sé að Galli geti haldið
áfram veru sinni á sæðingastöð þar
sem ýmsar ábendingar hafi heyrst
af fallegum lömbum undan honum
í vor. /smh
Tíðindin í maí þóttu mjög slæm, enda var þá búist við að um helmingur
afkvæma Galla bæru áhættuarfgerð fyrir riðusmiti.