Bændablaðið - 07.07.2022, Page 10
10 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022
Fimm sýni úr plöntuafurðum
reyndust innihalda varnarefna-
leifar yfir leyfilegum hámarks-
gildum, samkvæmt nýútgefinni
ársskýrslu Matvælastofnunar
fyrir síðasta ár.
Þrjú sýni innihéldu skordýraeitur
yfir hámarki og sveppalyf var í of
miklum mæli í tveimur sýnum, öll
úr innfluttum vörum. Fyrir árið
2020 innihéldu sjö sýni of mikið af
varnarefnaleifum – og sömuleiðis
öll úr innfluttum vörum.
Katrín Guðjónsdóttir, fagsviðs-
stjóri neytendaverndar og fiskeldis
hjá Matvælastofnun, segir að
sýnatökur vegna varnarefnaleifa
í matvælum úr plönturíkinu – þar
með talið skordýraeitur, sveppalyf
og illgresiseyðir – séu framkvæmdar
árlega. Sýni séu tekin samkvæmt
kröfum í reglugerðum úr bæði
innfluttum og innlendum vörum.
Í fyrra voru tekin 133 sýni af
matvælum úr jurtaríkinu til greininga
á varnarefnaleifum.
Skordýraeitrið sem greindist
yfir mörkum fannst í eggaldini frá
Spáni og greipaldini frá Tyrklandi,
en sveppalyf í melónu frá Hondúras
og dilli frá Marokkó.
Í skýringum Matvælastofnunar
við niðurstöðurnar segir að ástæður
varnarefnaleifa yfir hámarksgildum
geti verið mismunandi. Þegar um
innfluttar afurðir er að ræða sé
ástæðan oft sú að stífari reglur
eru um notkun varnarefna innan
Evrópska efnahagssvæðisins
(EES) en í landinu þar sem matvælin
eru framleidd. Fyrir sum efni eru
hærri leyfileg hámarksgildi í
upprunalandinu og í sumum
tilfellum er um að ræða efni sem er
bannað að nota við ræktun á EES-
svæðinu en ekki í upprunalandinu.
Skimað fyrir 206 efnum
„Hvað varðar varnarefnaleifar í
plöntuafurðum þá er skimað fyrir
206 efnum í sýnum sem greind eru
hjá Matís. Efnum sem skimað er
fyrir hefur verið að fjölga gegnum
árin. Í byrjun árs 2014 var skimað
fyrir 61 efni, 188 efnum í lok 2017
og 206 síðustu ár. Það er á áætlun að
fjölga efnum enn frekar, í áföngum,
næstu ár,“ segir Katrín.
Gerð sýnatökuáætlunar á landsvísu
er í höndum Matvælastofnunar
en Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga
sér um sýnatökur og fylgir eftir
niðurstöðum utan marka.
Katrín segir einungis tvö innlend
sýni hafi verið tekin í fyrra, en í
sýnatökuáætlun Matvælastofnunar
hafi verið gert ráð fyrir 20
innlendum sýnum. Sá fjöldi er talinn
nægur miðað við fjölda innlendra
framleiðenda og þá staðreynd að
lítið sé notað af varnarefnum við
ræktun hérlendis og oftast ekkert
í ylrækt. Þetta séu kostnaðarsamar
mælingar, hvert sýni kosti yfir 100
þúsund krónur og greiðist úr vasa
viðkomandi bænda, framleiðanda
og innflytjanda.
Hún segist ekki geta skýrt hvers
vegna heilbrigðiseftirlitssvæðin –
sem eru alls níu – tóku ekki öll sýnin
sem áætlunin gerði ráð fyrir.
Vörum fargað eða þær
innkallaðar
Þegar efni greinast yfir hámarksgildi
er málum fylgt eftir með stöðvun
dreifingar ef varan er enn til og er
framleiðanda eða innflutningsaðila
gefinn kostur á að staðfesta
niðurstöðu með nýju sýni. Þeim
birgðum sem til eru er fargað ef
niðurstaðan er staðfest. Ef varan er
hugsanlega til á heimili neytenda og
talin geta valdið þeim skaða, þá er
hún innkölluð frá neytendum.
Þegar um innflutta vöru er að ræða
er fylgst með næstu sendingum frá
sama aðila. Dreifingarbann er á þeim
sendingum þar til niðurstöður berast.
Sendingum er fargað ef niðurstöður
sýna leifar yfir hámarksgildi. /smh
FRÉTTIR
LOFTFRÍ DEKK
Smiðsbúð 10, 210 Garðabæ · s. 787 9933
vpallar.is · vpallar@vpallar.is
Háþrýstidælur í
mörgum stærðum
Mælingar á varnarefnaleifum í matvælum:
Fimm sýni innihéldu skordýraeitur og
sveppalyf yfir leyfilegum hámarksgildum
Sýni úr eggaldini, greipaldini, melónu
og dilli reyndust vera með of hátt
innihald skordýraeiturs og sveppalyfs.
70 ára þróun vélaútgerða
– Stærstu jarðýtu landsins má finna í Þórustaðanámu
Gamli og nýi tíminn mætast. Hérna má sjá langfeðgana Jón Ingileifsson og Jón Ingileifsson frá Svínavatni. Upphaf
vélaútgerðar á Svínavatni má rekja til Ferguson eins og á myndinni, en nýjasta viðbótin í vélaflotann er stærsta
jarðýta landsins, Liebherr PR776. Mynd /Sigurbjörg Ingvarsson
Jón Ingileifsson hóf sinn verktaka-
feril á Ferguson dráttarvél
sem kom að Svínavatni fyrir
70 árum þegar hann var í kringum
15 ára aldur.
Að sögn Ingileifs, sonar Jóns, var
sú vél fyrsta vélknúna tækið sem
kom að bænum, en fram að því var
allt unnið með handafli. Fljótlega
eftir að vélin kom byrjaði Jón að
nýta hana í hin og þessi verkefni í
sveitinni. Fyrst var keyptur á hana
tætari og síðar ámoksturstæki.
Tilkoma þessarar vélar var
upphafið að því að Jón kæmi að
vélaútgerð og námugreftri, en
hann mokaði með henni steypumöl
á vörubíla. Hann hefur starfað
við vélavinnu alla sína tíð og fór
Ingileifur sonur hans að vinna hjá
honum þegar hann hafði aldur til og
fór svo í vélaútgerð sjálfur. Núna 70
árum síðar er sonarsonur Jóns og
nafni kominn í vélabransann með
pabba sínum og afa.
Fyrir skemmstu fjárfesti fyrirtæki
Ingileifs í stærstu jarðýtu landsins
sem hefur verið tekin í notkun í
Þórustaðanámu í Ingólfsfjalli. Af
því tilefni var meðfylgjandi mynd
tekin sem sýnir hvernig þróunin í
vélaútgerðinni hefur verið á ekki
skemmri tíma.
Umrædd vél er af gerðinni
Liebherr PR776 og er keypt í gegnum
Rúkó vinnuvélar. Samkvæmt
Kristófer S. Snæbjörnssyni,
sölustjóra hjá Rúkó, er vélin
75 tonn, 786 hestöfl og ýtir tönnin
22 rúmmetrum.
Kristófer vildi ekki að það kæmi
fram nákvæmt verð á vélinni, en
það er hægt að kaupa einbýlishús í
úthverfi fyrir svipaða upphæð.
/ÁL
Fjárvís tekur á móti upplýsingum
úr arfgerðagreiningum RML
Hjá Ráðgjafarmiðstöð land-
búnaðarins (RML) er nú unnið
að því að taka inn upplýsingar
í skýrsluhaldskerfið Fjárvís
úr stóra átaksverkefninu í
arfgerðagreiningum sauðfjár.
Unnið hefur verið að því síðustu
mánuði að gera Fjárvís í stakk
búið að taka á móti þessum
upplýsingum og í lok júní voru
fyrstu gögnin komin þar inn.
Að sögn Gunnfríðar Elínar
Hreiðarsdóttur, verkefnastjóra hjá
RML, sem, ásamt Eyjólfi Ingva
Bjarnasyni, stýrir aðlögunarferli
Fjárvís, verður á næstu vikum
unnið að því að koma öllum tækum
upplýsingum inn í kerfið og svo
verða niðurstöður aðgengilegar
bændum jafnóðum og þær berast.
Þar munu bændur hafa yfirlit um
smitnæmi allra gripa gagnvart riðu,
sem greindir hafa verið, og hægt að
nýta þær inn í ræktunarstarfið.
Mikilvægt að auðvelt sé að lesa
úr upplýsingunum
„Það er mikilvægt að upplýsingar
um arfgerðir einstakra gripa séu
settar fram á þann hátt að auðvelt
sé að lesa úr þeim og í framhaldi
vinna með þær í ræktunarstarfinu.
Allar niðurstöður um arfgerðir í
einstökum sætum verða auðvitað
aðgengilegar í upplýsingum um hvern
grip en hvað varðar framsetningu og
leiðbeiningar um hvernig rétt er að
vinna með einstakar arfgerðir hefur
sú leið verið farin að auðkenna gripi
með mismunandi litum flöggum eftir
því hvaða arfgerð þeir greinast með.
Hver litur af flaggi táknar þá ákveðið
stig af næmi fyrir riðusmiti, hvað það
þýðir og hvernig skynsamlegt er að
vinna með viðkomandi einstaklinga
í ræktunarstarfinu.
Þegar arfgerðagreiningar hafa
verið lesnar inn er hægt að nálgast
niðurstöðurnar annars vegar í
gripalista þar sem viðeigandi flögg
birtast þá fyrir framan númer og nafn
grips og hægt er að velja inn dálka sem
sýna nánari upplýsingar um samsetta
arfgerð og arfgerðir í hverju sæti fyrir
sig. Einnig er kominn inn nýr flipi,
„Arfgerðargreiningar (DNA), þar
sem upplýsingar um greiningu sjást.
Einnig hefur verið útbúin sýnaleit
fyrir bændur sem er aðgengileg efst
á forsíðunni. Þar er hægt að nálgast
niðurstöður fyrir alla greinda gripi
á búinu án þess að gripir sem ekki
hafa greiningu séu að trufla,“ segir
Gunnfríður. /smh
Litamerkingar gripa með hliðsjón af arfgerðum eftir næmi fyrir riðusmiti,
eins og þær birtast í gripalista í Fjárvís. Mynd / Skjáskot úr Fjárvís