Bændablaðið - 07.07.2022, Qupperneq 16
16 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022
Ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar fyrir fiskveiðiár 2022/2003:
Er „sveiflujöfnun“ ný grein innan fiskifræðinnar?
– Furðufyrirbrigði sem hefur ekkert að gera með fiskifræði, líffræði né annað tengt fræðum hafsins
Það eru 47 ár síðan ég veiddi
fyrsta laxinn minn í Ormarsá á
Melrakkasléttu. Þessi kollegi og
forljóti 5 punda hængur hafði
gríðarleg áhrif á líf mitt.
Að veiða lax varð mér ástríða,
langt umfram það sem eðlilegt getur
talist. Reynsla mín eftir að hafa elt
þennan stórkostlega fisk í tæpa hálfa
öld er þessi: Eftir því sem meira er
af fiski í ánni veiði ég betur. Ef
fiskarnir eru fáir veiði ég lítið og
jafnvel ekki neitt.
Eftir því sem fiskarnir eru fleiri
veiðist betur
Sem ég horfi yfir farinn veg sýnist
mér ég geta dregið einfalda ályktun –
sem mér finnst reyndar harla rökrétt
fyrir allan veiðiskap: Eftir því sem
fiskarnir/dýrin eru fleiri veiðist
betur. Fyrir fáeinum dögum kynnti
Hafrannsóknastofnun ráðgjöf sína
fyrir næsta fiskveiðiár.
Þar lagði hún til að skerða
veiðiheimildir í þorski um 6%. Af því
tilefni hafði ég samband við fjölda
manna sem vinna dags daglega á
fiskimiðunum og spurði þá hvort
þessar tillögur Hafró samrýmdust
þeirra reynslu.
Skemmst er frá því að segja að
ekki einn einasti þeirra sagði svo
vera. Flestir lýstu hlutunum þannig
að reynslan mín af laxveiðunum
smellpassar.
Rugluð ráðgjöf
Svo gerðist það að tveir öflugir
togaraskipstjórar, þeir Ágúst
Ómarsson, skipstjóri á Drangey
SK 2, og Björn Jónasson, skipstjóri
á Málmey SK 1, birtu grein á
heimasíðu FISK undir fyrirsögninni
„Rugluð ráðgjöf“.
Hér er orðréttur texti úr grein
þeirra félaga:
„Allan hringinn í kringum
landið erum við sjómenn að upplifa
mokfiskerí bæði grunnt og djúpt
og nánast á hvaða veiðarfæri sem
er. Sjórinn er sem sagt kjaftfullur
af fiski. Á sama tíma ákveður
Hafrannsóknastofnun að skera
veiðiheimildir í þorski niður um 6%
til viðbótar við 13,5% niðurskurð í
fyrra. Í karfa er niðurskurðurinn á
milli ára hvorki meira né minna en
20% enda þótt hann mokveiðist hvar
sem menn bleyta í veiðarfærum.“
Aðeins nokkrum dögum síðar
birtist viðtal við Guðmund Smára
Guðmundsson, framkvæmdastjóra
Guðmundar Runólfssonar hf. í
Grundarfirði. Guðmundur telur fulla
þörf á því að endurskoða nálgun
Hafrannsóknastofnunar.
Hér er ekki um að ræða þetta
eilífðar leiðindanöldur smábáta-
eigenda sem hafa gagnrýnt
aðferðafræði Hafrannsóknastofnunar
í gegnum áratugina. Með skrifum
sínum og viðtali staðfestu þeir
Ágúst, Björn og Guðmundur þá
fullvissu smábátaeigenda að Hafró
sé að vanmeta stærð þorskstofnsins
og það svo um munar.
Það bætist í þann hóp sem hefur
fengið sig fullsaddan af því sem
Hafró ber á borð.
Opinn fundur Hafró
Á opnum fundi hinn 15. júní sl.
kynnti Hafró ráðgjöf sína fyrir
næsta fiskveiðiár (2022/2003). Að
kynningu lokinni var boðið upp á
spurningar frá gestum. Af u.þ.b. 50
fundargestum höfðu tveir fyrir því.
Ég var annar þeirra og bar m.a. upp
þessa spurningu. Ég tek fram að ég
lagfæri ögn orðalagið bæði hjá mér
og svarandanum. Það er ævinlega svo
að talað mál er lengra en hið ritaða.
Engu er sleppt sem máli skiptir:
Spurning: „Nú eruð þið að
mæla stofninn niður, eina ferðina
enn. Hvernig finnst ykkur þetta
passa við fréttir af vettvangi? Uppi
í Breiðafirði voru slegin öll met í
sögu þorskveiða í net á Íslandi þar
sem einn lítill bátur veiddi í einum
mánuði 1.180 tonn. Hann hengdi
grunnendann á trossunum nánast á
hafnargarðinn.
Skipstjórinn fullyrti að hann
hefði aldrei séð annað eins magn
af fiski í Breiðafirði og sló þeirri
skemmtilegu tölu fram að það væru
milljón tonn af þorski í firðinum.
Ég veit ekki hversu nákvæm sú
mæling er, en ég tek ekkert minna
mark á henni en mælingum Hafró
sem er verið að kynna hér í dag.
Þessi endalausa niðursveifla hjá
ykkur, hvernig passar hún við rallið,
sem nú er stundað hringinn í kringum
landið og heita strandveiðar?
Meðalafli í strandveiðum hefur
aldrei verið hærri. Það er ekki hægt
að skýra þetta með því að það séu
stöðugt öflugri aðilar að koma inn því
þessir menn eru að eldast og bátarnir
að eldast. Það er búið að smíða
heilan einn nýjan strandveiðibát frá
því strandveiðikerfið var sett í gang
árið 2009. Og því spyr ég; hvernig
finnst ykkur þetta stemma, gengið
á miðunum og þessar endalausu
niðurmælingar?
Bjarki Þór Elvarsson, tölfræðingur
Hafrannsóknastofnunar, svaraði:
„Já, ég hafði náttúrlega margar
spurningar sem þú ert með, en
varðandi upplifun og að við séum að
sjá góð aflabrögð kemur okkur ekki
á óvart og kemur heim og saman við
okkar mælingar. Við erum að sjá t.d.
varðandi viðmiðunarstofninn að þó
hann hafi gefið aðeins eftir núna þá
er hann í hæstu hæðum miðað við
það sem við höfum séð í minni lífstíð
(innskot, mér sýnist Bjarki vera á
svipuðum aldri og kvótakerfið) að
við erum að sjá aflabrögð eins og
elstu menn muna.
Varðandi þetta dæmi sérstaklega
í Breiðafirði þá kíktum við á
aflabrögð á sóknareiningu í
einstökum veiðarfærum. Þar erum
við að sjá að afli á sóknareiningu í
netum fer mjög vaxandi, enda þau
veiðarfæri sem taka stærsta þorskinn
og sá hluti þorsksins sem hefur farið
mjög vaxandi upp á síðkastið. Það er
einmitt vegna þess að veiðihlutfallið
hefur farið lækkandi.
Það er í sjálfu sér í grunninum
til ástæða þess að það hefur orðið
töluverð breyting í samsetningu
stofnsins. Hann er orðinn stærri,
hann er orðinn eldri. Þannig að
stofnárgangar eru lengi inni í
veiðinni. Þannig höfum við eiginlega
verri greiningu á því hversu margir
fiskar eru í sjónum, vegna þess að
það er stór hluti af stofninum sem
við höfum ekki enn þá séð, nema
bara með veiðum.“
Það er margt í þessu svari Bjarka
sem ég skil ekki.
Dæmi; að „viðmiðunarstofninn
hafi gefið aðeins eftir.“ Aðeins?
Samkvæmt gögnum Hafró var
viðmiðunarstofn þorsks árið 2019
alls 1.364.745 tonn. Samkvæmt
nýjustu gögnum hefur hann hrunið
niður í 982.186 tonn árið 2021 eða
um 382.559 tonn (hátt í 28%!). Sú
tala er á pari við heildarþorskafla
Íslendinga árið 1988. Er þetta
„frávik“ semsé „aðeins“?
Sjávarútvegsráðuneytið sendi
fyrirspurn á Hafró fyrir stuttu
hvaða áhrif 1.000 tonna viðbót við
veiðiheimildir strandveiðiflotans
hefðu á afkomu þorskstofnsins.
Því var svarað um hæl að það
hefði „neikvæð áhrif“. Einmitt.
Stofnun sem hringlar með stærð
þorskstofnsins upp á hundruð
þúsunda tonna milli ára telur sér
sæmandi að láta frá sér þvílíka
dauðans dellu.
Það er hins vegar niðurlagið í
svarinu sem slær mig algerlega út
af laginu:
„...við höfum eiginlega verri
greiningu á því hversu margir fiskar
eru í sjónum. Vegna þess að það
er stór hluti af stofninum sem við
höfum ekki enn þá séð, nema bara
með veiðum.“
Sveiflujöfnunarfiskifræðin
Svokölluð „sveiflujöfnun“ vekur
litla sem enga athygli fjölmiðla né
annarra. Ég leyfi mér að fullyrða
að flestir leikmanna sem hlusta á
kynningu á borð við þá sem Hafró
bauð upp á 15. júní sl. spyrja engra
spurninga í því sambandi.
Þet ta furðufyr i rbr igði
–sveiflujöfnun– er ávöxtur
hrossakaupa pólitíkusa og fiski-
fræðinga og hefur ekkert að gera
með fiskifræði, líffræði né annað
tengt fræðum hafsins.
Hvers vegna Hafró telur sjálfsagt
og eðlilegt að taka þessa breytu
inn í sína ráðgjöf er sjálfstætt
rannsóknarefni.
Þessi stærð er athyglisverð fyrir
margra hluta sakir.
Ef „sveiflujöfnunarfiskifræðin“
hefði ekki komið til hefði Hafró lagt
til 195.318 þúsund tonna þorskafla
fyrir næsta fiskveiðiár, en ekki
208.846 tonn.
Mismunurinn er 13.528 tonn.
Mismunur sem er mun meiri en
nokkru sinni hefur verið ráðstafað
til strandveiðiflotans!
Ég ætla að leyfa mér að giska á
hvers vegna Hafró lætur sig hafa
þetta:
Sveiflujöfnunin er langt
innan þeirra skekkjumarka sem
stofnunin veit best allra að er í
hennar mælingum og tillögum.
Sveiflujöfnunin hleypur á þúsundum
tonna á sama tíma og 1.000 tonn til
handa strandveiðiflotanum hefur
„neikvæð áhrif“ að mati sömu
stofnunar.
Ég veit ekki hvort er meira
viðeigandi að hlæja eða gráta.
Arthur Bogason,
formaður Landssambands
smábátaeigenda.
NYTJAR HAFSINS
Sveiflujöfnun hleypur á þúsundum tonna. Mynd / Ricardo Resende
Arthur Bogason. Eftir því sem fiskarnir eru fleiri því betur veiðist. Mynd /VH