Bændablaðið - 07.07.2022, Blaðsíða 17
17Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022
Yfirlit yfir lax- og silungsveiði 2021:
Aldrei veiðst fleiri hnúðlaxar
Hafrannsóknastofnun hefur sent
frá sér skýrslu þar sem greint
er frá fjölda laxa og silunga sem
veiddir voru árið 2021.
Samkvæmt gögnunum voru það
41.035 laxar, 48.381 urriðar og
55.785 bleikjur. Aldrei hafa veiðst
fleiri hnúðlaxar í ám hér á landi en
sumarið 2021 alls 399.
Heildarfjöldi stangveiða veiddra
laxa árið 2021 var samkvæmt
skráðum gögnum sem bárust til
Hafrannsóknastofnunar 36.461
laxm, sem er 8.663, 19,2%, minni
veiði en árið 2020. Af einstökum
landshlutum þá var aukning í veiði
í ám á Reykjanesi, Vesturlandi og
Norðurlandi vestra en minni veiði
á Vestfjörðum, Norðurlandi eystra,
Austfjörðum og Suðurlandi.
Aukning í hnúðlaxi
Aldrei hafa veiðst fleiri hnúðlaxar í
ám hér á landi en sumarið 2021 en þá
voru skráðir samtals 339 hnúðlaxar í
stang- og netaveiði. Í stangveiði voru
skráðir 323 hnúðlaxar og 16 skráðir
í netaveiði.
Samkvæmt skýrslunni er vitað
um hnúðlaxa úr fleiri ám sem ekki
voru skráðir í veiðibækur eða skilað
gögnum um.
53,7% af löxum sleppt
Af veiddum löxum í stangveiði
þá var 19.589, eða 53,7%, sleppt
og heildarfjöldi landaðra laxa var
16.872. Af stangveiðiveiddum
löxum voru 28.705 smálaxar með
eins árs sjávardvöl og 7.756 laxar
með tveggja ára sjávardvöl eða
lengri. Alls var þyngd landaðra laxa
í stangveiði 46.832 kíló.
Alls voru skráðir 43.389 urriðar í
stangveiði sumarið 2021 en hlutfall
urriða sem var sleppt var 33,1% sem
er hér um bil sama tala og var sleppt
árið 2020. Afli urriða var 29.043
fiskar sem vógu samtals 37.654 kíló.
Alls voru skráðar 30.726 bleikjur
í stangveiði árið 2021. Hlutfall
bleikju sem var sleppt var 45,2%
sem var mun hærra hlutfall en árið
áður sem var 18,4%.
Afli í net
Veiði í net var 4.574 laxar sumarið
2021 og var heildaraflinn rúm
12,5 tonn. Eins og undanfarin ár
var netaveiði mest stunduð í stóru
ánum á Suðurlandi, Ölfusá-Hvítá
og Þjórsá, en þar veiddust 4.344
laxar í net og var aflinn rétt rúm tólf
tonn. Lítið var um netaveiði í öðrum
landshlutum.
Skráð silungsveiði í net á landinu
öllu var 5.002 urriðar og 25.059
bleikjur. /VH
Laxá í Dölum.
Framleiðendur skotbómulyftara deila:
JCB kærði Manitou fyrir einkaleyfisbrot
Þann 5. júlí síðastliðinn dæmdi dómstóll
í Bretlandi, sem fer með einkaleyfisbrot,
franska fyrirtækið Manitou fyrir þjófnað á
einkaleyfi í eigu JCB.
Umrætt einkaleyfi snýr að stöðugleikakerfi
fyrir skotbómulyftara. Þetta kemur fram í
fréttatilkynningu frá JCB. Dómnum þótti
fullsannað að Manitou hefði notað þessa tækni í
sína framleiðslu um árabil og að tæknistuldurinn
væri enn þá í gangi.
Manitou reyndi að fá einkaleyfið dæmt úrelt
án árangurs, en það gildir til ársins 2031.
JCB vinnur í því að kæra Manitou fyrir brot
á sama einkaleyfi fyrir frönskum dómstólum.
Vænta má niðurstöðu úr því máli síðla árs 2023.
/ÁL
Samkvæmt kærunni stal Manitou einkaleyfisvarinni tækni frá JCB.
Mynd / JBC