Bændablaðið - 07.07.2022, Qupperneq 21
21Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022
liður í að fá arfgerðina viðurkennda
í ESB.
Í Evrópu eru verndandi
arfgerðir verndaðar
Sem fyrr segir hafa í Evrópu gilt
þær reglur að þegar upp kemur riða
á einstökum bæjum er strax farið í
að yfirfara arfgerðir fjárins með tilliti
til príonpróteinsins, sem segir til um
líkur á smiti.
Sigurbjörg Bergsdóttir, sér
greina dýralæknir nautgripa og
sauðfjársjúkdóma hjá Matvæla
stofnun, segir að samkvæmt reglugerð
Evrópusambandsins geti þessi lönd
valið um þrjár leiðir viðbragða, sem
allar miða þó að því að vernda gripi
með verndandi arfgerðir. „Algengast
er að kindur sem eru með ARR
arfgerð í öðru eða báðum sætum fá
að lifa, en þær kindur sem ekki hafa
arfgerðina eru aflífaðar.
T137 er verndandi
Sigurbjörg segir að í Evrópu
sambandinu sé T137 arfgerðin ekki
viðurkennd sem verndandi arfgerð
gegn riðu, en það sé fyrst og fremst
vegna þess að þar er ekki talin þörf
á að nýta fleiri verndandi arfgerðir
þar sem ARRarfgerðin er tiltölulega
útbreidd arfgerð. „Fullnaðarrannsókn
á verndandi eiginleikum T137 hefur
því ekki farið fram, en það hefur
sýnt sig að sú arfgerð er verndandi
í ákveðnum fjárstofni á Ítalíu og
ætlunin er að rannsaka hana nánar
hér á landi. Þetta algenga verklag við
uppkomu riðuveiki getum við tekið
upp þegar tekist hefur að rækta upp
kindur með ARR arfgerð eða jafnvel
T137 á búum landsins. En reikna má
með að það taki nokkur ár, varlega
áætlað að minnsta kosti einn tug ára.
Sigurbjörg segir að hnitmiðaðar
aðgerðir til útrýmingar á riðu hérlendis
hafi ekki byrjað fyrr en seint á 20.
öldinni. „Á árunum frá 19801995
var skorið niður á öllum bæjum í heilu
sveitarfélögunum á þeim svæðum þar
sem riðan var útbreidd og ljóst að þær
aðgerðir hafa skilað miklum árangri.
Á stórum svæðum hefur riðan ekki
komið upp aftur síðan,“ bætir hún við.
Rækta upp þolinn fjárstofn,
hratt og vel
Eyþór segir að verkefnið fram
undan sé skýrt hjá þeim sem stýra
ræktunarstarfinu; að rækta upp þolinn
fjárstofn fyrir riðuveiki og gera það
hratt og vel. „Áskorunin verður að
gera þetta á sem mestum hraða en
á sama tíma gefa sem minnst eftir
í þeim ávinningi sem hefur náðst í
gegnum ræktunarstarfið og tapa sem
minnstu af erfðafjölbreytileikanum í
stofninum.
Hvetja þarf alla bændur til
þess að vinna með niðurstöður
arfgerðargreininga í sinni ræktun,
þannig að vinna megi að útrýmingu
áhættuarfgerðarinnar og vali fyrir
þolnari arfgerðum. Hversu bratt
bændur fari í þessa ræktun fyrir
þolnum arfgerðum verður að byggjast
á staðsetningu búanna með tilliti til
smithættu. Það er hvorki nauðsynlegt
né æskilegt að í öllum varnarhólfum
sé þetta gert á jafn miklum hraða. Það
getur minnkað möguleika okkar til
lengri tíma í ræktunarstarfinu ef við
minnkum erfðabreytileikann of mikið.
Það má útskýra þetta þannig að það
er ekki æskilegt að hver einasta kind í
landinu sé orðin afsteypa af Gimsteini
frá Þernunesi eftir aðeins örfá ár.“
Arfgerðirnar í fyrsta sæti
Eyþór segir að í grófum dráttum verði
verkefnið nálgast þannig í byrjun að
bændur á „verstu riðusvæðunum“
verði hvattir til þess að setja
arfgerðirnar í fyrsta sæti og gefa þá
eftir í öðrum eiginleikum á meðan
verið er að byggja upp þolinn stofn.
Þeir ættu ekki að hafa of miklar
áhyggjur þó skyldleikarækt aukist
tímabundið. „Auk þess leggjum við
til að bændur á þessum svæðum láti
greina hrúta sína, því þær greiningar
munu auka hraðann talsvert ef menn
jafnframt kortleggja ærstofninn og
arfgerðargreini þær ásetningsgimbrar
sem þarf hverju sinni. Þegar hafa
allmargir bændur unnið að því að
kortleggja stofna sína í gegnum þær
umfangsmiklu arfgerðargreiningar
sem fram fóru í vetur og vor og
veitir það þeim færi á að geta
spáð fyrir arfgerðir lambanna að
einhverju leyti.
Verulegur akkur er í því ef
bændur koma sér upp sem fyrst
arfhreinum hrútum sem dreifa þá
æskilegu arfgerðunum til allra sinna
afkvæma og getur það líka dregið
úr þörfinni á að arfgerðagreina
jafn mikið af ásetningsgripum.
Varðandi arfgerðirnar þá er
markmið á þessum svæðum að
útrýma áhættuarfgerðinni sem fyrst
og vinna að því að allir gripir beri
lítið næmar eða verndandi arfgerðir
á næstu árum. Hlutlausa arfgerðin
veitir enga vernd. Því er æskilegt
að menn noti kynbótagripi með
verndandi arfgerðir eftir því sem
framboð leyfir en annars gripi sem
bera lítið næmar arfgerðir.“
Hægar farið á öðrum svæðum
Á svæðum þar sem tiltölulega
lítil áhætta er af riðu í dag, segir
Eyþór að fara megi hægar í þetta
en engu að síður sé mikilvægt að
taka þessa ræktun föstum tökum.
Því til lengri tíma er markmiðið
að gera íslensku sauðkindina þolna
fyrir riðuveiki og koma þessum
arfgerðum inn í allan stofninn.
Jafnframt hafi ræktunarbú um allt
land mikilvægu hlutverki að gegna
í því að framleiða úrvalsgripi fyrir
hið sameiginlega ræktunarstarf og
þurfa þessir gripir í auknum mæli
að bera þolnar arfgerðir. Sömuleiðis
sé mikilvægt að sölubú séu ábyrg
þegar kemur að því hvernig gripi
þau selja frá sér – en kannski ekki
síður að kaupendur séu meðvitaðir
og geri þá lágmarkskröfu að
afþakka gripi með áhættuarfgerð.
Ræktunarplan fyrir stofninn
í heild verði síðan uppfært og
unnið af nákvæmni eftir því sem
nauðsynlegar upplýsingar berast.
Endurskoðun á reglum um
viðbrögð við smiti
Í kjölfar tilfellanna á Norðurlandi
árið 2020 var Sigurborg Daðadóttir
yfirdýralæknir fengin til að ráðast
í endurskoðun á reglum sem varða
viðbrögð við riðuveiki.
Hún hefur skilað drögum til
matvælaráðuneytisins sem vinnur
að smíði nýrra reglna, eftir yfirferð
umsagna, en drögin fóru í lokað
umsagnarferli.
Verkefni í vændum
PMCA-rannsóknir á næmi mismunandi arfgerða fyrir riðusmiti í íslensku
sauðfé. Það verður unnið í Frakklandi nú í sumar og haust. Það gengur út á að bera
saman næmi mismunandi arfgerða príonpróteinssins fyrir riðusmiti úr íslenskri kind.
RML er í forsvari fyrir þessu verkefni en það er rannsóknarteymið sem samanstendur
af Karólínu í Hvammshlíð, Stefanía Þorgeirsdóttur og Vilhjálmi Svanssyni f.h. Keldna
ásamt Eyþóri Einarssyni fyrir hönd RML. Markmið er að fá hér betri vitneskju um næmi
mismunandi arfgerða, til dæmis staðfestingu á því að T137 sé einnig fullkomlega
verndandi gegn þeirri riðuveiki sem þrífst hér á landi.
Erfðarannsónir á íslenska sauðfjárstofninum með áherslu á gripi með verndandi
arfgerðir. Undirbúningur að þessu verkefni er hafinn en það byggir fyrst og fremst á
því sýnasafni sem orðið hefur til síðasta árið í gegnum arfgerðargreiningarverkefnin.
Hér um ræðir samstarfsverkefni milli RML og háskólans í Giessen þar sem áherslurnar
eru mótaðar í samráði við sérfræðinga RML. Karólína er hér mikilvægur tengiliður í
samskiptum milli Íslands og Þýskalands við undirbúning verkefnisins.
Arfgerðargreiningar og utanumhald. Arfgerðargreiningar eru að sjálfsögðu
lykilþáttur í þessu verkefni og munu verða fastur liður í rekstri flestra sauðfjárbúa á
komandi árum. Verið er að áætla umfang greininga á komandi hausti en nýlega var
send út könnun til bænda sem einnig má finna inn á heimasíðu RML. RML mun bjóða
upp á greiningar og setja síðan upp plan í samráði við sína samstarfsaðila um hvenær
sýni þurfa að berast til greiningar svo tryggt sé að niðurstöður fáist fyrir ákveðnar
dagsetningar. Í haust verður áfram lagt upp með að greina sex sæti á príongeninu.
Miklar endurbætur standa nú yfir á Fjárvísi sem miða að því að gera allt utanumhald
aðgengilegt fyrir sauðfjárbændur og er góður gangur í þeirri vinnu.
Dreifing erfðaefnisins. Hér hafa sæðingastöðvarnar mikilvægu hlutverki að gegna.
Stöðvarnar hafa þegar fengið vilyrði fyrir því að fá hrúta með arfgerðirnar ARR og T137.
Ljóst er að bæði ARR-hrúturinn Gimsteinn frá Þernunesi og T137-hrúturinn Austri frá
Stóru-Hámundarstöðum verða á sæðingastöðvunum næsta vetur ef ekkert óvænt
kemur upp á. Þá verða einnig valdir lambhrútar inn á stöðvarnar með þessar arfgerðir.
Þá verður meira úrval en áður af hrútum með H154 (lítið næmu arfgerðina). MAST
hefur þegar gefið grænt ljós á að mögulegt verði að fá undanþágu með ákveðnum
skilyrðum til að flytja ARR- og T137-gripina inn á sæðingastöðvarnar þrátt fyrir að þá
sé eingöngu að finna í dag í hólfum sem eru „lokuð“ með tilliti til sjúkdómastöðu. Vel
lítur því út með að fjölbreytt úrval verði í haust af hrútum með mismunandi arfgerðir.
Að lokum er það verkefni á vegum RML sem Þórdís Þórarinsdóttir mun fara fyrir sem
ber yfirskriftina „Ræktun gegn riðu – hermirannsókn“ en auk hennar eru tilkallaðir
kynbótasérfræðingar innan og utan RML. Verkefnið mun hjálpa okkur að ákveða hversu
hratt æskilegt er að innleiða verndandi arfgerðir út frá gefnum forsendum m.t.t.
skyldleikaræktar, erfðabreytileika, kostnaðar og erfðaframfara í öðrum eiginleikum.
Halldór Runólfsson, fyrrverandi yfirdýralæknir:
Of snemmt að breyta um aðferðarfræði
Halldór Runólfsson var yfir
dýralæknir á árunum 1997 til
2012 þegar reglugerð Evrópu
sambandsins um dýrasjúkdóma
var innleidd að hluta til á Íslandi.
Hann segir ástæðuna fyrir því að
Ísland hafi sótt um undanþágu frá
þeim hluta af reglugerðinni sem
snýr að viðbrögðum við smiti hafi
verið sú, annars vegar að íslenska
niðurskurðaaðferðin væri að virka
og hins vegar sú staðreynd að ARR
hefði ekki fundist hér á landi.
Halldór segir að tillögu Evrópu
sambandsins, um að Ísland gæti
flutt inn slíkt sauðfé, hafi verið
umsvifalaust hafnað, með tilvísun í
innflutninga frá Evrópulöndum sem
hefðu borið með sér sjúkdóma með
hrikalegum afleiðingum.
„ESB var einnig í þessu sambandi
bent á þá útbreiddu kenningu í
vísindaheiminum, að með ræktun
fyrir ARR gæti verið hætta á að
sauðfé með þessa arfgerð smitaðist
af riðu og gæti verið smitberar án
þess að sýna einkenni. Með því
að taka upp aðferðir ESB, gæti
útrýming á riðu á Íslandi tekið mun
lengri tíma,“ segir Halldór.
Baráttan hert árið 1986
„Í byrjun þessa tímabils míns sem
yfirdýralæknir voru riðutilfelli
orðin mjög fá – eða um tvö til fimm
á ári – miðað við nokkur hundruð
tilfelli á árinu 1978 þegar viðnám
gegn riðuveiki hófst. Það er svo
árið 1986 sem vitað var um riðu á
um 100 bæjum, að ákveðið var að
herða baráttuna og freista þess að
útrýma veikinni úr landinu með
skipulögðum niðurskurði á öllum
bæjum þar sem riðan var staðfest.
Þessari stefnu hefur verið fylgt
síðan og hún hefur borið þann
árangur að á þessari öld hafa komið
nokkur ár þar sem riða hefur ekki
fundist.
Í september á síðasta ári birtist
í Bændablaðinu grein Halldórs
um baráttuna við riðuveikina,
vegna ítrekaðra tilfella í
Skagafjarðar og Húna
vatnssýslum. Þar benti
hann á góðan árangur
af víðtækum niðurskurði
á stórum svæðum, svo
sem í Biskupstungum
fyrir nær tuttugu
árum, og ekki
hefur komið þar
upp riða síðan.
Í þessari grein
mælti hann
með algjörum
niðurskurði í
Húna og Skagahólfi. „Ég er enn
þeirrar skoðunar að allt of snemmt
sé að breyta nú um þá aðferðarfræði
í baráttunni við riðuveikina, sem
hefur skilað okkur svo góðum
árangri. Slíkt gæti haft alvarlegar
afleiðingar til lengri tíma litið. Það
hefur aldrei þótt gott að skipta um
hest í miðri á.“
Sjálfsagt að halda rannsóknum
áfram
„Nú hefur hins vegar komið í ljós,
að ARRarfgerðin hefur fundist hér
á landi, þó í mjög takmörkuðum
fjölda sauðfjár sé. Sjálfsagt er að
halda þessum rannsóknum áfram til
að fá betri mynd af útbreiðslunni og
kanna hvernig hægt væri að nýta þá
þekkingu í framtíðinni.
En ljóst er að ekki gengur upp að
fara að rækta fyrir þessari arfgerð
út frá fáum einstaklingum. Einnig
þarf að afla meiri vitneskju um
hvort slík ræktun gæti tafið fyrir
útrýmingu sjúkdómsins
á Íslandi, sem ég
tel að sé raunhæft
markmið,“ segir
Halldór.
Það er betra að vera
skjó r en skjóur
Skoðun dagsins:
Sími 570 9090 • www.frumherji.is
Nældu þér í óumdeildari skoðun, komdu
með hestakerruna á næs skoðunarstöð
og hafðu hana klára rir vorið og sumarið.
Halldór
Runólfsson.