Bændablaðið - 07.07.2022, Síða 35
35Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022
Aðalnúmer: 412 5300 | Söludeild: 412 5350 | Netfang: sala@limtrevirnet.is
Söluskrifstofur: Lynghálsi 2, 110 Reykjavík | Borgarbraut 74, 310 Borgarnes
Áratugareynsla við íslenskar aðstæður
Stuttur afgreiðslutími og fjölbreytt úrval
Uppsetning í boði á hurðum og viðbótarbúnaði
Margir litir og fylgihlutir í boði
Traustar bílskúrs- og
iðnaðarhurðir frá Lindab
og Krispol
limtrevirnet.is
FALLEGAR
HURÐIR SEM
ÞÚ GETUR
TREYST
skoðaðu úrvalið limtrevirnet.is
Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Sæti og varahlutir í
- Lyftara
- Vinnuvélar
- Vörubíla
- Báta
ÆÐARBÆNDUR!
Hreinsun er komin í fullan gang!
Getum bætt við okkur æðardúni í hreinsun og sölu.
Greiðum flutningskostnað.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Erla Friðriksdóttir í síma 899 8369 & erla@kingeider.is Dúnhreinsun - Nesvegur 13 - 340 Stykkishólmi
Enterococci bakteríur með
sérstaklega öflugt ónæmi gagnvart
sýklalyfjum fundust í svínakjöti
sem stendur breskum neytendum
til boða.
Samkvæmt nýrri rannsókn
sjálfstæðrar rannsóknarstofu á
Bretlandi fundust enterococci
bakteríur í 25 sýnum af 103.
Enterococci bakteríurnar í 23 af
25 sýktu sýnunum sýndu ónæmi
fyrir minnst einni tegund sýklalyfja.
Rannsóknaraðilar hafa sérstakar
áhyggjur af því að 13 sýni höfðu að
geyma bakteríur sem sýndu ónæmi
fyrir sýklalyfinu Vankómýcín en
sýkingar af þeirra völdum geta
í verstu tilfellum leitt til dauða.
Vankómýcín er mjög sterkt og
hættumikið sýklalyf af flokki lyfja
sem nefnist glýkópeptíð.
Það er með mjög þröngt verkunar-
svið og einungis notað þegar önnur
lyf hafa ekki virkað. The Guardian
greinir frá.
Sýklalyfjaónæmi er vaxandi
vandamál í Evrópu, en ein helsta
ástæða fjölgunar fjölónæmra
baktería er mikil notkun sýklalyfja
í landbúnaði; sérstaklega til þess að
fyrirbyggja og meðhöndla sýkingar
á verksmiðjubúum.
Vegna fjölgunar á enterococci
og öðrum fjölónæmum bakteríum
hafa verið framkvæmdar stikkprufur
í kjöti í verslunum undanfarin
ár. Í rannsókn á vegum breskra
stjórnvalda frá árinu 2018 reyndist
eitt sýni af hundrað sem voru tekin
af svína- og alifuglakjöti vera sýkt,
á meðan í áðurnefndri rannsókn
fundust enterocicci bakteríur í 25
af 103 sýnum.
Sérstaka athygli vakti að
bakteríurnar fundust í kjöti úr
lífrænni ræktun, þrátt fyrir að þar
sé talsvert minni sýklalyfjanotkun.
Þessar niðurstöður sýna að
sýklalyfjanotkun er farin úr
böndunum innan ákveðinna geira
kjötframleiðslunnar, en meira en
helmingur sýklalyfja heimsins eru
notuð í búfénað.
Vankómýcín sýklalyfið var
mikið notað erlendis til þess að auka
vaxtarhraða búfénaðar þangað til að
Evrópusambandið lagði bann við
notkun þess í landbúnaði árið 1997.
Taumhald var sett á þetta lyf þar sem
sýnt var fram á að mikil notkun þess
hefði leitt til fjölgunar baktería með
ónæmi fyrir glýkópeptíð sýklalyfjum
sem geta dreift sér úr búfénaði yfir
í fólk.
Þrátt fyrir að Vankómýcín
hafi ekki verið notað í 25 ár hafa
rannsóknir sýnt fram á að vegna
mikillar notkunar annarra sýklalyfja
eru bakteríur með ónæmi fyrir
glýkópeptíð sýklalyfjum enn
útbreiddar í evrópskum landbúnaði.
/ÁL
Útbreiðsla fjölónæmra baktería í Bretlandi er meiri en áður var talið.
Mynd / Diego San
Bretland:
Banvæn baktería í svínakjöti
– Sýklalyfjaónæmi breiðist út
á bbl.is og líka á Facebook