Bændablaðið - 07.07.2022, Side 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022
Bændur mótmæltu víða um
Holland í lok júní þegar þingmenn
greiddu atkvæði um tillögur að
lagabreytingum varðandi losun
afar skaðlegra mengunarvalda.
Áætlun þessi mun líklega neyða
bændur til að skera niður búfé sitt
eða hætta vinnu alfarið.
Mótmælin leiddu enn og aftur
fram á sjónarsviðið þá mótsögn sem
virðist á milli stefnu er leitast við
að finna jafnvægið á umhverfis-
ávinningi og þarfa landbúnaðar
sem atvinnugreinar. Vill ríkisstjórn
Hollands meina að draga þurfi
verulega úr losun köfnunar-
efnisoxíðs og ammoníaks úr búfé
nærri náttúrusvæðum, þá sérstaklega
þeirra sem eru hluti verndaðra
búsvæða fyrir plöntur og dýralíf í
útrýmingarhættu.
Samkvæmt tillögunum mun þurfa
að draga úr losun mengunarvaldanna
um allt að 50% á landsvísu fyrir árið
2030. Benda ráðamenn Hollands á að
þarna sé um að ræða óhjákvæmileg
umskipti sem stuðla að betri gæðum
vatns, lofts og lands.
Er það með lög ESB í huga,
en helstu ógnir sem ESB sér að
náttúrunni stafi af landbúnaði eru
einmitt mengunaráhrif á jörð, vatn
og loft, eyðing viðkvæmra vistkerfa
svo og villtra tegunda dýra og
plantna.
Ekki víst að allir haldi búi sínu
Með væntanlegum lagabreytingum
er ríkisstjórn Hollands að boða
verulega fækkun búfjár og þeir
bændur sem áfram halda skepnur
þurfa líklega að leita nýrra leiða við
störf sín.
Stjórnvöld hafa þegar hvatt
bændur til að gefa dýrum sínum
próteinminna fóður til þess að draga
úr losun ammoníaks sem búfénaður
framleiðir í þvagi og saur.
Mikið er í húfi því landbúnaður er
ein lykilgrein hollenska hagkerfisins.
Þrátt fyrir smæð sína er landið annar
stærsti útflytjandi heims, einn
af þremur leiðandi útflytjendum
heims á ávöxtum og grænmeti,
en útflutningur nam tæpum 105
milljörðum evra á síðasta ári.
Mikil reiði í röðum bænda
Fréttastofa ABC fjallaði um
mótmælin og sagði að mikil reiði
og órói væri í hópi bænda í landinu
enda lífsviðurværi þeirra í húfi.
Eyrnamerktir hafa verið 24,3
milljarðar evra til þess að fjármagna
mögulegan niðurskurð búfjár og
þau umskipti sem að lagabreyting=
unum hljótast.
Í umræðum á hollenska þinginu
hafa sumir stjórnmálamenn þegar
ályktað að helmingun búfjárgeirans
væri besta lausnin.
Bændur benda á að mengun
frá landbúnaði sé minni en ætlað
er. Þeir séu reiðubúnir í frekari
umræður um hvernig minnka megi
losun köfnunarefnis, en telja sig nú
þegar á þeirri braut og mótmæla
því harðlega að búgrein þeirra beri
stærsta sök.
Heildarmyndin íhuguð
Frá viðmiðunarsjónarmiði er hægt
að túlka núverandi ástand á
margvíslegan hátt.
Í ljósi þess að dómstólar eru
fylgjandi kröfum umhverfis-
yfirvalda er kemur að menguninni,
þykir sumum að bændur ættu
einfaldlega að samþykkja
ákvörðunina án jafn kröftugra
mótmæla og hafa verið.
Á móti kemur að lifibrauð þeirra
er í húfi og allar takmarkanir hafa
veruleg áhrif á lífsviðurværið.
Stétt bænda er sú sem er hvað
oftast í ótryggri fjárhagslegri stöðu
og kemur því ekki á óvart að þeir
séu uggandi gagnvart fyrirhuguðum
breytingum.
Einnig hafa stjórnvöld fáar
ráðstafanir á borðinu til að koma
til móts við bændur þegar þrýst er
á verðlækkanir og bregðast þeir sem
vinna við landbúnað því oft við með
því að auka umfang framleiðslu.
Óljós niðurstaða mótmæla
Mótmælin hafa vakið víðtæka
fjölmiðlaathygli og opinbera
umræðu í Hollandi þó enn sé óljóst
hvernig eða hver niðurstaðan verður.
Jafnframt því að finna lausn
sem hentar öllum málsaðilum þurfa
hollensk stjórnvöld að samræma
hana lögum ESB er varða losun
köfnunarefnisoxíða.
Fordæmdi hollenski forsætis-
ráðherrann ofbeldisfull mótmæli
bænda á borð við íkveikjur
heybagga, árásir á lögreglumenn,
átök fyrir utan heimili stjórnmála-
manna, uppsetningu vegatálma og
þar fram eftir götunum.
„Rétturinn til að geta mótmælt
er jákvæður en þarf að fara fram
á siðmenntaðan hátt,“ sagði
forsætisráðherrann Mark Rutte
í viðtali við fréttamenn stöðvar
ABC nýverið.
Jákvæð sýn á þetta umrót allt
saman er sú að fólk með ólíkan
bakgrunn hefur deilt skoðunum
sínum á þessu mikilvæga málefni er
mun hafa víðtæk áhrif á landnotkun
og lífsviðurværi í Hollandi.
Ekki í fyrsta skipti
Ágreiningurinn milli bænda og
stjórnvalda er þó ekki nýr af
nálinni.
Árið 2019 fjallaði miðill BBC
um mótmæli þúsunda hollenskra
bænda í borginni Haag, en þá sá
ríkisstjórnin fyrir sér líkt og nú,
að lögleiða niðurskurð á bústofni
bænda með það að markmiði að
minnka mengun í andrúmslofti.
Áratuga stefna stjórnvalda
vegna samspils neikvæðra
umhverfis- áhrifa landbúnaðar
hefur verið í umræðunni síðan seint
á sjötta áratugnum, samkvæmt
vefsíðu The Food Ethics Council,
og virðist sem vandanum hafi
frekar verið ýtt til hliðar en að tekið
væri á honum.
Umræðan í heild sinni mætti
því segja að væri algerlega tíma-
bær og undirstrika lýðræðislegt
eðli stjórnunar matvælakerfisins
í Hollandi. /SP
Landbúnaður í Hollandi:
Átök vegna áætlaðrar mengunar
UTAN ÚR HEIMI
Mótmælin í lok júní fóru að mestu leyti fram á friðsaman hátt þótt fregnir bærust af íkveikjum heybagga, handalögmálum
og árásum á lögreglumenn sem reyndu að stilla til friðar. Mynd / Myndskeið
Kúabændur víða um heim setja á
allar kvígur og þegar þær koma
inn í framleiðsluna þurfa eldri kýr
að víkja fyrir þeim sem yngri eru.
Oft er endurnýjunarhlutfallið
í kringum 40% á ári en með því
að lækka það í 30% má draga úr
sótspori búa um 6% samkvæmt
dönskum tölum. Aukin ending kúa
fæst fyrst og fremst með því að hlúa
vel að heilsufari og frjósemi kúnna,
auk þess sem afurðasemin verður
vissulega að vera til staðar.
Þannig verður aukin ending kúa
ekki einungis góð fyrir afkomuna
og velferð gripanna, en margsannað
er að endingargóðar kýr eru lang
hagkvæmastar, heldur er aukin
ending ekki síður góð fyrir sótsporið.
Skýringin á þessu felst einfaldlega
í því að fyrstu tvö ár ævinnar
framleiðir gripurinn ekki mjólk og
kostar því fyrst og fremst þegar horft
er til umhverfisbókhaldsins.
Með því að auka endinguna
deilast þessi uppeldisáhrif því yfir
á lengri tíma. Danskar tölur sýna
að sé endurnýjunarhlutfallið 40%,
og kvígurnar bera 24 mánaða, þarf
89 kvígur í eldi á hverjum tíma á
hverjar 100 kýr. Ætla mætti að hér
þyrfti 80 kvígur en tilfellið er að
ekki allar kvígur ná því að verða
mjólkurkýr.
Ef endurnýjunarhlutfallið er hins
vegar lækkað í t.d. 35% þarf ekki
nema 75 kvígur og því þarf ekki að
ala upp 14 kvígur aukalega miðað
við 40% endurnýjunarhlutfall.
/ landbrugsavisen.dk - SNS
Aukin ending
minnkar sótsporið