Bændablaðið - 07.07.2022, Page 37
37Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022
Við Norðurlandsveg - 560 VarmahlíðSími: 453 8888 - Opið virka daga kl. 9-17
Varpfóður og ungafóður
20 kg
Euro Start - Múslí
20 kg
Kaliber Starterfeed - Kálfakögglar
20 kg
Endurvinnanlegar umbúðir!
Full
búð af
vörum!
Fyrir ekki svo mörgum árum
var kínverskur bílaiðnaður mjög
takmarkaður og þeir fáu bílar sem
þeir framleiddu voru af flestum
taldir óspennandi og af lélegum
gæðum.
Á allra síðustu árum hafa
Kínverjar hins vegar verið að auka
úrvalið og bæta gæðaeftirlitið í
sinni framleiðslu. Fyrstu kínversku
bílarnir eru farnir að sjást á íslenskum
vegum undir merkjunum MG og
Maxus, sem eru ýmist fólksbílar,
jepplingar eða sendibílar. Þessir
bílar eru af sambærilegum gæðum
og aðrir bílar og því er áhugavert
að fylgjast með því hvort það
komi eitthvað nýtt og spennandi á
evrópska markaði.
Nýlega kom á markað jeppinn
Tank 300 frá kínverska bílasmiðnum
Great Wall. Ástralir hafa sýnt
þessum bíl áhuga og er verið að
skoða að setja hann á markað þar á
næsta ári. Það hafa hins vegar ekki
borist fréttir af því að Tank 300 muni
koma til Evrópu eins og er.
Tank 300 er millistór jeppi með
öllum þeim búnaði sem alvöru
jeppi þarf. Jeppinn er byggður á
grind, með háu og lágu drifi ásamt
driflæsingum. Þetta er því jeppi sem
gæti verið jafn öflugur utan vega og
Toyota Land Cruiser, sem er byggður
upp á svipaðan hátt. Hönnun bílsins
ber þess merki að horft hafi verið til
annarra „retró“ jeppa sem hafa verið
vinsælir á undanförnum árum, eins
og Jeep Wrangler, Suzuki Jimny,
Ford Bronco og Mercedes Benz G.
Innréttingin í bílnum virðist
vera mjög vönduð og af myndum
að dæma þá hafa hönnuðirnir sótt
innblástur í innréttingarnar hjá
Mercedes Benz. Sætin og stýrið
eru klædd með leðri, mælaborðið
er með leðri og burstuðu stáli og er
stór margmiðlunarskjár. /ÁL
Jeppinn Tank 300. Mynd / Great Wall
Kínverskur jeppi fyrir
íslenskar aðstæður
Við sendum í einum grænum
www.hardskafi.is Júlí 2022 Sími 555 6520 sala@hardskafi.is
Sturtuvagn 2 tonna
Kúlutengi + traktorstengi
Kr 570.400 m. vsk
Kr 460.000 án vsk
Smágrafa 1,0 tonn
Diesel 12hp
Kr 1.984.000 m. vsk
Kr 1,600.000 án vsk
Rokkarinn
GKHS PREMIUM 260cm
Kr 1.116.000 m. vsk
Kr 900.000 án vsk
Kurlari PTO
RPM1000 - max 25cm
Kr 1,364.000 m. vsk
Kr 1,100.000 án vsk
Kurlari max 8cm
Bensín 6,5hp+ kaupauki
Kr 198.400 m. vsk
Kr 160.000 án vsk
Stubbatætari
Bensín 15hp
Kr 291.400 m. vsk
Kr 235.000 án vsk
Sláttuvél PTO
STANDARD 175cm
Kr 396.800 m. vsk
Kr 320.000 án vsk
Sveiflukóngurinn
AGF PREMIUM 200cm
Kr 1.054.000 m. vsk
Kr 850.000 án vsk
Rafbörur 4x4
Drif á öllum og búkollubeygja
Kr 545.600 m. vsk
Kr 440.000 án vsk
Flutningskassi 2mtr
opna og sturta
Kr 241.800 m. vsk
Kr 195.000 án vsk
Sláttuvél 120cm
15hp EL fyrir fjórhjól
Kr 465.000 m. vsk
Kr 375.000 án vsk
Sláttuvél 160cm
24hp EL fyrir fjórhjól
Kr 799.800 m. vsk
Kr 645.000 án vsk
Skógarsnyrtir
Vökvadrif
Kr 558.000 m. vsk
Kr 450.000 án vsk
PREMIUM+ Þessar öflugu
Sláttuvélar með hliðrun, sveiflu eða orfi
Snyrtipinninn
GKS PREMIUM 200cm+60cm orf.
Kr 930.000 m. vsk
Kr 750.000 án vsk
Tindaskafa
Fyrir fjórhjól
Kr 328.600 m. vsk
Kr 265.000 án vsk
Sláttuvél 115cm
Fyrir smátraktora 14hp+
Kr 297.600 m. vsk
Kr 240.000 án vsk
Orf hydro
Vökvadrifið 65cm
Kr 434.000 m. vsk
Kr 350.000 án vsk
Vinur við reiðveginn
Gróðureldar ógna
búsvæði úlfa
Skógareldar sem geisuðu fyrr
í sumar í Zamora-héraði á
norðanverðum Spáni lögðu undir
sig og skemmdu um 30.000 hektara
af skóg- og kjarrlendi sem er
flokkað sem hamfarasvæði í dag.
Auk skemmda á gróðri er talið að
eldurinn hafi eyðilagt búsvæði tíu
villtra úlfahjarða sem þegar áttu undir
högg að sækja.
Talið er að fjöldi hvolpa hafi orðið
eldinum að bráð en að fullorðin dýr
hafi getað komist undan honum á
flótta. Úlfarnir, sem kallast Íberíuúlfar,
eru með síðustu villtu úlfahjörðunum
í Evrópu. Auk þess sem fjöldi
annarra villtra dýra svo sem dádýr,
villisvín, fjallakettir, otrar og fjöldi
fuglategunda áttu búsvæði þar. Með
því að lýsa svæðinu sem hamfarasvæði
geta yfirvöld veitt allt að tveimur
milljónum evra, um 277 milljónum
króna, til uppbyggingar þar.
Eldurinn mun hafa kviknað í
kjölfar hitabylgju í landinu og hann
breiddist út með miklum hraða með
vindi um þurrt kjarrlendið.
Um 650 slökkviliðsmenn og
sjálfboðaliðar börðust við eldinn
í marga daga með hjálp þyrlna og
flugvéla og náðu að lokum að hefta
útbreiðslu hans. /VH
Íberíuúlfar eru með síðustu villtu úlfunum í Evrópu. Mynd/ Wikipedia