Bændablaðið - 07.07.2022, Qupperneq 41
41Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022
Smiðjuvellir 9 300 Akranes 430 6600 akur@akur.is
AKURShús - timbureiningahús
íslensk hönnun
& framleiðsla
Afhent samsett á byggingarstað eða ósamsett í einingum
– Við allra hæfi –
„
Kannaðu málið á
akur.is
og pantaðu frían
húsabækling
Margar stærðir
og gerðir frá
93 - 227m2
Með það í huga að öll erum við
ólík, dýr og menn, er ekki úr vegi
að líta til þess er kaupa á söðul.
Hestar eru misjafnir í laginu líkt
og aðrar verur jarðar, bök þeirra
stutt, löng, breið eða grönn og því
ekki sjálfgefið að allir hnakkar passi
öllum hestum jafnt, þó virðist sem
margir telji að eitt gangi yfir alla.
Hér á landi er að finna unga konu
sem hefur sérhæft sig í því sem
kallast „saddle-fitting“ á ensku en
þýðist á þann hátt að hún sérhæfir
sig í að finna hnakk sem mátast
bæði knapa og hesti vel. Eveliina
Aurora Marttisdóttir heitir hún og
er borin og barnfædd í Finnlandi og
hefur alhliða menntun í líffærafræði
hesta og knapa auk söðulmátunar en
er einnig útskrifaður lögfræðingur.
„Já, ég er upprunalega frá Finn-
landi,“ segir Eveliina, sem flutti
til Íslands árið 2018. „Ég kem úr
mikilli hestafjölskyldu þannig að
reiðmennska og vinna með hesta
hefur alltaf verið sjálfsagður hluti af
lífi mínu og allt sem þeim viðkemur,
mælingar og útbúnaður hnakka þess
á meðal.“
Mismunandi hnakkar fyrir
mismunandi heild knapa og hests
„Í mínu umhverfi, og reyndar um
Evrópu alla, er mjög vel passað upp
á að hnakkur passi hverjum og einum
hesti fyrir sig og þá oftast með tilliti
til þess hver situr á baki.
Það kom mér því mjög á óvart
að Íslendingar voru ekki beinlínis á
sömu braut en margir kusu að nota
fjöldaframleidda hnakka sem eiga að
passa öllum jafnt. Sem er því miður
ekki raunin og oft skýring á því hvers
vegna hestar eru úrillir eða venja sig
á að beita líkamanum rangt til að
þrýstipunktarnir sem valda sársauka
verði aðrir. Það leiðir auðvitað af sér
álag á aðra staði – en einnig þarf að
taka inn í dæmið þann knapa er situr
hestinn, hæð hans og þyngd; þá hest
og knapa sem eina heild.“
Hestur ekki dýr ætlað til reiðar
Áhugavert er, að þótt hestar hafi
nær alla tíð verið stór hluti af lífi
mannsins er honum, af náttúrunnar
hendi, hvorki ætlað að vera notaður til
reiðar eða undir burð. Hann hefur þó
verið í hlutverki reið- eða burðardýrs
frá örófi alda, hvort heldur í stríði,
við póstburð, klyfjaður böggum,
beittir fyrir vagna, undir fólk og þar
fram eftir götunum.
„Samkvæmt því sem ég hef kynnt
mér að þá voru hnakkarnir stilltir,
mældir og mátaðir hverjum og einum
með tilliti til þess hlutverks sem hann
bar og hver sat í söðli hans,“ segir
Eveliina.
Hreyfing ætti að vera frjálsleg
„Hesturinn var þarfur þjónn og því
öllu til hagað svo hann lifði sem
best og nýttist sem best. Fólk í dag
er gjarnara á að skjóta hestinn bara
ef hann beitir sér illa eða er ótamur –
og fá sér nýjan. Það er eitthvað sem
ætti að forðast og athuga frekar hvort
hann hrjái eitthvað. Hafa ber í huga
að hnakkur sem passar vel styður
þannig bæði knapa og er þægilegur
fyrir hestinn.
Þyngd knapa ætti að dreifast jafnt
eftir baki hestsins sem gerir honum
þá auðvelt að bera knapann þannig
að báðum líði vel og í raun sem ein
heild til viðbótar við að hesturinn
ætti að geta hreyft sig frjálslega og
jafnauðveldlega á allan hátt. Á hinn
bóginn getur illa passandi hnakkur
valdið alvarlegum óþægindum og
jafnvel meiðslum fyrir hestinn sem
hindra þá heild sem æskilegust er
milli hests og knapa enda situr þá
knapinn ekki rétt.“
Jákvætt samspil og aukin þekking
Eveliina sá tækifæri á Íslandi við þá
iðju, að finna réttan hnakk fyrir hest
og knapa og stofnaði fyrirtæki sem
ber nafnið hestbak.is.
„Sú þjónusta sem ég býð upp á
felst í því að ef óskað er eftir þjónustu
minni kem ég á staðinn með gott
úrval hnakka af ýmsum toga og
aðstoða við að finna lausn sem hæfir
þeim sem eiga í hlut. Knapi fær að
reyna nokkra þeirra og velur þann er
hentar bæði honum og hestinum hvað
best – enda hef ég það að markmiði
að dreifa þekkingu minni um þetta
hugtak, söðulmátun - svo samspil
knapa, tamningamanna og hesta sé
sem best.“ /SP
Söðulmátun:
Hnakkur við hæfi
Mikilvægt er að bæði knapa og hesti líði sem best. Mynd / Aðsend
HLIÐGRINDUR
Margar stærðir í boði á flottu verði!
Sölustaðir:
Landstólpi Gunnbjarnarholti/Egilsstöðum og Vélaval í Varmahlíð
Sjáverðlista álandstolpi.is“Úti á túni”