Bændablaðið - 07.07.2022, Blaðsíða 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022
HROSS&HESTAMENNSKA
Kynbótahross á Landsmóti 2022:
Afkvæmaverðlaun stóðhesta
Mikil skráning var á
kynbótasýningar vorsins og
sýningar víðs vegar fylltust fljótt.
Tólf vorsýningar voru
haldnar, þar af fjórar sýningar á
Gaddstaðaflötum, þrjár á Hólum
í Hjaltadal, tvær í Spretti og á
Sörlastöðum og svo ein á Selfossi.
Alls staðar var nýting plássa góð
og voru 996 dómar gefnir þarf
af 121 sköpulagsdómar og 875
fullnaðardómar á 761 einstaklingi.
Fjöldi stóðhesta sem
náði lágmörkum í vor til
a fkvæmaverðlauna voru
þrettán talsins, fimm heiðurs
verðlaunastóðhestar og átta
fyrstu verð launa stóðhestar. Allir
heiðursverðlaunahestarnir munu
mæta með afkvæmum sínum á
Landsmót en sex fyrstu verðlauna
hestar munu verða sýndir til
fyrstu verðlauna fyrir afkvæmi á
Landsmóti.
Ákveðinn fjöldi efstu hrossa
vann sér þátttökurétt á Landsmóti í
hverjum flokki og alls urðu hrossin
177 sem náðu þessum áfanga.
Nokkuð hár fjöldi feðra stendur
að baki þessum hrossum en 73
stóðhestar eiga afkvæmi á mótinu. Sá
hestur sem á flest afkvæmi á mótinu
er Skýr frá Skálakoti en hann á 15
afkvæmi. Þar á eftir kemur Spuni frá
Vesturkoti, Ölnir frá Akranesi, og
Konsert frá Hofi með átta afkvæmi.
Hrannar frá Flugumýri með sjö
afkvæmi, Skaginn frá Skipaskaga
með sex afkvæmi og svo með fimm
afkvæmi á mótinu feðra hver um
sig Trymbill frá StóraÁsi, Hringur
frá Gunnarsstöðum og Draupnir frá
Stuðlum.
Inntökuskilyrði á Landsmót
voru með sama hætti og miðað
var við árið 2020 þar sem um 75%
hrossa eru valin inn á grundvelli
aðaleinkunnar og 25% eru valin
inn á grundvelli aðaleinkunnar án
skeiðs. Fjöldi hrossa í hverjum
flokki er fyrirfram ákveðinn og
standi hross jöfn að stigum á öðrum
aukastaf koma þau inn í sama sæti og
getur því hlutfallsleg skipting milli
aðaleinskunnar og aðaleinkunnar
án skeiðs aðeins breyst sökum
þess. Enn fremur er valið óháð
því hross hafi hlotið 5.0 eða hærra
fyrir skeið. Raunin nú, er líkt og á
fyrri landsmótum, að hlutfallslega
fleiri hross koma inn á grundvelli
aðaleinkunnar án skeiðs, sér í lagi
í yngri flokkunum en síst í eldri
flokkum. Nokkuð eðlileg og raunhæf
skýring er líklegast sú að byrjað er
seinna að hreyfa við skeiði en hross
eru sýnd í yngstu aldursflokkum.
Mögulega þyrfti að endurskoða
hlutfallið fyrir næsta landsmót.
Fjöldi knapa sem sýna kynbóta
hross á Landsmóti eru 44 þar sem
hver knapi sýnir að meðaltali 4
hross, en spönnin nær frá sýningu
á einu hrossi upp í 29 hross. Þetta
eru aðeins færri knapar en á síðasta
landsmóti en engu að síður nokkuð
mikill fjöldi knapa sem kemur að
sýningu kynbótahrossa.
Heiðursverðlaun fyrir afkvæmi
Heiðursverðlaunahestarnir á
Landsmótinu í sumar eru þeir Sjóður
frá Kirkjubæ með 124 stig og 53
dæmd afkvæmi. Næstur honum
kemur Jarl frá Árbæjarhjáleigu
II einnig með 124 stig og 51 sýnt
afkvæmi og skilja aðeins aukastafir
kynbótamats aðaleinkunnar
þessa tvo hesta að í röðun. Þriðji
heiðursverðlauna hesturinn er
Trymbill frá StóraÁsi með 123
stig og 50 sýnd afkvæmi, svo
Hrannar frá Flugumýri II með
122 stig og 76 sýnd afkvæmi og
Eldur frá Torfunesi með 119 stig í
kynbótamati aðaleinkunnar og 50
sýnd afkvæmi.
Það er því Sjóður sem er
Sleipnisbikarhafinn á Landsmóti
2022 og hlýtur æðstu viðurkenningu
ís lenskrar hrossaræktar,
heiðursverðlaun fyrir afkvæmi.
Sjaldan hefur minni munur skilið
að hesta í efstu sætum en hestar
skulu að lágmarki hljóta 118 stig
í kynbótamati aðaleinkunnar eða
kynbótamati aðaleinkunnar á
skeiðs, þar sem röðun miðast við
aðaleinkunn.
Kynbótamat mætingar sem
byggir á hlutfalli sýndra hryssna af
hryssum komnum á sýningaraldur
er hæst hjá Jarli eða 118 stig og
mætingarhlutfallið 45%. Aðrir
hestar eru nokkuð jafnir, frá 108
til 113 stigum og hlutfallið í
kringum 35%. Mætingarhlutfallið
bæði tekur mið af þeim hryssum
sem tilbúnar eru í braut en einnig
utanumhald og ákvörðun um að
sýna hross. Það er auðvitað afar
mikilvægt að stór hluti afkvæma séu
sýnd því þá og því aðeins kemur
skýr mynd á framræktunargildi
afkvæmahrossa, sé tekið mið af
opinberu ræktunarmarkmiði íslenska
hestsins.
Allir hestarnir í hópi heiðurs
verðlaunahesta komu fram á
Landsmóti árið 2018 í hópi fyrstu
verðlauna hesta fyrir afkvæmi.
Talsverðar breytingar hafa verið
gerðar á síðustu árum á útreikningi
kynbótamats bæði með upptöku
nýrra eiginleika eins og mætingar til
dóms, breytingar á vægistuðlum og
uppfærslu forrita svo ekki sé minnst
á síðustu breytinguna, niðurfellingu
á leiðréttingu fyrir áhrifum lands.
Það er því magnað að sjá hversu
sláandi mikil líkindi eru í niðurstöðu
kynbótamats aðaleinkunna á þessum
hesta milli móta, en á landsmótinu
árið 2018 var Eldur með 124 stig,
Trymbill með 124 stig, Jarl með
123 stig, Hrannar með 122 stig
og Sjóður með 121 stig. Þó svo að
slíkur samanburður sé ekki alveg
einsleitur og að fullu marktækur, þá
má sjá hversu áreiðanlegt kerfið er
og magnað tæki til að byggja úrval
undaneldishesta á.
Kynbótamat er mat á erfðagildi
hrossa og er ekki einkunn sem slík
heldur stigaröðun hrossa innan
stofnsins og breytingar á stigum
er annars vegar háð upplýsingum á
einstaklingnum og skylduliði og hins
vegar hvernig óskyld hross raðast
innan stofnsins. Jafnan er miðað
við að úrvalshluti hrossastofnsins
sé 118 stig og meira. Að sjálfsögðu
er talsverður munur á sýndum
afkvæmum fyrstu verðlauna hesta
og heiðursverðlaunahesta en ljóst
er að fyrstu fimmtán afkvæmin gefa
nokkuð skýra mynd af því gildi
stóðhesta til framræktunar. Allir hafa
heiðursverðlaunahestarnir í ár staðið
framarlega sem einstaklingar á fyrri
landsmótum og eru þeir afar jafnir
að aldri Sjóður, Jarl og Eldur fæddir
2007 og eru því fimmtán vetra en
Trymbill sautján vetra og Hrannar
sextán vetra.
Fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi
Alls áttu átta stóðhestar rétt til að
mæta á Landsmót og veita viðtöku
viðurkenningu fyrir fyrstu verðlaun
fyrir afkvæmi. Viðmiðið er sem áður
118 stig í kynbótamati aðaleinkunnar
með eða án skeiðs og fimmtán sýnd
afkvæmi.
Efstur stendur Álfaklettur frá
SyðriGegnishólum með 128 stig
og 15 sýnd afkvæmi. Fast á hæla
hans er Forkur frá Breiðabólstað
með 127 stig og 15 sýnd afkvæmi,
þá Knár frá YtraVallholti með 122
stig og 15 sýnd afkvæmi. Hringur frá
Gunnarsstöðum I kemur í fjórða sæti
með 119 stig og 30 sýnd afkvæmi og
svo Organisti frá Horni með 119 stig
og 15 sýnd afkvæmi, en hann raðast
neðar vegna aukastafa. Í sjötta sæti
er Lord frá Vatnsleysu með 117 stig í
kynbótamati aðalseinkunnar og 121
stig í kynbótamati aðaleinkunnar án
skeiðs og 22 sýnd afkvæmi. Auk
þessara hesta áttu rétt á að mæta
Kolskeggur frá Kjarnholtum I með
Frá Bændasamtökum Íslands:
Fagráð í hrossarækt starfar samkvæmt
15 gr. búnaðarlaga nr. 70/1998. Fagráð
fer, meðal annarra verkefna, með stjórn
Stofnverndarsjóðs sem starfræktur er
samkvæmt ákvæðum í sömu lögum og
reglugerð nr. 1123/2015 um sama efni.
Fagráð í hrossarækt
Bændahöllinni v/Hagatorg
107 Reykjavík.
Fagráð í hrossarækt.
Verkefni sjóðsins eru að veita styrki til þróunar- og rannsóknaverkefna
í hrossarækt. Verkefnin skulu stuðla að viðhaldi verðmætra eiginleika í
eða auka þekkingu á stofninum og útbreiðslu hans. Fagráð í hrossarækt
auglýsir eftir umsóknum ár hvert og tekur ákvörðun um styrkveitingar.
Fagráð tekur ákvörðun um styrkveitingar í desember 2020. Nánari upplýs-
ingar fást hjá Ráðgjafamiðstöð Landbúnaðarins (elsa@rml.is). Frestur til
að skila inn umsóknum er til 21. júlí 2022 og skal umsóknum skilað til:
Sjóður frá Kirkjubæ hlýtur Sleipnisbikarinn í ár. Hér er hann í úrslitum A-flokks gæðinga á Landsmóti hestamanna
árið 2018. Knapi er Eyrún Ýr Pálsdóttir. Mynd / Bbl
Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum er yngstur fyrstu verðlauna afkvæmahesta
á Landsmótinu. Mynd /Aðsend
Elsa Albertsdóttir
ráðunautur, búfjárræktar-
og þjónustusviði
elsa@rml.is