Bændablaðið - 07.07.2022, Side 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022
Öflug naut til notkunar úr 2017 árgangi
Nýtt kynbótamat var keyrt
núna í júní og að þessu sinni var
stóra breytingin sú að tekin var í
notkun ný spenaeinkunn.
Gerð var grein fyrir breytingum
á henni í síðasta blaði. Þegar gerðar
eru slíkar grundvallarbreytingar
verða eðlilega þó nokkrar breytingar
á heildareinkunn nautanna þar sem
spenaeinkunn vegur 10%.
Nýja spenaeinkunnin hampar
þeim nautum sem gefa hæfilega
spena hvað lengd og þykkt varðar
betur eldri einkunn.
Fagráð ákvað í kjölfar þessa að
gera breytingar á reyndum nautum í
notkun. Ákveðið var að taka Steinar
15042 og Knött 16006 úr notkun
en þeir tóku litlum sem engum
breytingum en höfðu verið lengi
í dreifingu. Þeir voru því að segja
má fullnotaðir.
Flýtir 17016 fer úr dreifingu en
hann lækkaði um eitt stig og áhugi
á honum var lítill. Þá lækkaði Stæll
17022 um fimm stig og hverfur því
af stóra sviðinu.
Í stað þessara nauta koma fjögur
ný naut, öll fædd 2017. Þetta eru
öflug og lofandi naut með dreifðu
faðerni. Hér verður gerð nánari
grein fyrir þeim en einnig er bent á
nautaskra.is.
Þróttur 17023 er frá Ósi í
Hvalfjarðarsveit undan Kletti 08030
og Grunnfríði 528 Þrælsdóttur
09068. Dætur Þróttar eru miklar
mjólkurkýr en verðefnahlutföll í
mjólk eru lág. Aðaleinkenni er að
þær eru fremur stórar, boldjúpar og
útlögumiklar áamt því að mjaltir
eru frekar góðar og skap gott.
Heildareinkunn 106.
Búkki 17031 er frá Lundi í
Lundarreykjadal undan Dropa
10077 og Sölku 266 Boltadóttur
09021. Það sem helst einkennir
dætur Búkka er að þetta eru
stórar, skapgóðar og háfættar kýr
með úrvalsgóða júgurgerð, netta
spena og há verðefni í mjólk.
Heildareinkunn 111.
Ós 17034 er frá Espihóli í
Eyjafirði undan Úlla 10089 og
921 Kambsdóttur 06022. Helstu
einkenni dætra Óss eru mikil
mjólkurlagni, lág hlutföll verð-
efna í mjólk, úrvalsgóð júgurgerð,
góðar mjaltir og gott skap.
Heildareinkunn 113.
Títan 17036 er frá Káranesi
í Kjós undan Úranusi 10081 og
Súru 651 Dynjandadóttur 06024.
Sterkustu einkenni Títansdætra eru
góð júgur- og spenagerð og frábærar
mjaltir. Þá eru þetta mjög vinsælar
kýr. Heildareinkunn 111.
Þau naut sem áfram verða í
dreifingu eru:
• Mikki 15043 sem lækkar um eitt
stig og stendur nú með 111 í
heildareinkunn.
• Tanni 15065 lækkar um þrjú stig
en stendur eftir sem áður mjög
sterkt, heildareinkunn 113.
• Bikar 16008 lækkar um tvö stig
og er með góða heildareinkunn
upp á 111.
• Jarfi 16016 lækkar um þrjú
stig en stendur mjög vel áfram,
heildareinkunn 113.
• Skírnir 16018 hækkar um eitt stig
og er með heildareinkunn upp á
108.
• Róður 16019 lækkar um eitt stig
og stendur í heildareinkunn upp
á 107.
• Kári 16026 styrkir sína stöðu,
hækkar um tvö stig fer upp í
heildareinkunn 198.
• Jónki 16036 hækkar um eitt stig
og stendur nú með heildareinkunn
upp á 110.
• Herkir 16069 hækkar um þrjú stig
og heildareinkunn er nú 110.
• Kopar 17014 stendur í stað og
heldareinkunn óbreytt upp á 106.
• Jötunn 17026 hækkar um eitt stig
og heildareinkunn nú 111.
Nautsfeðralistinn tekur breyt-
ingum. Þannig falla Mikki 15043,
Tanni 15065, Róður 16019 og Jónki
16036 af þeim lista en þó verða
áfram keyptir kálfar undan þeim.
Nýir inn á nautsfeðralistann koma
Jötunn 17026, Búkki 17031, Ós
17034 og Títan 17036 auk þess sem
Bikar 16008 og Jarfi 16016 verða
áfram nautsfeður. Áfram er óskað
eftir því að kýr á nautsmæðraskrá
(með rautt flagg í Huppu) og
efnilegar kvígur (með grænt flagg í
Huppu) verði sæddar með einhverju
ofantalinna nauta.
Þær breytingar sem gerðar voru
á kynbótamatinu núna með nýrri
spenaeinkunn eru liður í uppfærslu
og nútímavæðingu kynbótamatsins.
Stærsta breytingin á þeim vettvangi
er handan hornsins en stefnan
er að í haust verði tekið í notkun
erfðamat og í kjölfarið verður
kynbótaskipulaginu gjörbreytt þegar
erfðamengisúrval kemur að fullu til
framkvæmda.
Sú vísa verður sjaldan of
oft kveðin að hið sameiginlega
ræktunarstarf byggir á virkri
þátttöku sem flestra, helst allra.
Aðeins þannig næst árangur
sem unað verður við. Á komandi
misserum og árum verður ein af
þungamiðjum ræktunarstarfsins
sýnataka úr kvígum en arfgerðar-
greining sem flestra gripa er
undirstaða þess að nægilegt öryggi
náist á erfðamatið. Það er því
gríðarlega mikilvægt að allir bændur
taki þátt.
Ég beini því þeim tilmælum til
þeirra sem ekki hafa pantað DNA-
merki að gera slíkt hið fyrsta og
hefja sýnatöku úr kvígum.
Guðmundur Jóhannesson
ráðunautur í
nautgriparækt hjá RML
mundi@rml.is
Þróttur 17023 er frá Ósi í Hvalfjarðarsveit.
Búkki 17031 er frá Lundi í Lundarreykjadal.
Ós 17034 er frá Espihóli í Eyjafirði.
Títan 17036 er frá Káranesi í Kjós.
Á FAGLEGUM NÓTUM
Það er allavega eitt sem sæðinga-
stöðvahrúturinn Galli frá Hesti
á sameiginlegt með kindunum í
Botnum í Meðallandi.
Það er að rangar DNA niðurstöður
hafa komið þeim í fréttir. Galli frá
Hesti sem upphaflega var tekinn inn
á sæðingastöð á þeim forsendum að
hann hefði hlutlausa arfgerð hlaut
þann dóm í vetur að hann væri
með áhættuarfgerð. Kom það fram
þegar nokkrir sæðingahrútar voru
endurgreindir til að fá ýtarlegri
niðurstöður um arfgerðir þeirra.
Nú hefur komið í ljós að hrúturinn
er sannarlega hlutlaus og því enginn
gallagripur líkt og um tíma var talið.
Varðandi kindurnar í Botnum, þá leit
út fyrir að þar hefðu fundist þrír gripir
með arfgerðina T137. Hinsvegar eftir
endurteknar sýnatökur þar á bæ fannst
aldrei neitt meira af þessari arfgerð.
Skýringin reyndist sú að upplýsingarnar
um þessar þrjár kindur sem upphaflega
voru greindar með T137 voru rangar.
Í báðum tilfellum verða mannleg
mistök á tilraunastofunum þar sem
sýnin eru greind þess valdandi að
rangar niðurstöður eru gefnar upp
fyrir þessa gripi. Nú kann einhver að
spyrja – hversu áreiðanlegar eru þessar
DNA niðurstöður? Því má til svara að
mannleg mistök geta alltaf átt sér stað
og þetta ferli sem saman stendur af
sýnatöku, skráningum, greiningu og
útgáfu niðurstaðna er ekki yfir það
hafið að eitthvað geti farið úrskeiðis.
Mjög litlar líkur eru á því að greiningin
sjálf klikki. í því samhengi má nefna að
DNA greiningar hafa um margra ára
skeið verið notaðar bæði í hrossarækt
og nautgriparækt til að staðfesta ætterni
gripa með góðum árangri.
Með þeim endurbótum sem nú er
verið að gera á skýrsluhaldsforritinu
Fjárvísi verður mjög aðgengilegt að
skoða arfgerðir m.t.t. ættartengsla og
ætlunin er að Fjárvís geri jafnframt
athugasemd ef arfgerðargreining
foreldris og afkvæmis stemma
ekki saman. Í þessum gríðarlega
umfangsmiklu arfgerðargreiningum
sem verið er að framkvæma í
sauðfjárræktinni mátti búast við að
einhverjar villur kæmu fram en enn sem
komið er virðast þær mjög sjaldgæfar.
Hér með er það harmað að rangar
upplýsingar hafi verið settar fram og
hlutaðeigendur beðnir velvirðingar.
Það er synd að T137 hafi ekki fundist
í Botnum en sannarlega ánægulegt að
Galli geti haldið áfram veru sinni á
sæðingastöð þar sem ýmsar ábendingar
hafa heyrst af fallegum lömbum undan
honum í vor.
Eyþór Einarsson
ráðunautur
búfjárræktar-
og þjónustusviðs
ee@rml.is
Falsfréttir af Galla frá Hesti
og fénu í BotnumOG VINNUM ÚR ÞEIM
LAUSNIR
TÖKUM AÐ OKKUR VERKEFNI
VHE • Melabraut 27 Hafnarfjörður • Hraun 5 Reyðarfirði
Sími 843 8804 • Fax 575 9701 • www.vhe.is • sala@vhe.is