Bændablaðið - 07.07.2022, Blaðsíða 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
ALLAR STÆRÐIR
AF CAT RAFSTÖÐVUM
Gerðu kröfur - hafðu samband við Karl
í síma 590 5125 og kynntu þér þína möguleika.
Stöðvar í gám
Vetrarsól er umboðsaðili
Sláttuvélar
& sláttuorf
Snjóblásarar
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Gulltryggð gæði
40 ár
á Íslandi
Sláttutraktorar
Ábyrg kaup á líflömbum
Matvælastofnun hvetur til
arfgerðagreininga með tilliti
til næmis gegn riðusmiti og að
bændur nýti þá þekkingu í sinni
ræktun.
Mikilvægt er að líflömb sem flutt
eru milli bæja/svæða til kynbóta og/
eða sem nýr fjárstofn á svæðum þar
sem skorið hefur verið niður vegna
riðu séu arfgerðagreind.
Verndandi arfgerðir gegn riðu
hafa nú fundist á Íslandi og mikið
í húfi að nýta þær í baráttunni
gegn riðuveiki í öllu ræktunarstarfi
sauðfjár, hvort heldur sem er við
kaup á lömbum eða notkunar
sæðinga. Verndandi arfgerðin
ARR hefur raunar ekki fundist á
líflambasölusvæðum enn sem komið
er, en arfgerðin AHQ finnst þar í
einhverjum mæli og er flokkuð sem
„lítið næm arfgerð“.
Hér á landi er hlutlausa
arfgerðin ARQ algengust en
áhættuarfgerðin VRQ er því
miður einnig nokkuð algeng.
Arfgerðin T137, sem hefur sýnt
sig að vera verndandi arfgerð í
tilteknum fjárstofni á Ítalíu, hefur
fundist í íslensku fé og því er
vænlegt að rækta fé með þá arfgerð.
Í gildi er reglugerðarákvæði
sem kveður á um (3. gr. reglugerðar
nr 217/2012) að: Þar sem fram
hefur farið niðurskurður vegna
riðu skal þó einungis heimilt að
flytja líflömb sem hafa ekki VRQ
arfgerðina á búið.
Samkvæmt ákvæðinu er
bannað að flytja lömb með VRQ
áhættuarfgerðina inn á bú þar sem
skorið hefur verið niður vegna riðu.
Ekki er ábyrgt að kaupa fé með
VRQ arfgerðina á aðra bæi.
Sigurbjörg Ólöf Bergsdóttir,
sérgreinadýralæknir nautgripa-
og sauðfjársjúkdóma hjá MAST.
Sigurbjörg Ólöf Bergsdóttir.
Verndandi arfgerðir gegn riðu hafa nú fundist á Íslandi og mikið í húfi að nýta þær í baráttunni gegn riðuveiki í öllu
ræktunarstarfi sauðfjár, hvort heldur sem er við kaup á lömbum eða notkunar sæðinga.
Varahlu�r i VOLVO
Vinnutæki
LESENDARÝNI
Skráðu smáauglýsinguna þína á bbl.is