Bændablaðið - 07.07.2022, Síða 49
49Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022
Gæða tréhús frá Svíþjóð
Gisslaren hús hefur stóra og opna forstofu með
útsýni út í garð. Stofan er 37,5m2 með stórum
gluggum, lofthæð allt að 3,5 metrum og hægt
er að innrétta efri hæðina í öðrum enda hússins.
Allt byggingarefni fyrir ofan grunn; til dæmis
fullbúið eldhús, þvottavél og þurrkari, innbyggt
ryksugukerfi, og parket. Allar teikningar og
annað sem þarf til, er sótt er um byggingarleyfi.
Frekari upplýsingar gefur sölustjóri á Íslandi - Hinrik Gunnarsson
Veffang: hinrik@floodstra.com · Sími: 0046 705741099 · Vefsíða: www.floodstra.com/
Floods Trähus
Byggjum
nýtt!
Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing
og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020
eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is
Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Vegna aukinnar eftirspurnar óskum
við eftir bújörðum á söluskráhlutdeild millistéttarfólks í heiminum.
Þannig er talið að af þeim 7,9
milljörðum íbúa heimsins í dag þá séu
nú 3,8 milljarðar sem flokkast sem
millistétt en að árið 2030 verði þessi
fjöldi kominn í 5,3 milljarða íbúa.
Allt þetta fólk þarf að nærast og það
er einmitt þetta fólk sem hefur efni
á hágæða landbúnaðarvörum. Þess
vegna spáði hann því að eftirspurnin
eftir mjólk og kjöti muni aukast
hraustlega á allra næstu árum, þrátt
fyrir mögulegan framgang t.d.
grænmetis- eða grænkerafæðis á
ákveðnum mörkuðum.
Dýravelferð
Að þessu sinni var heil málstofa nýtt
fyrir málefni sem lúta að velferð
dýra. Skýringin á því er m.a. að
1. júlí í ár taka við nýjar kröfur til
danskra nautgripabúa og því ástæða
til að hnykkja á ýmsum atriðum sem
tengjast hinum nýju kröfum.
Eitt átsvæði fyrir hverja nýbæru
Það eru ýmsar nýjar kröfur sem taka
gildi fyrir dönsk kúabú s.s. að allar kýr
þurfa að hafa aðgengi að vélknúnum
kúaburstum og öll geldneyti hafi
aðgengi að burstum svo dæmi sé
tekið.
Þá þarf að vera a.m.k. eitt átsvæði
fyrir hverja nýbæru og það setur
marga danska bændur í vanda enda oft
fleiri kýr en átsvæði í fjósum. Einnig
gildir sama krafa um kýr sem eru
langt gengnar með og aðrar kýr mega
nú að hámarki vera tvær um hvert
átsvæði. Þá má ekki lengur vera með
of margar kýr um hvert drykkjarkar,
hámark 10 kýr á hvern lengdarmetra
drykkjarkars.
Rimlastíur bannaðar
Nýju reglurnar taka einnig á aðstöðu
fyrir uppeldi en dönsku bændurnir fá
þó smá frest á að breyta fjósum sínum
en frá 1. júlí 2024 verður óheimilt að
vera með heilrimlastíur fyrir gripi í
uppeldi.
Enginn gripur má s.s. hafa eingöngu
aðgengi að rimlum og því þarf að vera
með legusvæði í öllum stíum. Þessi
breyting kallar hjá flestum bændum
á viðbyggingar enda er ekki nóg að
setja bara legusvæði inn í stíurnar þar
sem það þrengir þá að göngusvæði
gripanna. Fyrir marga bændur þýðir
þessi breyting að nánast þarf að
tvöfalda rými fyrir gripi í uppeldi!
Helti úr sögunni?
Í málstofunni voru nokkur erindi sem
sneru að klaufskurði og helti kúa en
stærsta afurðafélag Danmerkur, Arla
Foods, gerir nú kröfu um að engin kýr
í fjósum sem framleiða mjólk fyrir
félagið hafi haltar kýr.
Þetta er vissulega ekki hægt að
tryggja algjörlega en með markvissri
vinnu og fyrirbyggjandi aðgerðum er
nánast hægt að koma í veg fyrir helti.
16% kúa með málmhluti í
meltingarveginum
Erindi Niels Bastian Kristensen,
fóðurfræðings og dýralæknisins
Peter Raundal, um málmhluti í fóðri
kúa, var einkar áhugavert en nýleg
athugun á meltingarvegi sláturkúa
leiddi í ljós að í 16% þeirra mátti
finna einhvers konar málma! Þessir
málmar, sem kýrnar éta óvart, geta
auðvitað valdið kúnum verulegum
skaða. Þeir félagar, sem báðir starfa
fyrir SEGES, framkvæmdu rannsókn
á tíðni málmhluta í meltingarvegi
sláturkúa og reyndu að rekja hvaðan
þeir komu.
Í ljós kom að þetta voru t.d.
þræðir úr dekkjum (sem notuð eru
til að fergja flatgryfjur), girðingar-
og gaddavírar, skrúfur og naglar auk
fleiri málmhluta. Athygli vekur þó
að dósir, t.d. sem hent er á víðavangi,
var vart að finna í þessari rannsókn
en skýringuna sögðu þeir líklega þá
að kýr skera sig líklega frekar á þeim
og hætta að éta.
Áhrif þess sem málmhlutir í
meltingarvegi geta haft er að átgeta
kúnna minnkar, auk þess sem kýrnar
verða oft veikar og kvaldar. Oft er
mjög erfitt að greina hvað það er sem
veldur þessum kvilla hjá kúnum og
má leiða að því líkum að einkennin
geti hreinlega valdið því að kúnum
sé slátrað.
Til þess að koma að mestu í veg
fyrir það að málmhlutir endi í kúnum
mæltu þeir félagar með því að gæta
sérstaklega að sér við slátt og hirðingu
sem og að setja kraftmikla segla
bæði í fóðurblandara og koma fyrir
sérstökum þar til gerðum seglum í
vömb kúnna.
Annars voru fleiri áhugaverð
erindi í málstofunni um dýravelferð
t.d. varðandi hönnun burðaraðstöðu,
um geldkúafóðrun, broddmjólkurgjöf
sem hægt er að lesa nánar um á
heimasíðu fagþingsins (sjá hlekk neðst
í greininni).
Holdanautabúskapur
Danir hafa löngum verið stórtækir
þegar kemur að holdanautabúskap
og skipta hjarðirnar í landinu
hundruðum. Undanfarin ár hefur verið
lögð aukin áhersla á samtengingu
holdanautabúskapar og líffræðilegs
fjölbreytileika gróðurs þ.e. þar sem
nautgripir ganga úti allt árið sé
hlúð sérstaklega að því að fjölga
plöntutegundum þrátt fyrir beitina
og áganginn.
Þetta fjallaði m.a. erindi
Íslandsvinarins Per Spleth og Rikke
Rørby Graversen um, en bæði starfa
hjá SEGES. Markmiðið er gott og gilt,
þ.e. að auka flóru landsins, en það
fer hreint ekki saman við hámörkun á
vexti nautgripa, en danskar mælingar
sýna að því fjölbreyttari sem flóra
landsins sem gripirnir ganga á því
hægari verður vöxturinn. Þetta
má þó samræma með því að bæta
bændunum upp vaxtartapið, með
styrkjum, vegna lengri eldistíma. Þá
ráðlagði Per bændum sérstaklega að
vanda til bústjórnarinnar þegar kemur
að útigangi:
Daglega:
• Fylgjast með holdafari og atferli
gripanna
• Tryggja aðgengi að góðu
drykkjarvatni og steinefnum
• Tryggja aðgengi að fóðri / góðri
beit
• Vera með aðgengilegt þurrt
legusvæði
• Veita gripum aðgengi að skjóli
Aldrei vera með:
• Magra gripi
• Úfna gripi eða gripi með hárlausa
bletti
• Skítuga gripi
• Gripi sem hengja haus
• Gróðurlaus (uppvaðin) svæði
• Forarpytti í kringum át- eða
drykkjarsvæði
• Beitarsvæði án aðgengis að skjóli
• Beitarsvæði án aðgengis að þurru
legusvæði
Í næsta Bændablaði verður birtur
síðasti hluti umfjöllunar um þetta
áhugaverða fagþing, en þess má geta
að hægt er að skoða og hlaða niður
öllum erindum af fagþinginu með því
að nota eftirfarandi hlekk: https://
www.tilmeld.dk/kvaegkongres2022/
praesentationer.
Hér sést að sé settur sterkur segull í fóðurblandara þá gerir hann klárlega gagn!
Mynd af girðingarvír sem fannst í
meltingarvegi.
Víkurhvarf 5
Vagnar og stálgrindahús
frá WECKMAN Steel
STÁLGRINDAHÚS
Fjöldi stærða og gerða í boði
Stærð palls 2,55 x 8,60 m
Verð kr. 1.890.000,- með virðisaukaskatti
Weckman flatvagnar
/ löndunarvagnar
RÚLLUVAGNAR –
LÖNDUNARVAGNAR
Stærð palls 2,55 x 9,0m
Vagnar 6,5 - 17 tonn.
Verðdæmi:
8 tonn kr. 1.250.000,- með virðisaukaskatti.
12 tonn kr. 1.590.000,- með virðisaukaskatti.
STURTUVAGNAR
Burðargeta 6,5 – 17 tonn
þak og veggstál
galvaniserað og litað
Bárað•
Kantað•
Stallað•
Fjöldi lita í boði
Víkurhvarfi 5 • Kópavogi • Sími 588 1130
hhaukssonehf@simnet.is
Víkurhvarf 5
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
2
Víkurhvarf 5
Vagnar og stálgrind hús
frá WECKMAN Steel
STÁLGRINDAHÚS
Fjöldi stærða og gerða í boði
Stærð palls 2,55 x 8,60 m
Verð kr. 1.890.000,- með virðisaukaskatti
Weckman flatvagnar
/ löndunarvagnar
RÚLLUVAGNAR –
LÖNDUNARVAGNAR
Stærð palls 2,55 x 9,0m
Vagnar 6,5 - 17 tonn.
Verðdæmi:
8 tonn kr. 1.250.000,- með virðisaukaskatti.
12 tonn kr. 1.590.000,- með virðisaukaskatti.
STURTUVAGNAR
Burðargeta 6,5 – 17 tonn
þak og veggstál
galvaniserað og litað
Bárað•
Kantað•
Stallað•
Fjöldi lita í boði
Víkurhvarfi 5 • Kópavogi • Sími 588 1130
hhaukssonehf@simnet.is
Víkurhvarf 5
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
2
Ögurhva fi 8
7-18 tonn
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Allar almennar bílaviðgerðir