Bændablaðið - 07.07.2022, Síða 50
50 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022
KORNHORN
Hafrar (Avena sativa), einnig
nefnd akurhafri, voru mikið
ræktaðir í heiminum sem
hestafóður á öldum áður
en umfang ræktunarinnar
minnkaði og aðeins brot af því
sem hún var fyrir tilkomu bíla
og véla.
Hafrar eru korntegund sem
er kröfuhörð en óvandlát í senn.
Til þess að uppskera hafra af
háum gæðum til manneldis
þurfa þeir að þroskast vel og
lengi en hafrar þrífast vel í
rýrum og ófrjósömum jarðvegi
og við lægri áburarskammta en
aðrar korntegundir. Niðurstöður
rannsókna í Noregi hafa sýnt að
hafrar geta tekið upp fastbundinn
fosfór. Því geta hafrar aukið
áburðarnýtni og henta því vel
í sáðskipti, einnig þar sem
blaðsjúkdómar í byggi herja ekki
á hafra og því er sjúkdómshring-
rásin rofin með því að rækta hafra
á eftir byggi.
Hafrar eru taldir eiga uppruna
sinn sem illgresi í byggökrum
og eiga sér styttri ræktunarsögu
en aðrar korntegundir.
Sterkjuhlutfallið er lægra í
höfrum en byggi en hafrar bæta
orkuinnihaldið upp með háu
fituinnihaldi. Hafrar eru feitasta
kornið en fituhlutfallið í korninu
er á bilinu 6-8% hérlendis og
getur verið hærra. Fitan er ekki
æskileg fjórmagadýrum en þó
er þetta ekki yfirdrifið magn, og
vísbendingar eru um að fita í fóðri
nautgripa dragi úr metanlosun.
Fitan er holl mannfólki en að
auki gómsæt viðbót þegar nota á
hafra til matvælaframleiðslu. Kex,
morgunkorn, brauð og kökur úr
höfrum eru vinsælar matvörur
á heimilum landsmanna að
ógleymdum hafragrautnum sem
hefur verið að auka vinsældir
sínar meðal ungs fólks í Evrópu
með tilkomu nýrra og spennandi
uppskrifta. Hafrar eru holl
neysluvara sem hafa góð áhrif á
hjarta- og æðasjúkdóma, amínó-
sýrusamsetningin er hentug
mönnum og trefjar hafra eru það
líka. Sérstaklega ber að nefna
beta-glúkan trefja sem lækkað
geta blóðsykur og kólestról í blóði.
Talsverðir möguleikar eru
fólgnir í því að hafravörur verði
úr íslensku hráefni. Til þess
þarf einkum tvennt, hentug yrki
á markað og myllur sem unnið
geta kornið í flögur og mjöl.
Rannsóknir við Jarðræktarmiðstöð
LbhÍ á Hvanneyri standa yfir með
styrk frá Matvælasjóði til þess
að finna og þróa yrki sem henta
best til ræktunar hér á landi með
manneldi að markmiði.
Ræktun hafra á Norðurlöndum
er talsverð. Finnar rækta mest
af höfrum, eða á næstum 300
þúsund hektörum, og eru enn
fremur næststærsti útflytjandi
hafra í heiminum á eftir Kanada.
Svíar rækta hafra á 165 þúsund
hekturum og Norðmenn 69
þúsund. Norðmenn stefna á
sjálfsnægt í neyslu hafra og eru
langt komnir að því markmiði.
Hafrarækt hér á landi er lítil, þó er
á markaði haframjöl frá Sandhóli í
Meðallandi. Hafrar voru teknir til
prófana hér á landi af Klemenzi
Kristjánssyni á Sámstöðum í
Fljótshlíð á fyrri hluta síðustu
aldar, en þar sem hafrar gátu ekki
keppt við bygg í uppskerumagni
og flýti til þroska var lögð meiri
áhersla á byggræktun og kynbætur.
Hafrar þurfa lengri þroskatíma
en bygg hér landi, en geta staðið
lengur og þola haustveður betur.
Þannig lengist uppskeru-
tímabilið og nýting þreskivéla og
þurrkaðstöðu eykst.
Aðstæður hér á landi til
ræktunar hafra til manneldis eru
krefjandi. Lágt hitastig takmarkar
stærð og þroska kornsins sem
kemur niður á gæðum þess. Hins
vegar sýna niðurstöður tilrauna
við Jarðræktarmiðstöð LbhÍ að
arfgerðarþátturinn hefur stór
marktæk áhrif á gæði kornsins.
Við Jarðræktarmiðstöðina hafa
verið þróaðar aðferðir til að meta
myllunargæði hafra sem ræktaðir
eru hér í jarðræktartilraunum. Alls
voru prófaðar 136 arfgerðir af
höfrum árið 2021 sem voru valdir
sérstaklega sem fljótþroska yrki.
Niðurstöðurnar sýndu mikinn
breytileika á þúsundkornaþyngd
og rúmþyngd sem eru þekktir
eiginleikar til þess að meta
gæði korns. Að auki var kornið
flokkað eftir stærð, stærri en 2,5
mm, stærri en 2,2 mm og minni
en 2,2 mm. Enn fremur voru öll
sýni afhýdd í tilraunaafhýðara
og gæði afhýðingarinnar metin
ásamt hörku kornsins, það er
hvort það brotni við afhýðingu.
Þessir þættir skiluðu sér beint í
gæði hafraflaganna sem voru
gerðar úr korni til bragðpófana
hjá MATÍS eins og sjá má á
meðfylgjandi myndum. Einnig
hefur Jarðræktarmiðstöð LbhÍ nú
þriðja árið í röð lagt út tilraun með
9 algengum hafrayrkjum. Yrkin
voru sett út á þremur stöðum
og eru skoðaðir hefðbundnir
uppskerueiginleikar, en að
auki eru sýnin afhýdd og gæði
afhýðingarinnar metin. Mikill
arfgerðamunur er á korninu
en einnig mikill munur eftir
ræktunarstöðum.
Mikill munur er á myllunar-
gæðum hafra eftir arfgerðum
en þegar hugað er að höfrum
til manneldis skiptir gæði
hafraflaganna miklu máli,
því neytandinn gerir kröfur á
bragðgæði og áferð. Við ræktun
hafra til manneldis er mikilvægt
að finna hentugar arfgerðir sem
bæði eru auðveldar í ræktun,
afhýðast vel og brotna ekki við
vinnslu. Með auknum tilraunum
væri hægt að finna hentug yrki
sem uppfylla þessar kröfur og auk
þess gætu ræktunaraðilar valið
hafrayrki til ræktunar með það
að leiðarljósi hversu mikið beta-
glúkan finnst í þeim. Rannsakað
verður magn beta-glúkana trefja
í höfrum ræktuðum hér á landi.
En magn þeirra stjórnast af miklu
leyti eftir umhverfisaðstæðum,
mikilvægt er því að kanna hvort
stakar arfgerðir séu betur til þess
fallnar að framleiða beta-glúkana
við íslenskar aðstæður en aðrar.
Til þess að aðlaga hafra enn
betur að íslenskum aðstæðum
þarf að gera fleiri tilraunir og
hefja víxlanir á höfrum til þess
að kynbæta stofninn með gæði,
uppskeru og öryggi í ræktun að
leiðarljósi.
Hrannar Smári Hilmarsson,
tilraunastjóri í jarðrækt
hjá LbhÍ.
Jónína Svavarsdóttir,
umsjónarmaður jarðræktar-
tilrauna hjá LbhÍ.
LESENDARÝNI
Landeldi laxfiska
Nú stendur yfir undirbúningur
hérlendis undir stóraukna fram-
leiðslu á laxi sem alinn er á landi
eingöngu, svonefnt landeldi.
Innan fárra ára munu hafa risið
landeldisstöðvar á Íslandi sem
framleiða umtalsvert magn af laxi, eða
sem nemur ríflega 100.000 tonnum á
ársgrundvelli. Hingað til hefur lax hér
á landi nánast eingöngu verið alinn í
sjókvíum, svo hvað veldur því að augu
íslenskra laxeldisbænda beinast nú í
auknum mæli upp á fast land?
Hvers vegna laxeldi?
Ýmsar ástæður liggja að baki því að
laxeldi er talið fýsilegur kostur til
matvælaframleiðslu. Fyrir það fyrsta
má nefna að fóðurstuðull laxa og
silunga, þ.e. það magn fóðurs sem
þarf til að framleiða 1 kg af laxi,
er um 1,2. Þannig þarf 1,2 kg af
fóðri til að ala hvert kíló af laxi, og
framangreint hlutfall er hvergi lægra
í matvælaframleiðslu. Þetta skýrist
af því að laxinn lifir í vatni og keppir
því ekki við þyngdarlögmálið. Hann
vinnur t.d. kalk, úr sjónum og eins
er blóð hans kalt svo orkuþörfin er
gríðarlega lítil. Til samanburðar má
nefna að fóðurstuðull í kjúklingarækt
er í kringum 2,5, í sauðfjárrækt frá um
5,5 og um tvöfalt það í nautgriparækt.
Fóður eða hráefni til landeldis er hins
vegar innflutt að miklu leyti og þar
liggja talsverð sóknarfæri til framtíðar.
Fiskeldi er í örum vexti
Heildarmagn eldisafurða sem
framleiddar voru hérlendis áttfaldaðist
milli áranna 2010 og 2020, og
munar þar langmestu um laxeldi.
Á árinu 2021 komu 12% af heildar
útflutningsverðmætum íslensks
sjávarútvegs frá eldisafurðum, eða
sem nam 36 milljörðum króna.
Var þar um að ræða 23%
aukningu frá árinu á undan. Þá
aukningu sem orðið hefur í greininni
má að langstærstu leyti rekja til
sjókvíaeldis, en á árinu 2021 var
44,5 þúsund tonnum slátrað úr
sjókvíaeldisstöðvum og hefur sú tala
aldrei verið hærri. Til samanburðar
var einungis 2.000 tonnum af laxi
slátrað úr landeldisstöðvum á sama
ári, og kom það allt úr eldisstöð
Samherja í Öxarfirði.
Nokkur stígandi var í bleikjueldi á
síðasta áratug, fram til ársins 2019, en
síðan hefur dregið aðeins úr. Á árinu
2021 var um 5,4 þúsund tonnum af
bleikju slátrað.
Landeldi ryður sér til rúms
Hvað landeldi, sem þýðir fulleldi
fiska á landi eingöngu, varðar hefur
stærsti þröskuldurinn hingað til
verið hár kostnaður við uppsetningu
fulleldisstöðva á landi. Kostnaður við
uppsetningu slíkrar stöðvar er um það
bil tífaldur á við sjókvíaeldisstöð, svo
þar munar um minna. Á síðustu árum
hafa þó rannsóknir og niðurstöður
framsýnna frumkvöðla bent eindregið
til þess að með nýjustu tækni sé vel
hægt að skapa arðbært laxeldi á
landi, að því gefnu að nauðsynlegir
landfræðilegir grunnþættir séu til
staðar. Enn fremur eru möguleikar fyrir
hendi til að nýta aukaafurðir sem til
falla við landeldi.
Þannig má nýta fiskimykju í
áburð, dauðfisk í vetnisframleiðslu
og affallsvatn
í gróðurhús
og græn-
metisrækt.
Í landeldi
er jafnframt
öllum að-
stæðum stýrt,
svo hættan á
sjúkdómum
og innrás
sníkjudýra er
lágmörkuð, og slysasleppingar afar
hæpnar. Annar kostur við landeldi
er sá að hægt er að svara kalli
markaðarins með eins nákvæmum
hætti og frekast má verða.
Landeldisfyrirtæki geta þannig
stýrt því framboði sem þarf á hverjum
tíma og slátrað jafnt og þétt, allt eftir
þörfum markaðarins og eftirspurn á
hverjum tíma.
Úrgangur – hráefni - áburður
Þá er ótalin sú staðreynd að landeldi
hefur opnað á mikla möguleika á
verðmætasköpun úr fiskimykju og
dauðfiski úr landeldi þar eð unnt er
að safna öllu sem til fellur úr kerjum
á landi. Nýverið var undirrituð
viljayfirlýsing milli Bændasamtakanna
og nýstofnaðra Landeldissamtaka
Íslands um að vinna saman að nýtingu
lífræns úrgangs, bæði fiskimykju og
búfjárúrgangs, til framleiðslu áburðar
hér landi.
Efnasamsetning hráefnanna
veldur því að með samblöndun
og áframvinnslu þeirra má búa til
gríðarlegt magn kröftugs, fjölnota
áburðar og draga úr því sem flytja
þarf inn.
Aðstæður til uppbyggingar
landeldis hvergi ákjósanlegri
en hér á landi
Sigurður Pétursson, stofnandi
Arctic Fish og framkvæmdastjóri
fræðslumiðstöðvarinnar um laxeldi,
Lax-inn, segist búast við mikilli
framþróun í bæði sjóeldi og landeldi
á komandi árum, en enn sem komið er
komi yfir 99% af eldi á Atlantshafslaxi
úr sjóeldi. Hann hefur tröllatrú á að
landeldi muni aukast til muna en að
sama skapi muni ryðja sér til rúms ný
tækni við sjóeldi, svo sem úthafseldi.
Eins séu möguleikar á svokölluðu
fjöleldi, þar sem tengd er saman
þararækt, skelfiskrækt og fiskeldi,
og einnig komi lokuð kerfi til með að
ryðja sér til rúms á komandi tímum.
Staðreyndin sé þó sú að líklega sé
ekkert landsvæði í heiminum jafn vel
til landeldis á laxi fallið og Ísland. „Hér
er aðgangur að nægu ferskvatni, hér
er hægt að dæla upp borholusjó, við
höfum græna raforku og jarðhita.
Slíkar aðstæður er ekki að finna
neins staðar í heiminum nema hér,
og þá sérstaklega á suðurhorni
landsins. Aðstæður til uppbyggingar
landeldis eru því hvergi í heiminum
ákjósanlegri en akkúrat hér,“ segir
Sigurður Pétursson.
Það er því ljóst að mikið er fram
undan í landeldismálum hérlendis
og að um auðugan garð er að gresja í
þeim efnum. Það verður spennandi að
fylgjast með framhaldinu.
Rúnar Þór Þórarinsson,
stjórnandi sjálfbærni- og
nýsköpunar hjá Landeldi hf.
og stjórnarformaður ELDÍS.
Rúnar Þór
Þórarinsson.
Hollur er heima-
fenginn hafragrautur
Mismunandi gæði hafrayrkja skila sér í flögugerðina eins og sjá má á þessum myndum þar sem sjást afhýddir
hafrar og fallegar flögur. Á hinni myndinni sést tilraun til flögugerðar á hafrayrki af lakari gæðum.
Jónína Svavarsdóttir. Hrannar Smári Hilmarsson.
Laxar í landeldiskeri.