Bændablaðið - 07.07.2022, Side 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022
VÉLABÁSINN
Að þessu sinni var rafmagnaði
sendibíllinn Toyota Proace
Electric,sem Toyota umboðið selur,
tekinn í prufuakstur.
Toyota hefur selt Proace sendibíla
um árabil sem dísilbíla, en undanfarin
misseri hafa þessir bílar borist til
landsins sem rafmagnsbílar. Bíllinn
kemur í þremur lengdum og með
tvö mismunandi búnaðarstig. LX
útgáfan er ódýrasta og einfaldasta
útgáfan, á meðan GX útgáfan bætir
við nokkrum aukahlutum. Proace
Electric LX stuttur með 50 kWh
rafhlöðu kostar 6.290.000 kr m.vsk.
og fer verðið upp í 7.890.000 kr m.vsk
fyrir Proace Electric GX langan með
75 kWh rafhlöðu.
Proace myndi teljast til millistórra
sendibila en í þann flokk falla líka
bílar eins og Volkswagen Transporter
og Mercedes-Benz Vito. Proace er
afrakstur samstarfs milli nokkurra
bílaframleiðenda og á hann nokkra
„tvíbura“ á markaðnum sem eru
mjög líkir hvað varðar útlit og búnað,
ásamt því að þeir fást allir bæði sem
rafmagns- eða dísilbílar. Það eru
Opel Vivaro, Peugeot Expert og
Citroen Jumpy sem allir eru seldir hjá
Brimborg. Kaupendur sem kunna að
meta þessa bíla geta því valið á milli
þess að skipta við Toyota umboðið eða
Brimborg, en fengið sambærilegan bíl.
Naumhyggjan allsráðandi
Hönnuðunum í þessu samstarfi
sendibíla hefur tekist betur til með
þessa útgáfu bílsins en áður. Fyrri
gerðin af Proace og hinum tvíburunum
var frekar asnaleg, en núna er bíllinn
með látlaust og stílhreint útlit. Ljósið
og grillið sver sig í ætt við aðra bíla frá
Toyota og restin er með vel úthugsuð
hlutföll og línur.
Að innan er bíllinn mjög hrár og
látlaus, en í augum blaðamannsins
er ákveðinn sjarmi yfir því. Toyota
Proace Electic er ekkert að þykjast;
þetta er bara sendibíll sem er gerður til
þess að vera í vinnu. Hirslurnar eru hins
vegar af nokkuð skornum skammti,
hanskahólfið er lítið, glasahaldararnir
eru langt frá ökumanninum og hólfið
í miðju mælaborðinu er lítið.
Hins vegar eru hurðavasarnir
mjög stórir og undir miðjusætinu er
leynihólf sem bætir að vissu leyti upp
fyrir lítið hanskahólf.
Naumhyggjan heldur áfram þegar
bíllinn er tekinn í akstur. Það er mjög
fyrirhafnarlaust að hefja aksturinn
þar sem það þarf bara að ganga að
bílnum með lykilinn í vasanum, taka
í hurðarhúninn og hann fer sjálfkrafa
úr lás. Svo þarf bara að ýta á tvo takka
(start og drive) og þá er hægt að keyra
af stað án þess að hávær dísilmótor
spilli friðnum eða flæki hlutina.
Bíllinn fer sjálfkrafa úr handbremsu
þegar ekið er af stað og svo sjálfkrafa
í park og handbremsu þegar slökkt er
á bílnum. Þessi einfaldleiki er líklegur
til vinsælda hjá þeim sem þurfa að fara
í og úr bílnum oft á dag við vinnu. Í LX
útgáfunni bætast reyndar við tvö skref
þar sem það þarf að nota lykil til þess
að virkja fjarstýrðu samlæsingarnar
og setja bílinn í gang, á meðan í GX
útgáfunni er bæði lyklalaust aðgengi
og start.
Áreynslulaus og sportlegur
í akstri
Mjög áreynslulaust er að keyra
bílinn þar sem það berst enginn
titringur eða hávaði frá mótornum.
Hins vegar heyrist vind- og veghljóð
þegar bíllinn nær þjóðvegahraða og
eins og algengt er með sendibíla þá
berst mikið bergmál frá farmrýminu.
Blaðamaður gerði samanburð á LX
og GX útgáfunni og fann greinilegan
mun á hávaða sem barst inn í
ökumannshúsið. Skýringin á því er
líklegast tvöföld, en GX útgáfan kemur
með hljóðeinangrun í framrúðunni
ásamt krossviðarklæðningu á gólfi
farmrýmisins. Eins
og þekkt er með
rafmagnsbíla þá eru
mótorarnir að vinna
á fullu afli hvort sem
þeir eru á lágum
eða háum snúningi
og fer aflið beint út
í hjólin án þess að
þurfa kúplingu. Þar af
leiðandi er mjög fljótt
og fyrirsjáanlegt við-
bragðið þegar ýtt er á
inngjöfina sem gerir
það mjög auðvelt að
stinga sér inn í glufur
í hringtorgum og við
gatnamót. Mótorinn
í þessum bíl myndi seint teljast
kraftmikill en þar sem allt aflið er
til staðar samstundis þá gefur hann
ökumanninum þá tilfinningu að þetta
sé kraftmeiri bíll en hann er.
Í Proace Electric eru tvær stillingar
á mótorbremsunni, annars vegar
venjuleg stilling þar sem hann rennur
áfram þegar inngjöfinni er sleppt, rétt
eins og á bensín- og dísilbílum.
Hins vegar er hægt að velja
svokallaða B stillingu þar sem
mótorinn veitir umtalsvert viðnám
þegar inngjöfinni er sleppt þannig
að ökumaðurinn þarf ekki að ýta
á bremsuna nema rétt til þess að
stöðva bílinn. Þetta snögga viðbragð
mótorsins og þessi öfluga mótor-
bremsa gera það að verkum að bíllinn
er merkilega sportlegur í akstri.
Lítil drægni en góð burðargeta
Rafhlöðurnar koma í tveimur stærðum,
annars vegar 50kWh og hins vegar 75
kWh. Samkvæmt framleiðanda þá á
minni rafhlaðan að gefa 230 kílómetra
drægni, en sú stærri 330 kílómetra
drægni. Það má þó taka þessum tölum
með miklum fyrirvara og gera ráð
fyrir því að drægnin sé umtalsvert
verri við íslenskar aðstæður.
Farmrýmið í bílnum er rúmgott og
ætti að nýtast vel þar sem hliðarnar
eru frekar frá gólfi upp í þak. Hægt er
að fá rennihurðir á báðum hliðum og
opnast dyrnar að aftan í 180 gráður.
Breidd rýmisins er 1.636 mm og hæð
1.397 mm.
Farmrýmið á stutta bílnum er 2.162
mm, á þeim millilanga er það 2.512
mm og 2.862 mm á þeim lengsta. Í
öllum Proace bílum er hleri á milli
farmrýmis og ökumannshúss sem
býður upp á það að lengja farmrýmið
um 116 mm. Proace Electric er með
burðargetu á bilinu 1.030 kg upp í
1.110 kg; en lægri talan á við um
lengri bílinn. Dráttargetan er allt að
1.000 kg.
Samantekt
Upplifun blaðamanns af Toyota
Proace Electric var mjög jákvæð.
Einfaldleiki í notkun og rekstrar-
öryggi gerir þetta vænlegan kost
fyrir hvern þann sem er að leita sér
að vinnutæki.
Hins vegar er líklegt að tak-
mörkuð drægni bílsins muni koma
í veg fyrir að hann nái mikilli
útbreiðslu. Blaðamaður keyrði tvo
bíla með minni rafhlöðunni og náði
ekki 200 kílómetrum á hleðslunni.
Eins og er þá eru bílarnir með stærri
rafhlöðunni ekki fáanlegir en þeir eru
líklegast sá valmöguleiki sem flestir
munu horfa til. Sé ekki þörf á því að
aka langar vegalengdir þá eru þessir
rafmögnuðu sendibílar frábær kostur.
Ástvaldur Lárusson
astvaldur@bondi.is
Farmrýmið í lengstu útgáfunni með krossviðarklæddu gólfi.
Hér sést minnsta útgáfan en hægt er að fá hann allt að 70 cm lengri.
Proace Electric LX stuttur. Einfaldur sendibíll sem gengur fyrir rafmagni og hægt að fá í þremur lengdum, tveimur búnaðarstigum og með 50 eða 75 kWh rafhlöðu.
Myndir / ÁL
Innréttingin er látlaus en smekkleg og kemur með
litlu skrifborði.
Lúgan frá farmrýminu yfir í öku-
mannshúsið er undir farþegasætinu.
Undir miðjusætinu er lítið hólf.